Fréttablaðið - 07.11.2009, Side 16
16 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Stefán Haukur Jóhannesson
sendiherra verður aðal-
samningamaður Íslands
í aðildarviðræðunum við
Evrópusambandið og fer
fyrir íslensku samninga-
nefndinni sem skipuð var
í vikunni. Björn Þór Sig-
björnsson settist niður með
Stefáni Hauki og spurði
hann um skrefin fram
undan, stór og smá. Hann
segist þegar hafa fengið
góð viðbrögð við svörum
Íslands við 2.500 spurninga
lista Evrópusambandsins.
„Nú bíðum við eftir að fram-
kvæmdastjórnin ljúki yfirferð
sinni yfir svör okkar og dragi upp
álit sitt á þeim. Framkvæmda-
stjórnin telur svör okkar efnis-
lega góð og er ekkert að vanbún-
aði að ljúka þeim störfum. Þegar
álitið liggur fyrir taka aðildarríki
sambandsins það til meðferðar á
leiðtogafundi undir lok þessa árs
eða snemma á næsta ári. Sá fund-
ur tekur svo endanlega ákvörðun
og við eigum ekki von á öðru en að
hún verði jákvæð og niðurstaðan
sú að hefja formlegar viðræður.
Þá tekur við vinna við að bera
saman löggjöf Íslands og Evr-
ópusambandsins og sjá hvað fer
saman og hvað ekki. Þannig ein-
angrum við þau mál og svið sem
kalla á breytingar hjá okkur eða
samninga um sérlausnir.
Við eigum líka eftir að útfæra
nánar samningsmarkmið Íslands
sem byggja á áliti utanríkismála-
nefndar Alþingis frá í sumar. Það
er vegvísir okkar og leiðarljós.
Evrópusambandið mun líka þurfa
að búa til sinn samningsramma.“
Hefjast eiginlegar samninga-
viðræður með samanburðinum á
löggjöfinni?
„Þessi rýnisvinna, sem svo er
kölluð, er í raun undirbúningur að
samningaviðræðunum. Samninga-
hóparnir koma að henni en í samn-
ingunum sjálfum kemur til minna
kasta og samninganefndar innar að
ræða við þá sem þessu sinna Evr-
ópusambandsmegin. Það gerist
bæði á formlegum og óformlegum
fundum.
Meginþungi vinnunnar af okkar
hálfu fer þó fram í Reykjavík með
nánu samstarfi við Alþingi, sér-
staka ráðherranefnd, hagsmuna-
aðila og aðra. Þá verður sérstakur
samráðsvettvangur settur á lagg-
irnar og við munum gæta þess að
halda öllum vel upplýstum um öll
skref sem stigin verða.“
Málið er gríðarlega viðkvæmt
pólitískt. Munið þið geta skilið
pólitíkina frá tæknilegum og fag-
legum úrlausnarefnum?
„Það tel ég já, enda leggjum við
ríka áherslu á að vinna þetta af
fagmennsku og vandvirkni. Með
mér í samninganefndinni eru
sautján mjög hæfir einstaklingar,
sem búa að sérþekkingu og samn-
ingareynslu. Það hefur sýnt sig að
við Íslendingar getum staðið ágæt-
lega að svona málum. EES-samn-
ingarnir voru til dæmis viðkvæm-
ir um leið og þeir voru viðamiklir
og flóknir. Ég held að flestir geti
verið sammála um að útkoman úr
þeim hafi verið ágæt. Við búum að
þeirri reynslu.“
Þú þekkir vel til Evrópusam-
bandsins, býstu við að samninga-
menn þess verði harðsnúnir?
„Við munum vafalítið þurfa að
takast mjög hart á um ákveðin
mál en þetta á auðvitað eftir að
koma í ljós. Viðræðurnar eru ekki
hafnar og því vil ég fara varlega
í að bollaleggja um það. Verkefni
okkar verður að tryggja hagsmuni
Íslands, finna lausnir á okkar
málum og ná sem hagstæðustum
samningi. Það mun svo sýna sig
hve sveigjanlegt Evrópusambandið
verður.“
Hefurðu til dæmis trú á að
hægt sé að ná samningi um sjávar-
útvegsmál sem þjóðin og útgerðar-
mennirnir fella sig við?
„Það verður bara að koma í ljós.
