Fréttablaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 39
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
M
örgum dettur fyrst
í hug tangó þegar
minnst er á Buen-
os Aires. Og skyldi
engan undra, tangóinn er inn-
gróinn í menningu lands og þjóð-
ar, mun dýpra en ætla mætti. Þá
gildir einu hvort íbúar borgarinn-
ar kunna fótafimi tangósins eða
ekki, enda fer því fjarri að allir
séu fagmenn á því sviði. En tang-
óinn birtist með þrenns konar
hætti; að horfa á tangó, að hlusta á
tangó og að dansa tangó. Að horfa
á atvinnumannasýningar í þar til
gerðum húsum og áhugamanna-
sýningar útí á götu eða á barnum,
hlusta á tangótónlist á götunni, á
veitingahúsum og börum, í leigu-
bílum og frá einkaheimilum.
Sjarminn við tangó í Argentínu
er að allir dansa tangó og öllum er
alvara. Enginn gerir grín að þeim
sem „reynir“ að dansa tangó, því
það er líkt og allir séu sama sinnis;
það eiga allir að dansa tangó. Allir
eiga að hlusta, heyra, sjá og njóta.
Ekki þarf heldur að kynna arg-
entínska nautakjötið, en þó er
ákveðinni forvitni svalað með því
að láta reyna á það fyrir alvöru.
Og já, trúið mér, það stendur undir
öllu því lofi sem yfir það hefur
verið ausið. Lomo a la parilla, eða
grilluð nautalund, er nokkuð sem
allir veitingastaðir eru stoltir af.
Grillið er reyndar í hávegum haft
hér um slóðir, lykilatriði allra veit-
ingastaða.
„Evrópsk“ borg
Buenos Aires er án efa „evrópsk-
asta“ borgin í Rómönsku-Ameríku.
Í ljósi sögunnar er það kannski
ekki skrýtið, því um 90 prósent
þjóðarinnar eru afkomendur
Evrópubúa, sem er mun hærra
hlutfall en í nokkru öðru landi
Suður-Ameríku. Fyrir utan hin
hefðbundnu og rótgrónu spænsku
tengsl, þá fjölgaði innflytjend-
um mjög til Argentínu á 19. öld
og voru ítalskir suðvesturfar-
ar þar fremstir í flokki. Af þeim
sökum eru mörg ættarnöfn í Arg-
entínu ítölsk og ekki leynir hann
sér ítalski sönglandinn í hinum
sérstaka spænskuhreim hér um
slóðir.
En það er ekki bara fólkið sem
er „evrópskt” í hinum klassíska,
miðalda, skilningi. Allt borgar-
skipulagið minnir á evrópskar
stórborgir, jafnvel þær allra stór-
kostlegustu á borð við París og
Madríd. Sá sem þetta skrifar hefur
búið bæði í Frakklandi og á Spáni
og fyllist vellíðunar-nostalgíu við
það eitt að ganga um stræti og torg
Buenos Aires.
NÓVEMBER 2009
FRAMHALD Á SÍÐU 6
Skíðað í ítölsku Ölpunum Spennandi
ferðir til Madonna og Selva. SÍÐA 8
TANGÓ, TÍSKA OG NAUTAKJÖT
Glæsilegar byggingar,
breiðgötur, mannþröng
á strætum og torgum,
gosbrunnar, kaffi hús á
hverju strái, listasöfn og
gallerí, hátískuhús og
hönnun, tónlist við hvert
fótmál. Við erum ekki í
París eða Róm, heldur
í Buenos Aires, syðstu
stórborg Suður-Ameríku.
Þorfi nnur Ómarsson veitir
okkur innsýn í þessa
óvæntu borg.
Jól á fjarlægum
slóðum Öðruvísi
hátíðarhöld
SÍÐA 10