Fréttablaðið - 12.11.2009, Síða 8
8 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
1. Hver situr á þingi í stað
Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur
sem er í fæðingarorlofi?
2. Af tá hvaða leikmanns hrökk
boltinn í íslenska markið í
landsleiknum gegn Írönum?
3. Hve margir hafa verið ráðnir
til ráðuneyta án undangeng-
inna auglýsinga?
SVÖR Á SÍÐU 62
EFNAHAGSMÁL Matsfyrir-
tækið Moody´s lækkaði í
gær lánshæfismat íslenska
ríkisins um tvo flokka;
úr Baa1 í Baa3. Um leið
breytti fyrirtækið spá
sinni þannig að horfur séu
nú stöðugar, en áður mat
það þær neikvæðar. Land-
ið er nú í lægsta flokki í
fjárfestingarflokki, rétt
fyrir ofan ruslbréfin svo-
kölluðu.
Í tilkynningu Moody´s segir að
sterk staða landsins og efnahags-
legur sveigjanleiki hafi mildað
höggið sem landið fékk við efna-
hagshrunið. „Nýlegar efnahags-
aðgerðir hafa tekist betur en búist
var við,“ segir Kenneth Orchard
hjá Moody´s. „Svo virðist sem
kreppan verði grynnri og styttri
en búist var við.“
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdótt-
ir, efnahagsráðgjafi fjármálaráð-
herra, segir jákvæðar og neikvæð-
ar fréttir felast í matinu. Búast
hafi mátt við lækkuninni, þar sem
fyrirtækið hafi talið horfur hér
neikvæðar í síðasta mati sínu.
„Það jákvæða er að horfur eru
nú stöðugar og það skiptir mjög
miklu máli til dæmis þegar við
förum að sækja lánsfé á markað.
Þá er staðan allt önnur ef við erum
á stöðugum horfum en ef
við erum á neikvæðum
eins og við vorum áður.“
Matið hafi engin áhrif í
bráð; stöðugar horfur geri
það að verkum að auðveld-
ara verði að sækja lánsfé
þegar með þarf.
Í Hagsjá Landsbankans
er tekið undir að búast hafi
mátt við matinu. Lækkun-
arinnar hafi í raun verið
beðið, en afar jákvætt sé að horf-
ur teljist nú stöðugar.
Moody´s metur stöðuna nú svip-
aða og Standard & Poor´s og Fitch,
en tvö síðastnefndu fyrirtækin
flokka landið enn með neikvæðar
horfur, öfugt við Moody´s. „Miðað
við hvað horfur á efnahagsbata eru
óstöðugar, álagið á ríkisfjármál og
óvissu um afnám gjaldeyrishafta,
höfum við ákveðið að horfum sé
best lýst sem stöðugum.“
Hjördís segir jákvætt að fyrir-
tækið telji framvindu í efnahags-
málum betri en búist var við. Fyrir-
tækið líti svo á að landið fari ekki
neðar nema einhverjar skyssur
verði gerðar. Það ætli sér að fylgj-
ast vel með framvindu mála hér á
landi.
Íbúðalánasjóður fær sömu
einkunn hjá fyrirtækinu og ríkis-
sjóður. kolbeinn@frettabladid.is
Moody ś telur
botninum náð
Matsfyrirtækið Moody ś lækkaði lánshæfismat
ríkisins í gær. Fyrirtækið segir horfur stöðugar og
að botninum sé náð. Hefur ekki áhrif í bráð segir
efnahagsráðgjafi. Ísland rétt fyrir ofan ruslflokk.
HJÖRDÍS DRÖFN
VILHJÁLMSDÓTTIR
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Moody´s fellir lánshæfismat ríkissjóðs og Íbúðalánasjóðs um
tvo flokka. Fyrirtækið metur ástandið þó stöðugt og að kreppan verði skemmri og
grynnri en búast mátti við. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNSÝSLA Samninganefnd
Íslands í aðildarviðræðunum við
Evrópusambandið kom saman til
síns fyrsta fundar í Þjóðmenn-
ingarhúsinu í gær.
