Fréttablaðið - 07.11.2009, Page 44
BUENOS AIRES Í ARGENTÍNU BORGARFERÐIR
6 FERÐALÖG
Þetta er vel skiljanlegt þegar
haft er í huga að stór hluti borg-
arinnar var byggður upp á fyrstu
áratugum 20. aldar og gengu helstu
arkitektar beint í reynslu glæsileg-
ustu borga Evrópu.
Stundum hefur jafnvel verið bætt
um betur frá fyrrnefndum borgum
Evrópu. Skýrasta dæmið er lík-
lega Avenida 9 de Julio, sem hlotið
hefur titilinn „breiðasta breiðgata
heims“. Er hún raunar svo breið
að hin fræga Avenue des Champs-
Elysées í París er bara hálfdrætt-
ingur á við hana. Almennt eru tíu
akreinar í hvora átt á Avenida de
9 Julio, að ógleymdum breiðum
gangstéttum sem eru ekki minni
en akbrautirnar. Ég bý og starfa
við hlið götunnar og geng þar yfir
nánast daglega. Þessi ógnarbreidd
götunnar komst strax í vana og
virkar fullkomlega eðlileg.
Miðborg Buenos Aires og helstu
hverfi þar í kring eru alveg ein-
staklega vel skipulögð. Breið-
götur eru mjög margar og allar
helstu götur hafa verið lagðar í
rétthyrndri hornafræði þannig
að einna helst minnir á Manhatt-
an. Þannig er bæði auðvelt að ferð-
ast um borgina og að rata. Ef þú
spyrð til vegar er líka alltaf svar-
að hversu margar blokkir eru að
áfangastað, hér heitir slíkt cuadras
en ekki blocks.
Miðbærinn
Hinn hefðbundni Centro, eða
jafnvel Microcentro, er í kring-
um Avenida de 9 Julio. Ein helsta
þvergatan er Corrientes, en á
horni þessara gatna er hið risa-
vaxna Obelisco-minnismerki, sem
er eitt helsta kennileiti borgarinn-
ar. Corrientes er Broadway þeirra
í Buenos Aires, þar standa leik-
húsin í röðum og mannlífið er fjöl-
breytt. Önnur glæsileg þvergata
er Avenida de Mayo, en hún liggur
frá þinghúsinu, yfir 9 de Julio og
alla leið að hinni frægu forsetahöll,
Casa Rosada. Á torginu eru ávallt
einhverjir friðsamir mótmælend-
ur, fáninn blaktir víða og kröfu-
spjöld áberandi.
Gangir þú Avenida de Mayo
skaltu ekki sleppa því að kíkja inn
á hið sögufræga kaffihús, Café
Tortoni, á Mayo 829. Varla er hægt
að greina á milli hvort bragðið er
sterkara af kaffinu eða andrúms-
loftinu á þessu 19. aldar musteri.
Miðbærinn er annars blanda af
iðandi viðskiptaumhverfi og svo
ferðamönnum. Daglangt strunsa
þar bæði menn í jakkafötum á
leið í bankann sinn eða ferðamenn
í stuttbuxum og bol, sem skoða
glingur og dót á göngugötunum,
Florida og Lavalle. Lítið er varið í
verslanir á þessum slóðum, en þó
allt í lagi að skoða það sem fyrir
augu ber. Tangó er gjarnan stig-
inn á þessum göngugötum, jafnvel
til miðnættis. Þeir sem hafa áhuga
á verslunarmiðstöðvum ættu að
kíkja inn í Galerías Pacífico við
Florida.
San Telmo
San Telmo er í raun samvax-
ið miðbænum. Hér áður fyrr var
San Telmo fátækrahverfi sem fáir
ferðamenn hættu sér inn í, en það
hefur heldur betur breyst. Þetta
elsta hverfi borgarinnar iðar af
götulífi, með huggulegum veit-
ingahúsum, litlum hönnunar- og
tískuverslunum, útimörkuðum, að
ógleymdum tangóinum sem ýmist
er stiginn við lifandi tónlist eða úr
lýrukassa.
Plaza Dorrego er nauðsynlegur
viðkomustaður, þó þar séu reynd-
ar oft of margir ferðamenn til að
hægt sé að fóta sig. Á sunnudög-
um er þar útimarkaður með alls
konar antík, skartgripum og fleira
dóti, en flesta daga er þar stiginn
tangó undir berum himni, þ.e. ef
veður leyfir. Sýningar eru látlaus-
ar og einlægar, öfugt við það sem
ætla mætti á svona stöðum. Allt í
kringum torgið eru líka veitinga-
staðir og barir, sem margir bjóða
upp á lifandi tónlist og/eða tangó-
sýningar á kvöldin.
Þú færð ekta nautasteik á stöð-
um á borð við La Brigada, á Esta-
dos Unidos 465, og El Desnivel,
á Defensa 855, en aðeins tveggja
mínútna gangur er þar á milli.
Báðir eru þeir yfirfullir á hverju
kvöldi, en þjónustan er hröð og þú
ættir að geta fengið borð án þess
að bíða of lengi. Hvort sem þú
færð þér lomo eða jafnvel chorizo-
kryddpylsu, þá geturðu gengið að
því vísu að hún er ekta og verðinu
er stillt í hóf. Grillaður provoleta
ostur er svo punkturinn yfir i-ið.
