Fréttablaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 96
68 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Sjö ár eru liðin síðan
Manchester United tókst að vinna
Chelsea á Stamford Bridge í Lund-
únum en þar munu liðin á morgun
eigast við í toppslag helgarinnar í
ensku úrvalsdeildinni. Chelsea er
á toppnum eins og er og getur með
sigri aukið forystu sína á Man.
Utd í fimm stig. Sigri United kom-
ast þeir rauðklæddu hins vegar á
toppinn.
United hefur þó aðeins unnið
einn af síðustu tíu leikjum sínum á
heimavelli Chelsea. Alex Ferguson,
stjóri liðsins, vill bæta úr því.
„Við viljum bæta árangur okkar
á þessum velli,“ sagði Ferguson
í gær. „Hann hefur ekki verið
það góður á undanförnum árum.
Við höfum gert nokkur jafntefli
en ekkert meira en það. Okkur
gekk áður fyrr mun betur á Stam-
ford Bridge en höfum gefið eftir
á síðustu árum. Leikmenn vita
hversu mikilvægur leikurinn er og
frammistaða þeirra skiptir miklu
máli.“
Ferguson á von á því að þeir
Nemanja Vidic og Dimitar
Berbatov verði báðir klárir í slag-
inn en þeir hafa átt við meiðsli að
stríða. Rio Ferdinand og Ji-Sung
Park eru þó báðir meiddir og þá
verður Gary Neville í banni.
Hjá Chelsea er Jose Bosing-
wa enn meiddur en allir aðrir eru
klárir í slaginn, einnig þeir Yuri
Zhirkov og John Obi Mikel sem
hafa verið að glíma við meiðsli.
Á sama tíma í fyrra var Chel-
sea með fimm stiga forystu á
United í deildinni. United varð
þó meistari um vorið og lauk
tímabilinu með sjö stiga forystu
á Chelsea. Það getur því margt
breyst enn þó svo að Chelsea nái
aftur fimm stiga forystu nú.
„Í mínum huga er þetta ekki
úrslitaleikur um titilinn,“ sagði
Ferguson. „Þetta gæti vissulega
verið mikilvægur leikur og það
kann að vera gott að hafa unnið
þennan leik þegar við hugsum til
baka í maí næstkomandi. En það er
erfitt að koma fyrir sig mikilvægi
leiksins nú.“
United hefur byrjað mun betur í
haust en það gerði á síðasta tíma-
bili og það kann að valda andstæð-
ingum þeirra áhyggjum. Chelsea
er þó á góðu skriði og hefur skor-
að alls níu mörk í síðustu tveimur
deildarleikjum sínum. Didier
Drogba er í miklu stuði og hefur
til þessa skorað tólf mörk í fjór-
tán leikjum í öllum keppnum með
Chelsea.
„Þetta verður mjög áhugaverður
leikur og við erum ánægðir með
að þessi leikur skuli fara fram nú
því okkur hefur gengið mjög vel,“
sagði Carlo Ancelotti, stjóri Chel-
sea. „En við vitum að þetta verður
erfiður leikur. Manchester United
er með mjög sterkt lið og er komið
áfram í Meistaradeildinni, rétt
eins og við. Þeim gengur einnig
mjög vel í úrvalsdeildinni. En öll
lið hafa sína veikleika og það er
ekkert lið ósigrandi.“
Chelsea er eina liðið sem hefur
enn ekki tapað fyrir öðru stórliði
í ensku úrvalsdeildinni í haust.
Chelsea vann 2-0 sigur á Liverpool
en síðarnefnda liðið vann Unit-
ed með sama mun um þarsíðustu
helgi. United vann að sama skapi
góðan sigur á Arsenal í haust.
Hafa ber einnig í huga að þar
sem Chelsea og United mætast inn-
byrðis um helgina er kjörið tæki-
færi fyrir Arsenal að blanda sér
enn meira í toppbaráttuna. Liðið
er sem stendur þremur stigum á
eftir United en á leik til góða. Liðið
mætir Wolves í dag en Arsenal
hefur ekki tapað þar síðan 1978.
Umferðinni lýkur svo á mánu-
dagskvöldið þegar Liverpool tekur
á móti Birmingham sem hefur
reyndar ekki tapað síðustu þremur
leikjum sínum á Anfield. Ef úrslit
annarra leikja um helgina verða
Liverpool óhagstæð getur liðið
verið komið niður í níunda sæti
deildarinnar þegar leikurinn hefst
á mánudagskvöldið.
eirikur@frettabladid.is
United ekki unnið á Brúnni í sjö ár
Chelsea tekur á morgun á móti Manchester United í toppslag helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Með
sigri getur Chelsea tryggt sér fimm stiga forystu á toppnum áður en tveggja vikna landsleikjafrí tekur við.
