Fréttablaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 62
8 FERÐALÖG
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR-
INN: Terra Nerra 18 rue de Fossés
St. Jacques í fimmta hverfi.
Einstaklega skemmtilegur ítalskur
staður sem Delphine og Raym-
ondo frá Napolí reka, man ekki
eftir neinum frönskum sem ég
held meira upp á.
FLOTTASTI BARINN: Café-livre
beint á móti St. Jacques-turnin-
um þar sem fimm þúsund bækur
eru, ekkert sérstaklega mikill
tískubar en skemmtileg verönd og
gott lífrænt ræktað hvítvín.
SKEMMTILEGASTI NÆTUR-
KLÚBBURINN: Er alveg að detta
út úr klúbbastemningunni en hef
alltaf gaman af Black Blanc Beur
(svart hvít arabískt) tedansinum á
sunnudögum þar sem blandast
saman fólk af ýmsum kynþáttum
og tónlistin um leið. Sumir af
vinum mínum úr Karíbahafinu
segja að ég sé svartur inn við
beinið.
BESTU GÖTURNAR/HVERFIÐ
TIL AÐ KAUPA FÖT: Haussmann-
búlvarðurinn sameinar stóru
magasínin og búðir eins og Zöru
og fleiri og nú síðast var opnuð
japönsk búð, Uniglo, sem þykir
flott. Svo er Mýrin góð fyrir þá
sem eru fyrir nýstárlega hönnuði.
BESTI STAÐURINN TIL AÐ VERA
Á MEÐ BÖRN: Vincennes-skógur-
inn sem er skammt frá endastöð
metró 1, Chateau de Vincennes
er einstakur á sumrin og nóg
pláss þar. Lúxemborgarhallar-
garðurinn er ágætur líka.
HVERJU MÁ ALLS EKKI MISSA
AF Í NÓVEMBER? Jólaverslunin
byrjar og því er ómissandi að sjá
útstillingargluggana fyrir framan
stóru verslanirnar á Haussmann-
búlvarði.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ?
Leyndarmálin eru mörg en eitt
þeirra er hallargarðarnir Palais
Royal sem eru hinum megin við
Louvre miðað við Rivoli-götu og
margir taka ekki eftir.
HEIMAMAÐURINN
París
BERGÞÓR BJARNASON
TÍSKUGÚRÚ
H
jónin Einar Sigfússon og
Anna K. Sigþórsdóttir
hafa áratugs reynslu við
fararstjórn til ítölsku
Alpanna. Í vetur býður ferðaskrif-
stofan Vita upp á ferðir til Madonna
di Campiglo og Selva, en bæði þessi
skíðaþorp hafa verið geysilega vin-
sæl hjá Íslendingum undanfarin ár.
„Það verður flogið út á laugardög-
um með Icelandair til Verona á
Ítalíu og svo tekur við um það bil
þriggja tíma rútuferð með stoppi
upp í ítölsku Alpana. Fólk getur
keypt skíðapassa strax í rútunni
og verið tilbúið á skíðin næsta dag,“
útskýrir Einar, sem bætir við að
skíðasvæðið sem um ræðir sé ein-
staklega fjölbreytt.
„Allar skíðalyftur eru nýjar
og snjór er framleiddur á allar
brautirnar áður en skíðatímabilið
hefst. Færið er því afskaplega gott
og veðurfar á þessum slóðum er
þurrt og Ítalirnir hér stæra sig af
þrjú hundruð sólardögum á ári.“
Einar mælir með því að allir nema
færustu skíðamenn fari í skíða-
skóla og þá sérstaklega börnin sem
hafa verulega gaman af. „Það hefur
einnig færst í vöxt að fólk leigi
sér skíði þegar þangað er komið
og verðið á slíku er nokkuð hag-
stætt.“ Bæði þorpin eru sérstaklega
sjarmerandi og státa af óviðjafnan-
legu útsýni. Í Selva, sem er afskap-
lega fallegt þorp, sameinast helstu
einkenni úr menningu og hefðum
Ítala og Austurríkis manna og mat-
seldin verður sérlega skemmtileg
blanda af matarvenjum beggja
landa. „Við erum með skíðapró-
gramm á hverjum degi í báðum
þorpum til að kynna skíðamögu-
leikana fyrir fólki og það er alveg
frjálst val hvaða daga fólk tekur til
að fara í slíkar ferðir. Það er hægt
að skíða yfir í aðra skíðabæi og uppi
í fjöllunum eru líka ótal veitinga-
staðir sem vert er að prófa.“
Frekari upplýsingar eru á www.
vita.is - amb
SPENNANDI SKÍÐA-
FERÐIR TIL ÍTALÍU
Vita býður upp á skemmtilegar ferðir til Selva og Madonna di Campiglio.
Fjölbreyttar brekkur Á Ítalíu eru brekkur fyrir byrjendur og lengra komna.
Gott færi Snjór allan veturinn.
Frábær staðsetning Útsýnið í Selva er stórbrotið og fallegt.
Veitingastaðurinn Silfur
Hádegi: 3.500,-
Fim. - lau. kvöld: 6.900,-
Sun. - mið. kvöld: 5.900,-
Pantaðu tímanlega Kemur þú langt að?