Fréttablaðið - 07.11.2009, Page 6

Fréttablaðið - 07.11.2009, Page 6
6 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR Fjölskylduspil á frábæru tilboði! Vr. A825 85060692 Fullt verð 5.990 kr. 3.990 kr. auk 1.000 punkta x2 TI LB O Ð ALÞINGI Gylfi Magnússon, efna- hags- og viðskiptaráðherra, segir að afskriftir lána vegna banka- hrunsins verði óhjákvæmilega þær mestu sem dæmi eru um í sögu vestrænna hagkerfa. „Lík- lega tapast fjórar til fimm lands- framleiðslur í hagkerfinu,“ sagði Gylfi í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær. Tapið lendir að lang- mestu leyti á erlendum kröfuhöf- um bankanna. Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, efndi til umræðu um afskriftir skulda og samkeppnisstöðu fyrirtækja. Hann sagði nauðsynlegt að tryggja gagnsæi og réttlæti við afgreiðslu málefna fyrirtækja í ríkisbönkun- um. „Af hverju fá sumir afskriftir en aðrir ekki?“ spurði Guðlaugur og sagði að viðskiptaráðherra virt- ist ekki eiga önnur svör en þau að skipa nýjar nefndir til að fjalla um málið. Gylfi Magnússon sagði að taka þyrfti tillit til samkeppnissjónar- miða og skoða hvort endurreisa ætti fyrirtækjasamsteypur sem valdið hefðu fjölmörgum vanda- málum í samkeppnismálum á undanförnum árum. „Mín skoðun er að það eigi ekki að gera nema í algjörri neyð,“ sagði Gylfi Magnússon. Eftirlit verði haft með því að verklagsreglum sé fylgt og ekki afskrifað meira en þarf til að eftir standi lífvænleg fyrir- tæki, sem geta staðið í skil- um. Ekki eigi að færa nýjum eða gömlum eigendum neinar gjafir. Sigríður Ingi- björg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að sextíu til sjötíu prósent fyrirtækja í land- inu þyrftu á aðstoð að halda. Fjölda fyrirtækja hefði verið stjórnað á óábyrgan hátt. Þau hefðu skuldsett sig gríðarlega. Þessum fyrirtækj- um ætti að skipta upp og setja þau á markað, „þannig að íslensk heim- ili geti fjárfest í þessum fyrirtækj- um og þannig stuðlað að endurreisn Íslands“. Gunnar Bragi Sveinsson, þing- maður Framsóknarflokksins, sagð- ist sakna þess að ekki væru til skýr- ar, einfaldar og gagnsæjar reglur um málið og spurði hvort rétt væri að Alþingi setti lög um skilyrði afskrifta og upplýsingaskyldu bankanna. „Það er alveg ljóst að það er mikið geðþóttavald í gangi varðandi það hverjir fá afskrifað- ir skuldir og hvernig það er gert. Þetta býður upp á spillingu,“ sagði Gunnar Bragi. peturg@frettabladid.is Afskriftir nema 4-5 landsframleiðslum Ekki á að endurreisa viðskiptasamsteypur nema í neyð, sagði viðskiptaráðherra í umræðum um afskriftir lána fyrirtækja á Alþingi í gær. ALÞINGI Þingmenn lýstu áhyggjum af því að geðþóttaákvarðanir byggju að baki ákvörðunum ríkisbankanna um afskriftir á lánum fyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GUNNAR BRAGI SVEINSSON GUÐLAUGUR Þ. ÞÓRÐARSON GYLFI MAGNÚSSON SIGRÍÐUR INGI- BJÖRG INGADÓTTIR HEILBRIGÐISMÁL Sóttvarnalæknir, Haraldur Briem, telur að um fimmtíu þúsund Íslendingar hafi veikst nú þegar af svínainflúensu. Hún sé ekki lengur í sókn, þegar litið er á landið í heild. Frá og með mánudeginum 16. nóvember geta allir landsmenn pantað tíma á heilsugæslustöðvum fyrir bólusetningu gegn svínaf- lensunni. Viku síðar, mánudag- inn 23. nóvember, verður byrjað að bólusetja þá sem fyrstir skráðu sig. Alls hafa verið bólusettir um þrjátíu þúsund manns hérlendis og áfram verður haldið af full- um krafti að bólusetja sjúklinga í skilgreindum forgangshópum með því bóluefni sem