USS Patrice Evra sendir Michael Ballack skilaboð þegar United og Chelsea áttust við í
leiknum um Samfélagsskjöldinn í ágúst síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
hefur jafnað sig á axlarmeiðslum
sínum og getur spilað með AS
Monaco í frönsku úrvalsdeildinni
á nýjan leik. Hann hefur verið
frá í þrjár vikur en gæti feng-
ið tækifæri í dag þegar Monaco
mætir botnliði Grenoble klukkan
18 í dag.
Eiður Smári hefur aldrei spilað
heilan leik með Monaco. Þrívegis
hefur hann verið í byrjunarliðinu
og einu sinni kom hann inn á sem
varamaður. Hann á enn eftir að
skora sitt fyrsta mark í Frakk-
landi.
Monaco hefur þó gengið vel
síðan hann kom til liðsins. Liðið
tapaði að vísu fyrir toppliði
Bordeaux um síðustu helgi, 1-0,
en er í þriðja sæti deildarinnar
með 21 stig eftir ellefu leiki.
Grenoble hefur hins vegar
gengið skelfilega í haust, tapað
öllum ellefu leikjum sínum til
þessa og er með markatöluna 5-23.
Fleiri leikmenn Monaco hafa
náð sér af meiðslum og geta spil-
að í dag. Juan Pablo Pino hefur
verið frá síðan í
september vegna
meiðsla á kálfa en
er klár í slaginn
í dag. Þá er Chu-
Young Park búinn
að jafna sig eftir
smávægileg
meiðsli
sem hann
hlaut á
æfingu í
síðustu
viku.
- esá
Eiður Smári Guðjohnsen:
Orðinn heill
heilsu á ný
EIÐUR SMÁRI
GUÐJOHNSEN
FÓTBOLTI Fernando Torres
er farinn til Spánar þar
sem hann er sagður ætla
að leita sér læknisaðstoð-
ar vegna þeirra meiðsla
sem hafa plagað hann að
undanförnu.
Torres hefur verið að
glíma við meiðsli í nára og
hefur af þeim sökum ekki
náð að beita sér fyllilega í
leikjum Liverpool í haust.
Læknar Liverpool hafa
reynt að leysa vandann en nú
hefur Torres ákveðið að leita
sér einnig læknisaðstoðar í
Valencia á Spáni.
Margir leikmenn Liverpool
hafa átt við meiðsli að stríða
en orðrómur hefur verið á
kreiki um að bæði Steven
Gerrard og Torres þurfi
að gangast undir aðgerð
til að fá bót meina
sinna. - esá
Liverpool hefur áhyggjur af meiðslum Torres:
Spænskir læknar
skoða meiðsli Torres
TORRES Spilaði
sárþjáður gegn Lyon í
Meistaradeildinni.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Alþjóðadómstóll íþrótta-
mála (CAS) hefur tekið til greina
áfrýjun enska úrvalsdeildarfélags-
ins Chelsea gegn banni við leik-
mannakaupumsem alþjóðaknatt-
spyrnusambandið (FIFA) dæmdi
Lundúnafélagið í.
Samkvæmt banni FIFA mátti
Chelsea ekki fá til sín nýja leik-
menn fyrr en árið 2011 vegna þess
að félaginu var gefið að sök að hafa
sannfært hinn átján ára gamla
Gael Kakuta um að svíkja samn-
ing sinn við franska liðið Lens til
þess að skrifa frekar undir samn-
ing við Chelsea.
CAS ákvað að áflétta banninu
þangað til endanleg niðurstaða
yrði tekin í málinu en ekki liggur
fyrir að svo stöddu hvenær það
gæti orðið.
Að öllu óbreyttu getur Chelsea
nú tekið þátt í félagaskiptaglugg-
anum sem opnast í janúar.
Líklegt er að Lundúnafélagið
muni þá stökkva til og fjárfesta
grimmilega, ekki síst þar sem lykil-
mennirnir Didier Drogba, Salomon
Kalou, Michael Essien og John Obi
Mikel eru líklegir til þess að missa
af stærstum hluta janúarmánaðar
vegna Afríkukeppninnar.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum
er Chelsea sagt tilbúið að eyða í það
minnsta fimmtíu milljónum punda
í nýja leikmenn í janúar. - óþ
Leikmannakaupabanni Chelsea aflétt tímabundið:
Chelsea getur keypt
á ný í janúar
UPP MEÐ VESKIÐ Chelsea getur líklega
keypt menn í janúar. NORDIC PHOTOS/GETTY
TOPPSLAGUR!
Á MORGUN KL. 15:30
5.290 KR.Á MÁNUÐI Í 3 MÁNUÐIFYRIR KREDITKORTHAFA VISA
FRÁBÆRT ÁSKRIFTARTILBOÐ
Á AÐEINS
CHELSEA
MAN.UTD.