Fréttablaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 76
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
48 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Úps!
Lof mér að
ná þessu
upp úr!
Ég verð
að kom-
ast héðan
burt!
Er þetta
eðlilegt?
Bless
pabbi. Ég
elska þig.
Hvað
sagði
hann?
Að hann
elskaði
þig!
En hvað
það var
sætt!
Og
fallegt.
Og hugul-
samt.
Og
óvænt.
Þetta
getur ekki
boðað
gott.
ÞAÐ ER
FYLGST
NÁIÐ
MEÐ ÞÉR
FÉLAGI!
Flottur litur.
Já, þessi blái
tónn er miklu
betri en venju-
legur hvítur!
Jæja, eigum
við að prófa
þær?
Ertu brjálaður?? Ég
læt ekki þessi skít-
ugu föt inn í nýju
þvottavélina mína!
Ég
líka.
Ég hélt að ég myndi aldrei
verða spennt yfir því að fá nýja
þvottavél og
þurrkara, en
það er ég!
Síendurtekin martröð Marcels Marceau
Sko, ég er búinn að fara
um hverfið og það heyrði
enginn byssuskot. Byssu-
maðurinn hlýtur að hafa
notað hljóðdeyfi...
Íslenskum fjölmiðlum er að vissu leyti vorkunn að vera ekki betri en þeir eru.
Smæð markaðarins gerir það einfald-
lega að verkum að fjármagnið leyfir ekki
að fjöldi starfskrafta og vinnustunda á
bak við hvern dálksentímetra sé sam-
bærilegur við það sem gerist víðast hvar
erlendis. Þetta er þó auðvitað engin afsök-
un fyrir því almenna metnaðarleysi sem
til dæmis lýsir sér í því hve allir íslensk-
ir ritmiðlar virðast hafa einlægan áhuga á
því hvort Amy Winehouse var í nærbuxum
eða ekki síðast þegar hún fór á djammið.
AUÐVITAÐ fjalla íslenskir fjölmiðlar
mestanpart um alvarlegri mál. Nýlegt,
skelfilegt mansalsmál, sem verið er að
rannsaka, hefur þannig fengið talsverða
umfjöllun og eðlilega vakið almennan
óhug. Rannsókn hefur leitt í ljós svo
víðtæk og fjölbreytt afbrot, ofbeldi og
hvers konar svik, að nú er verið
að rannsaka málið sem skipu-
lagða glæpastarfsemi. Þó
er ekki laust við að manni
finnist ekki hafa komið
alveg nægilega skýrt fram
nákvæmlega hvað í man-
sali felst. Það er í raun ekk-
ert annað en þrælahald, oft
í formi nauðungarvændis,
þ.e.a.s. þaulskipulagðra
raðnauðgana á fátækum
stúlkum í ábataskyni fyrir þriðja aðila.
Ástæðulaust er að fara fegri orðum um
athæfið.
ILLU heilli óttast ég að ástæða þess hve
mikið hefur verið fjallað um þetta mál að
undanförnu sé ekki sú hve ofbeldi af þessu
tagi er einstaklega svívirðilegt, heldur sú
að málið tengist sjúkri kynhegðun, lesefni
sem allir óvönduðustu fjölmiðlar veraldar
gera sér einmitt sérstakan mat úr að velta
sér upp úr. Nýjasta útspilið sýnir nefni-
lega að dómgreind og siðferði hafa ekki
roð við dramatískum uppslætti. Þar var
gert mikið úr því að handtaka konu nokk-
urrar, sem tengist málinu, skyldi ekki fara
fram í kyrrþey og að henni skyldi sýnd
sú tillitssemi að bíða eftir ömmunni til að
passa börnin áður en farið var með hana á
lögreglustöðina til yfirheyrslu um meinta
aðild hennar að viðurstyggðinni. Vafalaust
er það áfall fyrir barn að sjá móður sína
handtekna, en að óþægileg lífsreynsla af
því tagi þyki eiga erindi í umfjöllun um
þá lífsreynslu að vera haldið í þrælkun og
nauðgað ítrekað lýsir engu öðru en sið-
blindu af stærðargráðu sem engin orð fá
gert tæmandi skil.
EN KANNSKI er ekki við öðru að búast í
landi þar sem engin pressa hefur markað
sér þá meðvituðu ritstjórnarstefnu að vera
aldrei hlandgul.
Aumingja þrælasalinn
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki