Fréttablaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 90
62 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Svo virðist sem kreppan
sé tími ævintýra og hafa
vinkonurnar Áslaug Rán
Einarsdóttir, eða Ása eins
og hún er kölluð, og Anita
Hafdís Björnsdóttir ákveðið
að hætta í vinnu sinni, selja
eigur sínar og halda á vit
ævintýranna.
Stúlkurnar stunda báðar svif-
vængjaflug af kappi og næstu tvö
árin ætla þær að ferðast um heim-
inn og stunda íþróttina. Samhliða
fluginu hafa þær þó sett á laggirn-
ar verkefni sem kallast The Flying
Effect til að vekja athygli á frelsis-
málum kvenna á heimsvísu. Verk-
efnið er unnið í samstarfi við UNI-
FEM á Íslandi.
„Þetta byrjaði allt með svif-
vængjafluginu. Það er erfitt að
lýsa því með orðum hvað ger-
ist þegar maður flýgur, en heim-
urinn og hvernig maður skynjar
hann breytist. Maður verður frjáls
eins og fuglinn. Við vorum að velta
fyrir okkur þessari frelsistilfinn-
ingu og í kjölfarið fórum við að spá
í hversu misfrjálst fólk er og hvern-
ig fólk túlkar frelsi. Þetta varð
svo grunnur inn að verkefninu,“
útskýrir Ása. Hún segir það hafa
verið lítið mál að taka þá ákvörð-
un að halda út í óvissuna. „Fjár-
hagslega er þetta svolítið erfitt,
en það var ekki erfið ákvörðun að
fara. Það er ákveðinn léttir að losa
sig við alla þessa óþarfa muni sem
maður hefur sankað að sér í gegn-
um tíðina, þó að það sé erfitt að láta
frá sér einstaka hluti.“
Stúlkurnar halda út í byrjun
desember og verður Nepal fyrsti
áfangastaður þeirra og þaðan
halda þær meðal annars til Ind-
lands, Ástralíu og Austur-Evrópu.
„Samhliða fluginu ætlum við að
hitta konur í hverju landi og gefa
þeim tækifæri á að ávarpa heiminn
í gegnum teikningar, ljóð, bréf eða
myndir. Við notum svo þetta efni til
að setja upp sýningar á þeim stöð-
um sem við komum til,“ segir Ása.
Áætlað er að Ása og Anita snúi
heim næsta sumar og setji upp sýn-
ingu á verkefninu áður en þær halda
aftur út í hinn stóra heim. Stúlkurn-
ar eru að leita eftir styrktar aðilum
fyrir verkefnið og segir Ása að þær
geti unnið eitthvað í skiptum. „Við
erum báðar menntaðir grafískir
hönnuðir þannig við getum tekið
að okkur verkefni fyrir mögulega
styrktaraðila.“
Hægt er að fylgjast með verk-
efninu á vefsíðunni www.theflying-
effect.wordpress.com.
sara@frettabladid.is
Selja eigur sínar
og halda út í heim
FRJÁLSAR SEM FUGLINN
Aníta Björnsdóttir (á mynd) og Ása
Rán Einarsdóttir leggja af stað út í
heim á vit ævintýranna. Þær hættu í
vinnu sinni og selja allar eigur sínar.
Fyrrverandi kærasta leikar-
ans Verne Troyer hefur farið
fram á nálgunarbann því
hún óttast að leikarinn muni
ganga í skrokk á henni.
Yvette Monet sagði
að hún hefði
fengið ógrynni
af símtölum og
smáskilaboðum
frá Troyer þar
sem hann hefði í
hótunum við hana.
Hún heldur því jafn-
framt fram að Troyer
og vinir hans gangi um
vopnaðir byssum. „Vinur
hans er lögreglumaður
og gengur alltaf um með
byssu á sér. Ég óttast um líf
mitt,“ var haft eftir Monet.
Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem Troyer á í útistöðum
við fyrrverandi kærustu
því í fyrra kærði hann
Ranae Shrider eftir
að kynlífsmynd-
band með þeim lak
til fjölmiðla. Troyer
er frægastur fyrir
hlutverk sitt sem
Mini-Me í Austin
Powers-myndunum.