Á fundinum stilltu nefndar-
menn saman strengi og línur um
næstu skref voru lagðar. Meðal
verkefna fram undan er að und-
irbúa mótun samningsmarkmiða
Íslands sem gert verður í sam-
vinnu við hagsmunaaðila.
Gert er ráð fyrir að á næstu
vikum eða mánuðum ljúki fram-
kvæmdastjórn ESB gerð álits
síns um aðildarumsókn Íslands
og að á grundvelli þess taki aðild-
arríkin ákvörðun um að hefja
formlegar aðildarviðræður.
Átján sitja í samninganefnd-
inni sem Stefán Haukur Jóhann-
esson, sendiherra í Brussel, fer
fyrir.
- bþs
Fyrsti fundur samninganefndar Íslands við ESB:
Stillti saman strengi
SKIPAÐ TIL SÆTIS Stefán Haukur
Jóhannesson aðalsamningamaður
segir nefndarmönnum hvar þeir eigi
að sitja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEILBRIGÐISMÁL Álfheiður Inga-
dóttir heilbrigðisráðherra tók í
gær á móti undirskriftalista þar
sem mótmælt er niðurskurði á
Heilbrigðisstofnun Blönduóss.
Um 700 manns rituðu nafn sitt á
listann.
Samkvæmt tilkynningu frá
hópnum sem stóð að undirskrift-
unum lofaði heilbrigðisráðherra
að athuga málið.
Hún sagðist þó hvorki telja að
mest væri skorið niður hjá HSB,
né að ósamræmi væri í kröfum
ráðuneytisins um niðurskurð til
heilbrigðisstofnana.
Samkvæmt fjárlögum fyrir
árið 2010 er farið fram á að Heil-
brigðisstofnun Blönduóss skeri
niður um 56 milljónir.
- kh
700 skrifuðu undir mótmæli:
Mótmæltu nið-
urskurði á HSB
FJÁRMÁL Hópur fólk sem átti í
peningamarkaðssjóðnum Sjóður
9 sem starfræktur var á vegum
Glitnis hyggst stefna sjóðnum.
„Útgreiðsluhlutfallið úr Sjóði 9
var 85,12 prósent miðað við síð-
asta skráða gengi sjóðsins þann 6.
október í fyrra,“ segir Einar Hugi
Bjarnason, lögmaður hjá Ergó lög-
mönnum, sem undirbýr málsókn-
ina.
Einar Hugi segir að krafist verði
viðurkenningar á skaðabótaskyldu
Íslandssjóða hf., sem áður hétu
Glitnissjóðir hf., vegna mismun-
arins og þess tjóns sem sjóðsfélag-
ar urðu fyrir. „Þessu til viðbótar
er það staðreynd að Glitnir keypti
í lok september, með stuðningi
þáverandi ríkisstjórnar, skulda-
bréf Stoða hf. eða FL Group út úr
sjóðnum fyrir tæpa 12 milljarða
króna. Sama dag var framkvæmd
varúðarniðurfærsla í sjóðnum upp
á tæp 7 prósent sem þýðir að raun-
verulegt tap sjóðsfélaga var rúm-
lega 20 prósent, eða fimmtungur,“
segir Einar Hugi.
Kröfulýsingafrestur í þrotabú
Glitnis rennur út þann 29. nóv-
ember næstkomandi. „Það er
mjög mikilvægt fyrir sjóðsfélaga
í Sjóði 9, sem og í öðrum sjóðum
sem starfræktir voru á vegum
bankans, að lýsa kröfum sínum til
slitastjórnar Glitnis innan kröfu-
lýsingarfrestsins. Að öðrum kosti
er hætta á réttarspjöllum verði
niðurstaða dómstóla á þá leið að
skaðabótaskylda gagnvart sjóðs-
félögum verði viðurkennd,“ segir
Einar Hugi Bjarnason. - jhh
Hópur fólks sem átti í Sjóði 9 mun leita réttar síns fyrir dómstólum:
Stefna í farvatni vegna Sjóðs 9 hjá Glitni
GLITNIR Hópur fólks hyggst stefna Glitni vegna taps á eignum í Sjóði 9.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEISTU SVARIÐ?