Tímarit iðnaðarmanna


Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Blaðsíða 45

Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Blaðsíða 45
Jólahefti Tímarits iðnaðarmanna 1941 ar hlupu, og svo hlupu hermennirnir og liirð- meyjarnar. Það var hræðilegt. „Ég gefst upp,“ sagði aumingja prinséssan, „mér verða svo aumir fæturnir, að ég held, að þeir ætli að detta af mér.“ „Engin miskunn,“ sagði Gvendur. „Þetta er voða!egt,“ sagði gamli kóngurinn. Húfan var öll komin út í annan vangann eftir hlaupin. Svo hélt prinsessan áfram að lilaupa, kóng- urinn hljóp og allir hlupu. Ef ein kind hljóp til hægri, þá hlupu liinar níutíu og níu til vinstri. Prinsessan varð stöðugt að vera á sprettinum upp og ofan hæðirnar, út og suður, austur og vestur. Og allar hirðmeyjarnar hlupu á eftir. Þetta var Ijóta gamanið. Hirðmeyjarnar æjuðu og veinuðu af þreytu og sársauka, svo að ekki heyrðist mannsins mál. „Engin miskunn,“ sagði Gvendur. Allir urðu að lilaupa fram á rauða kvöld. Loksins sagði Gvendur: „Nú er dagsverkinu lokið og allir mega fara heim.“ „Já, en nú skal ég — púh segja þér nokk- uð, Gvendur — púh —“ sagði gamli kóngurinn og þurrkaði af sér svitann með frakkalafinu sínu, því að vasaklúturinn lians var löngu orð- inn gegnblautur. „Ef prinsessan sofnar ekki á augabragði, þegar við komuin heim — púh þá verður ]iú bæði bengdur og hálshöggvinn og meira að segja lúbarinn ob, púh — „Allt í lagi, prinsessan sofnar, það er óbætt um það,“ sagði Gvendur. Nú var vögnunum ekið fram og svo lagði öll bersingin af stað heim að höllinni. Hermenn- irnir tóku Gvend og bundu hann, því að það átti að taka bann af lifi, ef prinsessan sofnaði ekki. Sólin gekk lil viðar. Búsmalinn rölti lieim úr liaganum og dalalæðan breiddi sig yfir lág- lendið. Allt varð kyrrt og hljótt. Prinsessan hvíldi á öllum svæflunum sínum inni í vagninum. Veslingurinn, bún var svo þreytt eftir blaupin og svefnleysið. En hvað það var notalegt að halla sér út af. Vagninum var ekið bægt og hann vaggaði henni svo þægi- lega á dúnmjúkum svæflunum. Hún lét aftur augun, andardrátturinn varð smám saman dýpri, höfuðið hneig niður á koddann og litlu síðar var hún steinsofnuð. Hún var orðin svo dæmalaust ósköp þreytt, aumingja lilla jirins- essan. Hirðmeyjarnar opnuðu vagninn, þegar komið var inn í hallargarðinn. „Nei, sjáið þið nú bara!“ hvísluðu þær og lögðu fingurna á varirnar. „Prinsessan er bara sofnuð — steinsofnuð. Hamingjunni sé lof og dýrð.“ Og svo grétu þær allar af gleði. „Viljið þið lofa mér að sjá?“ hvíslaði gamli kóngurinn og gægðist inn. „0, bvílik hamingja fyrir landið og þjóðina.“ Og svo grét hann líka. Hægindastóll kóngsins var settur við bliðina á vagninum. Þarna ætlaði bann að sitja, þang- að til prinsessan vaknaði. IJann sofnaði á augabragði. Hirðmeyjarnar settust á hallarþrepin og ultu svo út af sofandi. Lúðrasveinarnir, sem áttu að halda fólkinu vakandi, steinsofnuðu, og svo sofnaði öll þjóðin. Það varð svo bljótt í kóngsrikinu, að lieyra mátti saunmál detta. Enginn rumskaði alla lið- langa nóttina. Það var komið fram undir liá- degi, þegar gamli kóngurinn vaknaði. „Hvað er að tarna?“ kallaði bann dauðskelk- aður. „Heyrðu, þjónn, komdu með títuprjón- inn, ég sé ekki belur en að ég sitji hér í miðjum hallargarðinum í hægindastólnum mínum.“ í sama bili gægðist prinsessan úí um glugg- ann á vagninúm sinum. „Góðan daginn, góðan daginn, pabbi minn,“ sagði bún og brosti svo yndislega við honum, að liann fékk kökk í hálsinn. Augu hennar voru perluskær og kinnarnar rósrauðar. „Ég hefi sofið svo dásamlega vært,“ sagði hún, „og nú líður mér svo vel. Hvar er Gvend- ur? Ég vil endilega giftast honum sem allra fyrst og fá hálft kóngsrikið." „Ykkur er velkomið að fá það allt,“ sagði gamli kóngurinn. „Ég er syfjaður ennþá og nenni ekki að stjórna lengur. Gerið ])ið svo vel. Takið þið það allt. Nú skulum við gleðjast og byrja á undirbúningnum undir brúðkaupið, en fyrst verðum við að fá eittbvað að borða. Bless- 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.