Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Blaðsíða 19
Jólahefti Tímarits iðnaSarmanna 1941
Útgáfa Menningarsjóðs
af Heimskringlu á
bókbandsstofunni.
eða minna leyti bundið við jólin, jólamarkaðinn.
Ég liefi ekki valið mér jólabókina ennþá —
bandið á hana mun, eins og oftast, verða að
bíða betri tíma. Alltaf þykjumst við verða vís-
ari með ári hverju. Ég þykist bera betra skyn
á bækur nú en fyrir nálega fimmtíu árum og
ætti því að vera liæfari til þess að velja jóla-
bókina banda mér. Þess vildi ég óska, þó að
ég viti, að sú ósk muni ekki rætast, að sú bók,
sem fyrir valinu verður, gæti hrifið mig eins
innilega og bækurnar, sem systur mínar fengu
á jólunum endur fyrir löngu og ég fékk að njóta
með þeim. Ég brosi nú að þeim heilabrotum,
sem þær ollu mér, og að þeim atriðum, sem
mér þótti furðu eðlileg, en er þá skilningurinn
meiri nú í lilutfalli við aldurinn? Sé skilning-
urinn meiri, þá er hitt vist, að hrifningin, fögn-
uðurinn er minni.
Við skulum nú aftur líta í kringum okkur
hér heima, líta á hókamarkaðinn í ár. Ástæð-
urnar liafa breytzt frá því á námsárum minuin
1905—1908. Samgöngurnar eru ólíkt greiðari.
Strandferðir og bílferðir eru nú nokkurnveginn
allt árið, róin eða næðið, sem áður var að vetr-
inum, að mestu horfið, það lieitir þá á nútíma-
máli „atvinnuleysi“ og er mesta hörmungin,
sem yfir landslýðinn kemur. Kvöldvökur með
sama sniði og áður munu varla þekkjast, þvi
miður. En útgáfutími bóka liefir varla eða ekki
breytzt.
Við höfuin ekki, þegar þetta er skrifað, yfir-
lit um jólamarkaðinn í ár, en eftir öllnm sólar-
merkjum að dæma mun hann verða meiri en
nokkru sinni áður. Mikið hefir komið út af
góðum bókum og mikið á eftir að koma út,
sem verið er að vinna að — merkar bækur,
vandaðar að frágangi — og allt er það að meira
17