Fréttablaðið - 07.11.2009, Síða 28

Fréttablaðið - 07.11.2009, Síða 28
28 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR E vald er frumkvöðull um rétt fatlaðra til að lifa sjálfstæðu lífi á eigin forsendum. Hann stofn- aði árið 1971 félag fólks með vöðvarýrnun í Danmörku og er enn formaður þess. Hann er hingað kominn á vegum ViVe-verk- efnisins. „Ég tel afar mikilvægt að snúa óvirkri velferð í virka velferð,“ segir Evald. „Það yrði íslensku samfélagi til meira gagns en þú gætir nokkurn tíma ímyndað þér. Á því leikur enginn vafi.“ Þegar Evald fæddist árið 1944 var honum vart hugað líf. „Lækn- arnir töldu að ég gæti lifað í fjög- ur ár að hámarki,“ segir hann. „Nú eru þeir ágætu menn allir látnir,“ segir hann brosleitur. „Þeir sögðu líka að ég ætti að fara á stofnun fyrir fötluð börn en mamma spurði bara hvað í ósköpunum ég ætti að gera þar. Ég gekk því í venjulegan grunnskóla og menntaskóla. Svo fór ég að læra lögfræði og latínu en lauk því aldrei vegna þess að ég fór á kaf í félagsmálin.“ Foreldrarnir höfðu væntingar Foreldrar Evalds gerðu honum ljóst frá upphafi að þau höfðu til hans væntingar. „Ég hef allt mitt líf trúað á framfarir og möguleika fremur en takmarkanir. Foreldr- ar mínir höfðu líka mikinn metnað fyrir mína hönd. Pabbi vildi að ég yrði kaupsýslumaður og það varð ég líka. Ég sel vöðvarýrnun. Það er mikill bissness og við höfum náð góðum árangri í Danmörku. Það er vegna þess að við erum með hug- myndir um það hvernig samfélag við viljum byggja og við höfum verið dugleg að miðla þeim.“ Það er einmitt vegna þessara hugmynda sem Evald hefur orðið nokkuð tíður gestur hér á landi að undanförnu. Evald hefur miðlað hugmyndum sínum víða um heim: meðal ann- ars í Japan, Ástralíu og Kanada og í flestum löndum Evrópu. „Við getum stytt okkur leið með því að nýta reynsluna frá Danmörku. Það er engin ástæða til þess að Íslend- ingar reki sig á sömu hindranir og við rákum okkur á.“ Evald er þess fullviss að Ísland eigi alla möguleika á að vera í fremstu röð þegar kemur að þjón- ustu við fatlaða. „Það er ástæðan fyrir því að ég kem hingað aftur og aftur þrátt fyrir að vissulega sé það erfiðleikum bundið að þvælast um lönd með mig. Það sem fylgir okkur er að umfangi svipað og fylgir lítilli rokkhljómsveit.“ Kreppur leiða til breytinga „Á Íslandi hefur velferðarkerfið byggst á því að þeir sem á þjón- ustu þess þurfa að halda eru óvirk- ir. Vissir þú að Ísland er það land í heiminum, fyrir utan Mexíkó, þar sem eru flestar stofnanir og fólk eyðir lengstum tíma á þeim?“ Evald mælir með því að hér verði hætt að byggja stofnanir fyrir fatl- aða. „Stofnanastefnan er í raun ekki siðleg. Hún brýtur í bága við mannréttindasáttmála sem Íslend- ingar eru aðilar að.“ Evald bendir á að þekkt sé að kreppur leiði af sér breytingar. „Það er stórkostleg gjöf að standa frammi fyrir því að hægt sé að hreyfa við viðmiðum í samfélag- inu,“ segir hann. Atvinnuleysi ungs fólks er að mati Evalds mjög alvarlegt vanda- mál. „Það er jú algerlega tilgangs- laust að vera atvinnulaus árum saman. Það er að mínu mati meira vandamál en að vera með vöðva- rýrnun.