Hrædd við Mini-Me
DÓLGUR Verne Troyer
mætti að ósekju bæta
hegðun sína.
„Þetta verður nú bara svona kitl í hjáverkum, en það
er gaman að vera kominn í útvarpið aftur,“ segir
Bjarni Arason. Hann snýr aftur í útvarp eftir eins
árs hlé þegar hann byrjar með þátt á Kananum kl.
16 á sunnudaginn.
Hljótt hefur verið um Bjarna, að minnsta kosti
útvarpslega séð, eftir að honum var sagt upp störf-
um sem dagskrárstjóri Bylgjunnar í kjölfar hruns-
ins í fyrra. „Ég hef nú bara verið að mennta mig,
það er eina vitið. Ég er við nám í Keili og er nú bara
að stefna á að komast í Háskólann. Ætli það verði
nokkuð fyrr en svona árið 2020! Nei, ég segi svona.“
Bjarni hætti á sínum tíma í námi og stritar nú við
að ná ígildi stúdentsprófs. „Ég er droppát. Maður
var alltaf í músíkinni og mátti ekkert vera að því að
pæla í algebru og þessu dóti.“
Tónlistin er ennþá alltaf númer eitt og Bjarni mun
skemmta á jólahlaðborði í Valsheimilinu nú fyrir
jólin með Magna, Birgittu og Hemma Gunn. En upp
á hvað ætlar Bjarni svo að bjóða í nýja þættinum?
„Þetta er nú bara DJ-þáttur, engin vísindi. Ég kynni
lög og afkynni. En ég segi ekki hvað klukkan er. Það
eru allir með klukkur á sér, er það ekki?“ - drg
Látúnsbarkinn snýr aftur
DJ BJARNI Í LOFTIÐ Á NÝ Einar Bárðarson býður Bjarni Ara
velkominn á Kanann. Tæknimaðurinn Halldór Jóhannesson
– „Dóri dimmraddaði“ – stendur á milli þeirra.
Söngkonan Rihanna rauf þögnina og ræddi um
rifrildið við Chris Brown sem endaði samband
þeirra í viðtali við Diane Sawyer. Rihanna hefur
hingað til ekki tjáð sig um atvikið, en rifrildið
endaði með því að Brown beitti hana líkamlegu
ofbeldi.
„Ég barðist á móti með því að ýta honum í
burt með fótunum. Við vorum ekki beint að ríf-
ast lengur. Ég óskaði þess aðeins að þessu mundi
ljúka, mér blæddi og ég var orðin bólgin. Ég
hefði ekki komist heim nema fótgangandi, í ball-
kjól og blóðug í framan. Ég vissi í raun ekki hvað
ég átti að gera næst, ég var ekki með neitt plan,“
sagði söngkonan þegar hún rifjaði upp þetta
örlagaríka kvöld.
Hún útskýrir að þrátt fyrir barsmíðarnar hafi hún snúið aftur til
Browns en þrátt fyrir það hafi hún ekki getað fyrirgefið honum. „Ást
mín blindaði mig og ég sá ekki aðstæðurnar í réttu ljósi. Líkamlegu
örin hverfa og þá fer maður ósjálfrátt að ljúga að sjálfum sér. Ég hafði
óbeit á honum en ég reyndi að fela það. En hann vissi þetta, hann spurði
í sífellu hvort ég hataði hann og alltaf svaraði ég neitandi. En ég hataði
hann og allt við hann pirraði mig. Að lokum var ég komin með nóg.“
Hataði kærastann
SEGIR FRÁ Rihanna
tjáði sig í fyrsta sinn
um barsmíðarnar í við-
tali við Diane Sawyer.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fáðu þér miða á www.hhi.is eða í síma 800 6611
á einn miða í desember
milljónir
75
Þeir sem eiga miða í Happdrætti Háskólans geta átt von
á 75 milljóna afmælisvinningi í síðasta útdrætti ársins.
Þú getur ennþá verið með! Tryggðu þér miða fyrir aðeins
1.000 kr. á mánuði. Við drögum næst 10. nóvember!
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA
9
19
03
Skyldueign allra ábyrgra
skotveiðimanna