til er og með bóluefni sem væntanlegt er næstu tvær vikurnar. Afleiðingar inflúensufaraldurs- ins geta verið mjög alvarlegar eins og dæmin sanna hérlendis og erlendis. Sóttvarnalæknir hvetur því vanfærar konur og þá sem eru með „undirliggjandi sjúk- dóma“ til að panta þegar í stað tíma fyrir bólusetningu á næstu heilsugæslustöð. Þá er eindregið mælst til þess að aðstandendur barna, ung- menna og aldraðra með „undir- liggjandi sjúkdóma“ sjái til þess að viðkomandi láti bólusetja sig. - jss SÓTTVARNALÆKNIR Haraldur Briem telur að um fimmtíu þúsund hafi veikst af svínaflensu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Almenn skráning í bólusetningu gegn svínaflensu hefst 17. nóvember: Um 50 þúsund hafa veikst LÖGREGLUMÁL Óljóst er hvort fjár- málastjóri Knattspyrnusam- bands Íslands framvísaði korti sambandsins á nektarstað í Sviss eða hvort það var tekið ófrjálsri hendi. Svissneski vefmiðilinn 20minu- tenonline.ch segir frá því að starfsmaður KSÍ og sambandið sjálft hafi verið rukkað fyrir jafnvirði átta milljóna króna eftir næturheimsókn starfsmannsins á strípibúllu í Zürich. Af þessu hafi spunnist dómsmál. Samkvæmt yfirlýsingu KSÍ átti heimsóknin sér stað fyrir fimm árum. „Það er ljóst að okkar ágæti starfsmaður sýndi dómgreindar- leysi með því að vera þarna með kortið en hann var náttúrlega ekki að versla fyrir kortið heldur var það bara straujað,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður Knatt- spyrnusambands Íslands, sem neitar því að önnur sambæri- leg atvik hafi komið upp með greiðslukort KSÍ. Geir segir að innan KSÍ hafi verið ákveðið að fjármálastjór- inn héldi áfram enda hefði hann unnið flekklaust starf. Hann er enn hjá sambandinu. „En hann bar ábyrgð á þessu korti og hann varð náttúrlega að líða fyrir það og það var tekin ákvörðun 2005 um að hann greiddi reikninginn til kreditkortafyrirtækisins.“ Aðspurður kveðst Geir alls ekki vera viss um að fjármálastjór- inn hafi yfirhöfuð ætlað að nota kort KSÍ á nektarstaðnum. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, vill ekkert um það segja hvort fjármálastjórinn hafi í raun ætlað að nota kortið. „Aðal- gallinn er sá að kortin voru mis- notuð af mönnum sem hafa sumir þegar verið dæmdir í fangelsi og aðrir viðurkennt brot sín með því að endurgreiða hluta af þessum fjármunum til hans.“ - gar Fjármálastjóri KSÍ rukkaður um milljónir fyrir heimsókn á nektarstað í Zürich: KSÍ rukkað fyrir kampavín og klám GEIR ÞORSTEINSSON Formaður KSÍ segir greiðslukortamál fjármálastjóra sambandsins vera einsdæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR SJÁVARÚTVEGSMÁL Nýlokið er haust- könnun Hafrannsóknastofnunar- innar á rækjumiðunum á Vest- fjörðum og á fjörðum og flóum norðanlands. Minna fannst af þorski og var hann langt undir meðaltali áranna 2000-2009. Einn- ig var minna af ýsu frá því í fyrra og var magn hennar undir meðal- tali síðustu tíu ára. Útbreiðsla rækju var svipuð og í fyrra í Arnarfirði. Vísitala stofn- stærðar var lægri en árið 2008. Stærð rækju var nálægt meðal- tali. Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að rækjuveiðar verði leyfð- ar í Arnarfirði veturinn 2009-2010 með 300 tonna hámarksafla. - shá Haustkönnun Hafró: Minna af þorski og ýsu Líst þér vel á hugmyndir um framkvæmdir við Landspítala? Já 42,9 Nei 57,1 SPURNING DAGSINS Í DAG Hefur þú fengið svínaflensu? Segðu skoðun þína á vísir.is KJÖRKASSINN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.