“ Evald sér því sóknarfæri í þess- um hópi fólks og langar að sjá það sama gerast hér og gerðist í kjöl- far efnahagskreppunnar í Svíþjóð á tíunda áratugnum að ungt atvinnu- laust fólk fái vinnu við að aðstoða fatlaða. „Þetta unga fólk fengi innihaldsríkt og áhugavert starf sem gæti orðið því stökkpallur inn í framtíðna og þeir sem þurfa á hjálp að halda fá hjálpina. Laun- in þurfa auðvitað að vera hærri en sem nemur atvinnuleysisbótum. Það verður að gera ráð fyrir því í útreikningum en við höfum verið að láta skoða þessar tölur undan- farnar vikur og við vitum að þetta er hægt.“ Virk velferð ekki dýrari Evald er því fullur bjartsýni fyrir hönd verkefnisins. „Það má ekki gleyma því að stofnanir eru gríðar- lega dýrar, bæði uppbygging þeirra og rekstur. Það er því hægt að fá mikið út úr sömu fjárhæðum og fara til stofnana.“ Evald fullyrðir að innan fárra ára, jafnvel aðeins tveggja, yrði það kerfi sem ViVe-verkefnið boðar ekki dýrara en það sem nú rekið er hér á landi. Hann er því afar bjart- sýnn fyrir Íslands hönd. „Fólk verður að fá að ráða lífi sínu sjálft. Það er ekki hægt að lifa við að aðrir stýri lífi manns.“ Evald flutti sjálfur að heiman þegar hann var átján ára. Þá flutti hann á stofnun fyrir ungt fatlað fólk enda stóð ekki annað til boða á þeim tíma. „Það var áhugaverð reynsla því ég hafði aldrei umgeng- ist aðra fatlaða fyrr.“ Seinna fór hann svo að búa með kærustunni sinni. „Við byggðum þetta upp hægt og með vax- andi stuðningi sveitarfélagsins.“ Afraksturinn er kerfi sem kall- ast PBA eða Personlig bruger assistance.“ Það kerfi hefur verið við lýði síðan 1981 og þýðir að allir fatlað- ir í Danmörku eiga rétt á notenda- stýrðu aðstoðarmannakerfi sem bætir til muna lífsgæði þeirra og gerir þeim kleift að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. „Í Danmörku ríkir sátt um þetta fyrirkomulag. Stjórnmálamenn eru stoltir af því og vilja jafnvel eigna sér það og þeir mega það svo sem. Það er þó jafnljóst að grunnurinn að þessu kerfi var lagður hjá okkur í félagi fólks með vöðvarýrnun.“ Að stýra sjálfur lifi sínu Grunnhugmyndin að notenda- stýrðu aðstoðarmannakerfi er að hver maður stýri lífi sínu sjálfur. Hinn fatlaði ræður til dæmis sjálf- ur til sín aðstoðarmennina. „Auð- vitað,“ segir Evald „Hvernig ætti það að vera öðruvísi? Við erum svo nálægt hvert öðru allan sól- arhringinn að við verðum að ná saman, geta talað saman og hlegið saman. Svo verður að ríkja mikill og gagnkvæmur skilningur á hlut- verkinu. Aðstoðarmennirnir eiga alltaf að vera til taks en um leið nánast ósýnilegir. Ég lít á það sem sjálfsögð mannréttindi allra þeirra sem á aðstoð þurfa að halda að geta lifað lífi sínu með fullri reisn. Við- miðin sem við leggjum til grund- vallar verða að vera þau sömu hjá öllu fólki.“ Og það er vegna þessar- ar hugsjónar sem Evald leggur það á sig að fara um heiminn þveran og endilangan. „Það er beinlínis ósiðlegt að mínu mati að aðrir stýri lífi manns. Þú kemst til dæmis ekki út þegar þig langar út vegna þess að þú þarft að vera búinn að panta bíl- inn með svo og svo löngum fyrir- vara. Þú getur ekki farið út á lífið á laugardagskvöldi af því að þér gefst ekki kostur á að fara í bað um helgar og svo framvegis. Allt þarf að skipuleggja með löngum fyrirvara. Svona var þetta í Dan- mörku árið 1962. Nú stendur bíll- inn minn hér fyrir utan og ég fer þangað sem ég vil þegar ég vil. Og svona á það að vera. Þú spyrð engan þegar þú þarft að skreppa út í búð og þú myndir aldrei sætta þig við að þurfa að gera það.