Fréttablaðið - 07.11.2009, Síða 89
LAUGARDAGUR 7. nóvember 2009
Tónlist ★★★★
Frábært eða frábært
Sykur
Með stuð í eyrum
Táningahljómsveitin Sykur hefur vakið athygli
undanfarið fyrir líflega og flotta tónleika, meðal
annars á tveimur síðustu Airwaves-hátíðum.
Frábært eða frábært er hennar fyrsta plata. Tón-
listin er fjörlegt og dansvænt hljóðgervla popp.
Af tólf lögum plötunnar eru sjö ósungin, Rakel
Mjöll Leifsdóttir syngur í tveimur (Rocketship og
Bite Me), Katrína Mogensen syngur í Með stuð í eyrum, Erpur Eyvindarson
rappar í Viltu dick? og strákarnir syngja sjálfir í New Horizons.
Sykur er á svipuðum slóðum tónlistarlega og stuðsveitir á borð við
Junior Senior, Bloodgroup eða FM Belfast. Það er svolítil retró-stemning í
þessari tónlist og manni verður stundum hugsað til syntasveita níunda og
tíunda áratugarins. Frábært eða frábært er ein af
skemmtilegri plötum ársins. Það er ekki verið
að gera nein kraftaverk eða byltingar, en platan
er full af fínu stöffi. Af instrúmental lögunum
má nefna Swedish Snowboard Girl, Sykur og
hið frábæra lokalag Lessupjetur. Rocketship
og Bite Me eru fín poppstykki og Rakel Mjöll
hefur sykursæta rödd sem hæfir þeim vel.
Katrína skilar sínu líka vel í Með stuð í eyrum.
Óvæntasta lagið er svo Viltu dick? en í því gerir
gamli perrinn BlazRoca heiðarlega tilraun til
að spilla ungviðinu: „Ég vil ekki vinna ég vil
bara drekka drykk/og slæda upp á frænku og
segja bitch viltu dick?“ Gaman að þessu.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Hljóðgervlaskemmtipoppplata
ársins.
Frances Bean Cobain, dóttir
rokkgoðsins Kurts Cobain og
Courtney Love, lét öllum illum
látum þegar hún komst að því að
ekki hefði verið búið að greiða
fyrir lestarfar hennar frá Boston
til New York. Stúlkan neitaði að
greiða sjálf fyrir farið og stóð
þess í stað og jós skömmum yfir
starfsmanninn í miðasölunni.
Hún hrópaði nafn sitt og foreldra
sinna ítrekað, en án árangurs. Að
lokum neyddist hún til þess að
hringja í umboðsmann sinn, sem
greiddi lestarfarið undir stúlk-
una.
Dóttir Cobains reiðist
FRANCES BEAN Dóttir Kurts Cobain neit-
aði að greiða fyrir lestarmiða sinn. Hér
er hún ung stúlka með móður sinni.
Meðlimir hljómsveitarinnar No
Doubt hafa höfðað mál gegn tölvu-
leikjafyrirtækinu Activision sem
framleiðir tölvuleikinn Band Hero.
Hljómsveitarmeðlimum þykir per-
sónur í leiknum líkjast sjálfum sér
helst til of mikið. „Það er búið að
breyta meðlimum No Doubt í staf-
rænan karókísirkus,“ var haft eftir
söngkonunni Gwen Stefani.
Meðlimir hljómsveitarinnar
höfðu áður gefið leyfi fyrir því
að persónur í tölvuleiknum yrðu
byggðar á þeim, en þessar per-
sónur áttu aðeins að flytja þrjú
lög eftir No Doubt. Þess í stað er
hægt að nota persónurnar til að
flytja hátt í sextíu lög. Stjórnendur
Activision telja að fyrirtækið
hafi unnið í samræmi við lög og
reglur.
Ósáttir popparar
ÓSÁTTIR Meðlimir No Doubt eru ósáttir
við tölvufyrirtækið Activision.
Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport)
Sími: 695 8464 og 772 1025
www.jogastudio.bloggar.is
Hot jóga
Hatha Jóga
Byrjendanámskeið
Meðgöngujóga námskeið
Stakur tími 1.500 kr.
Mánaðarkort 9.265 kr.
3 mánaðakort 20.315 kr.
6 mánaðakort 30.600 kr.
15%
afsláttur af
öllum kortum
opnunartilboð
Byrjendanámskeið 12.665 kr.
Meðgöngujóga námskeið 9.265 kr.
Innifalið í kortum eru allir opnir tímar
ásamt þeirri þjónustu sem boðið er upp á
í Veggsport.
Ný og persónuleg jógastöð