Pantaðu ódýrt rauðvín hússins og
þú ert í góðum málum.
Aðeins steinsnar frá er svo einn
skemmtilegasti franski veitinga-
staður borgarinnar, Brasserie Pét-
anque, á Defensa 596. Hér færðu
allt það helsta sem frönsk brass-
erie bjóða upp á; foie gras (argent-
ínsk), confit de canard og svo er
steak tartare auðvitað fullkomin
úr hinu ljúffenga nautakjöti. Síð-
búinn hádegisverður á sunnudegi
er líka tilvalinn, þegar gatan iðar
af lífi með götusölufólki eins langt
og augað eygir.
Café La Poesía, á Chile 502, er
eitt af uppáhalds kaffihúsum undir-
ritaðs. Stælalaust og sjarmerandi,
með gömlum viðarinnréttindum
og gömul tangótónlistin gælir við
mann yfir veitingunum. Hvort sem
þú ætlar í kaffi eða hádegisverð, þá
er þetta staðurinn í San Telmo.
Palermo eða Palermo viejo
Palermo er eitt stærsta hverfi
Buenos Aires og þar er meðal ann-
ars að finna glæsilega garða sem
veita hvíld frá amstri borgarinnar.
Palermo viejo sker sig nokkuð úr,
en þar eru flest húsin aðeins ein
eða tvær hæðir, og minnir hverf-
ið um margt á SoHo eða Village í
New York.
Í Palermo viejo er beinlínis allt
krökkt af bæði veitingahúsum og
tískuverslunum. Viljir þú detta
inn í glæsilegar leðurverslanir
eða lítil hátískuhús skaltu ganga
götur á borð við Honduras, El Sal-
vador, Costa Rica, Gurruchaga og
Armenia.
Plaza Serrano er líka skyldu-
viðkomustaður, hvort sem það er
til að fara á útimarkað um helg-
ar eða bara til að fá sér drykk á
einu af hinum fjölmörgu kaffihús-
um allt í kringum torgið. Ef veður
er gott er tilvalið að velja sér veit-
ingastað undir berum himni, en
margir slíkir eru uppi á annarri
hæð þessarar lágreistu byggðar.
Nokkur af allra bestu steikhús-
um borgarinnar eru í Palermo.
Þar er Don Julio, á Guatemala
4691, í miklu uppáhaldi, en hann
býður jafnvel upp á grænmetis-
rétti að auki, nokkuð sem ekki er
algilt á steikhúsum. Las Cabras,
La Cabrera og Miranda eru allt
úrvalssteikhús á þessum slóðum,
hið síðastnefnda líklega nýtísku-
legast.
Í Palermo er líka úrval veit-
ingastaða frá öðrum heimshorn-
um, hvort sem eldhúsið er ítalskt,
franskt, indverskt, japanskt, mex-
íkóskt eða frá Perú. Þá er hægt að
mæla sérstaklega með hinum mar-
okkóska Bereber, á Armenia 1880,
sem er einn af fallegri stöðum
borgarinnar. Annars er auðvelt
að detta inn á góða veitingastaði
á þessum slóðum án þess að þurfa
að skipuleggja það fyrirfram.
Recoleta
Hafi Palermo Viejo minnt á Village
í New York, þá minnir Recoleta á
París. Hinn hefðbundni arkitektúr
Parísar er þar uppi um alla veggi,
kaffihús á hverju strái, verslanir,
ys og þys, að ógleymdum athvörf-
um sem leynast í görðum hér og
þar. Tilvalið er að ganga Santa Fe
breiðgötuna, en þar er búð við búð
svo kílómetrum skiptir. Jafnvel er
hægt að ganga allt upp að Paler-
mo, ef maður vill.
Veitinga- og kaffihús í Recoleta
eru bókstaflega allstaðar og erfitt
að taka einhverja sérstaklega úr.
SPÆNSKAN Þó þú kunnir eitthvað
í spænsku er ekki víst að þú skiljir
allt sem við þig er sagt í Argentínu.
Hið hefðbundna „Hola, buenos días,
cómo estás?“ virkar alveg hér, en samt
segir það enginn. Mun líklegra er að
sagt verði við þig „Qué tal, che? Todo
tranquí?“. Þá er ágætt að þekkja hinn
ólíku persónufornöfn, sem jafnvel taka
með sér ólíkar sagnabeygingar en við
eigum að venjast frá Spáni. Þannig er
ekki sagt tú heldur vos þegar rætt er
við einhvern í annarri persónu. Að auki,
„þú ert“ er ekki tú eres, heldur vos sos.
Svo þýðir ekkert að ræða við hóp fólks
í annarri persónu fl eirtölu með vosot-
ros. Margir hafa bara aldrei heyrt á það
minnst, enda er hér sagt ustedes rétt
einsog í öðrum Suður-Ameríkulöndum.
FRAMHALD AF FORSÍÐU
La Boca Litríkar byggingar í La Boca-hverfinu í Buenos Aires.