Við vitum að sjávarútvegsmálin
verða meðal erfiðustu mála og við
útfærslu samningsmarkmiðanna
verður haft náið samráð við hags-
munaaðila. Það hefur hins vegar
sýnt sig að Evrópusambandið
hefur viljað finna sérlausnir
sem ný aðildarríki geta unað við.
Reyndin sýnir að sambandið er
opið og menn þar á bæ hafa gefið
til kynna að þeir vilji reyna að
finna lausn á málum sem kemur
til móts við kröfur Íslendinga. En
allt mun þetta skýrast við samn-
ingaborðið.“
Hefur Evrópusambandið ein-
hvern áhuga á aðild Íslands?
„Já, ég held að það hafi sýnt sig
á þeim viðbrögðum sem við höfum
fengið við umsókninni sem eru
almennt mjög jákvæð. Ég heyri
það líka í samtölum mínum við
starfsbræður og -systur innan
Evrópusambandsins, hvort sem
það eru starfsmenn framkvæmda-
stjórnarinnar, fulltrúar aðildar-
ríkjanna eða fólk á Evrópuþing-
inu. Allar vísbendingar eru í þá
átt að innan Evrópusambandsins
sé mikill stuðningur við mögulega
aðild okkar.“
Hefur Evrópusambandið ein-
hverja hagsmuni af aðild okkar?
„Við höfum margt fram að
færa og ég held að menn þurfi að
gæta þess að einblína ekki bara
á stóru málin sem eru mikilvæg
yfir okkur, það er að segja sjávar-
útvegsmálin, landbúnaðarmálin
og byggðamálin. Það þarf líka að
horfa til þeirrar þekkingar sem
við getum miðlað, til dæmis varð-
andi sjálfbæra nýtingu náttúru-
auðlinda, ekki síst nýtingu ork-
unnar. Við höfum margt að leggja
til umhverfismála, loftlagsmála,
norðurslóðamála og auðvitað
sjávarútvegsmála. Raunar horfir
Evrópusambandið til þess hvernig
við sinnum okkar sjávarútvegs-
málum nú þegar.“
Hvaða áhrif hefur það ytra að
bara hálf íslenska ríkisstjórnin vill
í Evrópusambandið?
„Samstarfsaðilar okkar þar eru
meðvitaðir um það og gera í sjálfu
sér engar athugasemdir við það.
Þetta er lýðræðislegt ferli sem skil-
aði því að ríkisstjórnin fékk umboð
til að sækja um aðild. Öllu máli
skiptir að ríkisstjórnarflokkarnir
voru sammála um að þjóðin ákvæði
hvort skrefið verður stigið til fulls í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er lif-
andi lýðræði sem birtist meðal ann-
ars í því að þingheimur er ekki ein-
huga og ríkisstjórnin hefur þá línu
sem hún hefur.
Menn spyrja um þetta og ég
útskýri málið. Það er svo raunar
þannig að ríkisstjórnir hafa ekki
alltaf verið einhuga um stór mál er
varða Evrópusambandið.“
En skoðanakannanir, sú nýjasta
sýnir þriðjungs stuðning við aðild?
„Aðalatriðið sem varðar okkur er
að umboðið liggur fyrir og það er
búið að sækja um. Okkar hlutverk
er einfaldlega að stíga næstu skref
sem felast í að ná sem hagstæðustu
samningum. Þjóðin verður upplýst
um hvað þetta snýst og við munum
stuðla að því að umræðan verði
sem upplýstust. Evrópusambandið
er alvant því að afstaða almennings
sveiflist til og frá.“
Kunna bankahrunið og efna-
hagskrísan og ég tala nú ekki um
Icesave-málið að hafa áhrif á
afstöðuna gagnvart okkur og gang
viðræðnanna?
„Innan Evrópusambandsins hefur
verið mikill velvilji í okkar garð og
það hefur ekki breyst. Það sést til
dæmis á að aðeins liðu ellefu dagar
frá því að við lögðum fram aðildar-
umsókn og þar til henni var vísað til
framkvæmdastjórnarinnar. Það er
vísbending um að menn ætla ekki að
halda þessum málum gegn okkur í
þessu ferli. Menn vita að þetta hefur
verið erfitt mál fyrir okkur Íslend-
inga en ekkert bendir til annars en
að Evrópusambandið komi að samn-
ingsborðinu með einbeittan vilja til
að leiða viðræðurnar til lykta.
Þú hefur tekið þátt í fjölmörg-
um samningaviðræðum, bæði fyrir
Íslands hönd og eins alþjóðastofn-
anir. Finnst þér þetta verkefni ögr-
andi og spennandi?