“ Sáttur við fjarbúðina Evald á eina dóttur og eignaðist barnabarn fyrr á árinu. „Ég vil eiga líf. Ég vil eiga fjölskyldu. Ég vil þetta allt. Ég get ekki fengið nóg.“ Sem stendur er Evald í fjar- búð. Hann býr í nágrenni Árósa en unnusta hans starfar í Óðinsvéum. Þau eru því saman um helgar. „Það endist betur,“ segir hann og hlær. „Stundirnar sem við eigum saman eru gæðastundir.“ Evald er með aðstoð allan sólar- hringinn og fyrirkomulagið er þannig að fjóra daga í viku hefur hann tvo með sér og þrjá daga einn. „Ég er orðinn 65 ára gamall og ástæðan fyrir því hvað ég er orkumikill er að ég er kominn með öndunarvél og magasondu þannig að ég get hvorki dáið úr súrefnisskorti né hungri,“ segir hann og kímir. „Ég veit satt að segja ekki úr hverju ég get dáið en það kemur áreiðanlega í ljós,“ segir hann og hlær. „Ég er með ótrúlega orku og langar þess vegna að deila reynslu minni með þessum stórkostlegu Íslendingum. Ég fæ mikinn inn- blástur af því að vinna með þeim og ég vona svo sannarlega að það sé gagnkvæmt.“ Fólk verður að fá að ráða lífi sínu sjálft. Það er ekki hægt að lifa við að aðrir stýri lífi þínu. Mannréttindi að lifa með reisn Evald Krog hefur skýra sýn á málefni fatlaðra. Hann vill að hér á landi verði snúið frá því sem hann kallar óvirka velferð til virkrar velferðar. Hann kynnti Steinunni Stefánsdóttur hugmyndir sínar um leið og hann greindi frá merkilegu lífshlaupi sínu. EVALD KROG Evald hefur helgað líf sitt baráttunni fyrir mannréttindum. Að hans mati er það réttur allra, fatlaðra sem ófatlaðra, að lifa með reisn. Hann boðar notendastýrt aðstoðarmannakerfi þar sem hinn fatlaði stýrir lífi sínu sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MND-félagið á Íslandi og Öryrkja- bandalag Íslands hefur fengið Evald Krog og félag fólks með vöðvarýrnun í Danmörku til liðs við sig í vinnu við að setja saman áætlun fyrir íslensk stjórnvöld um breytingar á velferðar- kerfinu í átt til sjálfstæðs lífs fatlaðra og aldraðra utan stofnana. Unnar hafa verið tillögur um virkara velferðarkerfi þar sem ákvarðanataka flyst frá stofnunum til einstaklinga með þörf fyrir aðstoð í daglegu lífi og stuðningur verður einstaklingsmið- aður. Nú vinnur verkefnahópurinn að því að finna leiðir til hagræðingar í velferðarkerfinu á tímum efnahags- samdráttar þannig að þjónustan verði bætt en ekki skert. Stýrihópur leiðir starfið í samvinnu við stjórnvöld en með honum starfar ráðgjafahópur sem stjórnmálamenn, fagfólk, hagsmunaaðilar og sérfræð- ingar skipa. Tillögurnar eru þannig úr garði gerðar að þær eru stefnumótandi við framtíðarskipan velferðarkerfis- ins á Íslandi og um þær hefur ríkt breið samstaða þvert á hagsmuni og flokkadrætti stjórnmálanna. Stefnt er að því að fyrsti hluti til- lagnanna geti komið til framkvæmda strax á næsta ári. ➜ VIRKARI VELFERÐ – VIVE VAKNINGAR- TÓNLEIKAR VIVE Vakningartónleikar ViVe verða haldnir á Nasa miðvikudags- kvöldið 18. nóvember. Þar koma meðal annars fram Mugison, Fjallabræður, Karla- kórinn Þrestir og félagar úr uppistandshópnum Mið-Ísland.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.