Fréttablaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 36
36 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
V
ið Íslendingar erum kaupóð-
ir, en það eru takmörk fyrir
öllu. Klukkan er að verða sex
á föstudagsmorgni og það er
enginn í Office 1 í Skeifunni.
Verslunin hefur haft opið allan
sólarhringinn síðan í maí. Það er sem sé
hægt að bruna hingað ef maður vaknar með
andfælum klukkan þrjú og þarf nauðsyn-
lega að kaupa heftara.
Kósí á kvöldin
Halló? Er einhver hérna? Jú, þarna kemur
einhver. Hann heitir Jan Henrik Winter og
reynist vera finnskur. Talar þó pottþétta
íslensku. „Þetta dettur niður upp úr mið-
nætti, en það er mjög mikið að gera þangað
til þá. Svo er maður bara að fylla í hillurn-
ar og panta inn. Mjög gott,“ segir hann og
kann vel við næturvaktirnar. „Maður vinn-
ur í viku og á frí í viku. Ég vil miklu frekar
vinna svona en að vakna kl. 8 alla morgna.
Maður hefur allan daginn fyrir sig.“
Alræmdasta augnablik næturbúðanna í
Skeifunni var þegar maður í sveppavímu
ráfaði nakinn um búðirnar. Jan var ekki á
vakt þá.
„En það er nú samt mikið um að lið
af djamminu komi um helgar og labbi í
hringi. Besta spurningin sem maður heyr-
ir er: „Kemur einhver á nóttunni?“ og það
er bara eitt svar við því: Hva, ert þú ekki
hérna?“
„Fólk vill bara fá að versla í friði og kann
mjög vel við þennan möguleika að geta gert
það utan vinnutíma,“ segir verslunarstjóri
Office 1, Karl Gunnarsson. „Síðustu tvo
mánuðina hefur kúnnum fjölgað stórkost-
lega og það á örugglega eftir að aukast. Það
er mun meira kósí að gera þetta á kvöld-
in frekar en í einhverju stressi í pásu frá
vinnu.“
Rúntur á nammibar
Það er meira stuð í Hagkaupum við hliðina
og margt starfsfólk að raða í hillur. Það er
meira að segja einn kúnni. Mér sýnist hann
vera að kaupa banana. Hann tekur á sprett
þegar hann sér ljósmyndarann. Er þetta
kannski fyrrverandi útrásarvíkingur? Eða
vampíra?
„Það þýðir ekkert annað en að spila sókn-
arbolta í kreppunni,“ segir Gunnar Ingi Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa. „Það
hafði blundað í okkur lengi að bjóða upp á
þetta, en okkur þótti þetta lengi vel einum
of djörf hugmynd. Svo kýldum við á þetta
fyrir sléttu ári og viðtökurnar hafa komið
rosalega á óvart. Það er miklu meira að gera
en við áttum von á.“
Gunnar segir að oftast sé mikið að gera
á kvöldin. „Fólk kemur eftir kvöldmatinn
þegar börnin eru komin niður. Það er drjúg
traffík og kúnnar með heilu kerrurnar full-
ar af sérvöru. Fólk er þegar byrjað að gera
jólainnkaupin. Það kom okkur líka á óvart að
það eru fjölmargir sem vinna ekki 9-5 vinnu,
fólk sem er í öðrum takti, og það fjölmennir.
Maður er að sjá ný andlit á nóttunni.“
Skemmilegasta tíma vikunnar segir
Gunnar vera þegar klukkan slær miðnætti
á aðfaranótt laugardags. Þá lækkar nammi-
barinn um fimmtíu prósent. „Þá mætir rúnt-
urinn á svæðið og krakkarnir fylla á sig. Það
er nú betra að þeir séu að fylla á sig með
nammi, en einhverju öðru.“
Svangt fólk
Sú verslun sem byrjaði að hafa opið allan
sólarhringinn var 10/11 í Lágmúla. Fljótlega
var opnað líka í Austurstræti og nú eru allar
verslanir 10/11 alltaf opnar. Stóra spurningin
hlýtur að vera: Borgar þetta sig? „Við teljum
svo vera, já,“ segir Sigurður Reynaldsson,
framkvæmdastjóri 10/11. „Eftir að við byrj-
uðum að hafa eina og svo tvær búðir opnar
allan sólarhringinn vildum við bara einfalda
kerfið og hafa allar búðirnar opnar. Svo fólk
gæti sleppt því að athuga hvenær væri opið.
Viðbótarkostnaðurinn er ekki svo mikill.“
Hann segir eðlilega koma steindauða tíma
inn á milli – helst á milli kl. 3 og 5 á nótt-
unni – en svona í heildina sé næturvaktin að
skila árangri. „Við erum að baka og fylla á
búðirnar á nóttunni og það er alltaf renn-
irí. Um helgar er þetta fjörugra. Menn koma
svangir eftir puð á dansgólfinu og kaupa sér
eitthvað að borða. Áður var náttúrlega bara
hægt að fá pulsu og kók. Svo er fólk bara að
kaupa venjulegar matvörur. Hjón koma af
djamminu og kaupa mjólk og Cheerios til að
hafa í ísskápnum þegar krakkarnir koma úr
pössun.“
Nokkuð var talað um blóðug drykkjulæti
í Austurstrætinu þegar búðin var opnuð þar
fyrst, en Sigurður segir að það mál hafi aðal-
lega komið til vegna þess að öryggismálin
voru ekki nógu vel undirbúin. Nú eru þessi
mál komin í fastar skorður og friður kom-
inn á.
Andri Már Friðriksson er á vakt í 10/11 í
Austurstræti þegar ég mæti úr Skeifunni. Er
þetta hættuleg vinna? „Nei, nei. Ekki þegar
maður er með „bodyguard“ með sér á vakt,“
segir hann og bendir á fílefldan vörð í Secu-
ritas-búningi. Strákarnir eru að raða í hillur.
Það er dagrenning eftir þrjá tíma.
Verslað í skjóli nætur
Fjölmargar verslanir hafa nú opið allan sólarhringinn. Allar verslanir 10-11, tvær Hagkaups-
búðir, Office 1 og bensínstöðvarnar. Dr. Gunni reif sig upp fyrir allar aldir til að tékka á
stemningunni. Daníel Rúnarsson tók myndir.
NÆTURVAKTIRNAR BESTAR Jan Henrik Winter vinnur á meðan aðrir sofa. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HALLÓ! ER EINHVER HÉRNA!? Office 1 kl. 6.
ANDRI MÁR FRIÐRIKSSON Er með „bodyguard“ með sér á vaktinni.
NAMMIGRÍSIR
KOMAST Í FEITT
Hagkaup kl.
06:15.
Þegar sífellt fleiri landnámsmenn
koma sér fyrir í sveitinni og glóandi
hraun streymir yfir blómlega trölla-
byggð eru tröllin í vanda. Hvað er
til ráða?
Spennandi tröllasaga byggð á
íslenskri þjóðtrú eftir Steinar
Berg og Brian Pilkington.
TRÖLL ÍVANDA