„Já það er óhætt að segja það
og ég hlakka til þess. Verkefnið er
stórt en ég hef svo sem ekki kin-
okað mér við að taka að mér stór
mál. Ég mun gera mitt besta til að
takast á við þetta og kosta öllu til
svo að við náum sem bestum samn-
ingum. Fólkið sem kallað hefur
verið til verka með mér er og gott
og með víðtæka reynslu og ég held
að við getum gert mjög góða hluti
saman.“
Hver er þín prívatskoðun á ESB?
„Hún er ekki aðalatriði enda er ég
ekki kallaður til vegna minna skoð-
ana. Ég er embættismaður og mun
ganga til þessa verks af bestu sam-
visku og gera mitt allra besta í sam-
ræmi við umboð mitt.“
FRÉTTAVIÐTAL: Aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið
Búum að góðri reynslu
Stefán Haukur vill ekki geta sér til um hve langan tíma samningaviðræðurnar
við Evrópusambandið geta tekið. Það hafi vitanlega sitt að segja að Ísland
hefur tekið upp stærstan hluta lagabálks ESB með aðild sinni að Evrópska
efnahagssvæðinu auk þess sem Kaupmannahafnarskilyrðin svonefndu sem
varða lýðræði, réttarríkið og fleira hafi verið innleidd hér að mestu. Talsverður
tími hefur farið í umfjöllun um þau í viðræðum Balkanríkjanna. „Það má
horfa til þess að viðræður Finnlands og Svíþjóðar á sínum tíma tóku um eitt
og hálft ár og til þess hefur Olli Rehn, stækkunarstjóri sambandsins, vísað.
Hagsmunirnir munu ráða hraðanum en ekki einhver tímafrestur.“
HAGSMUNIR RÁÐA FÖR EN EKKI TÍMINN
Stefán Haukur býr að mikilli reynslu
af samningaviðræðum og erfiðum
deilum á alþjóðavettvangi. Hann
var fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóða-
viðskiptastofnuninni, WTO, í Genf
og leiðir samningaviðræður um
aðild Rússa að stofnuninni. „Þessar
viðræður hafa verið allt annað en
auðvelda og ég oft þurft að standa
í víglínunni,“ segir hann.
Hann var líka formaður í einni af
burðarnefndum Doha viðræðn-
anna innan WTO, þeirri sem fjallar
um markaðsaðgang fyrir iðnaðar-
vörur. „Þar eru gífurlegir hagsmunir
í húfi og sem formaður stóð ég
oft í eldlínunni. Í báðum þessum
samningaviðræðum voru saman
komnir mjög öflugir samninga-
menn alls staðar að úr heiminum
og þetta er reynsla sem ég bý að
og tek með mér í viðræðurnar við
Evrópusambandið.“
Þá var Stefáni Hauki falið að miðla
málum í einni stærstu viðskipta-
deilu sem rekur hefur á fjörur
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Hún stóð á milli Bandaríkjanna
annars vegar og Evrópusambands-
ins auk sjö annarra ríkja hins vegar
og snérist um viðskipti með stál.
„Þetta voru mjög pólitískar deilur
enda miklir hagsmunir í húfi. Öflugir
lögmenn fluttu mál sinna umbjóð-
enda, Bandaríkjamenn þurftu að
verja aðgerðir sínar og hinir að
sækja á. Í öllum þessum verkefnum
þurfti ég að gæta mín á að blandast
ekki inn í pólitíkina sem óneitanlega
smitast inn í svona viðræður.“
REYNDUR Í ALÞJÓÐASAMNINGUM
AÐALSAMNINGAMAÐURINN Stefán Haukur er löglærður og hefur starfað í utanríkis-
þjónustunni í 23 ár. Hann varð sendiherra í Brussel árið 2005. FRÉTTABLAÐIÐSTEFÁN
Þjónustuverkstæði fyrir
Range Rover / Land Rover
Renault
Hyundai
BMW
En annast einnig allar almennar viðgerðir á öðrum tegundum bifreiða
• Starfsmenn sækja reglulega námskeið erlendis og innanlands.
• Verkstæðið er búið öllum nýjustu tækjum sem völ er á hverju sinni.
Verkstæðið hefur verið starfandi frá árinu 1985
stofnað 1985
Akralind 9, 201 Kópavogi.
Sími: 564 1095
www.stimpill.com
stimpill@vortex.is