Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 28
28 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
UMRÆÐAN
Sigríður Hjaltested skrifar um
kynferðisbrotamál
Að undanförnu hefur þó nokkuð borið á umræðu um kynferðis-
brot, ekki síst eftir að út kom bókin
„Á mannamáli“ eftir Þórdísi Elvu
Þorvaldsdóttur. Bók hennar er
afar áhugavert innlegg í umræðu
um kynferðisbrot en þar færir hún
hugleiðingar sínar í orð af mik-
illi rökfestu. Fyrir nokkru birtist
grein í Fréttablaðinu um nauðgan-
ir, sem bar yfirskriftina „Hljótum
að vilja vernda alla“. Í greininni,
þar sem m.a. er vitnað til Þórdísar
Elvu, um atriði sem þó skipta veru-
legu máli þegar fjallað er um mál
af þessu tagi*. Tel ég því nauðsyn-
legt að fjalla um þátt ákæruvalds-
ins og meðferð nauðgunarmála
í því fyrirbæri sem nefnt hefur
verið „kerfið“.
Nauðgunarhugtakið
Nauðgun er sú tegund kynferðis-
brota sem vekur hvað mestan óhug
hjá mönnum. Það að níðast á lík-
ama manneskju með þeim hætti
stríðir gegn mannlegu eðli og
ekkert réttlætir slíkan verknað.
Nauðgun er því eitt af þeim brot-
um sem varða lengstri tímabund-
inni refsingu í almennum hegning-
arlögum, eða allt að 16 árum.
Í 1. og 2. mgr. 194. gr. almennra
hegningarlaga er nauðgun skil-
greind sem samræði eða önnur
kynferðismök við mann með því
að beita ofbeldi, hótunum eða
annars konar ólögmætri nauðung.
Til ofbeldis telst svipting sjálf-
ræðis með innilokun, lyfjum eða
öðrum sambærilegum hætti. Það
telst einnig nauðgun og varðar
sömu refsingu að notfæra sér geð-
sjúkdóm eða aðra andlega fötlun
manns til þess að hafa við hann
samræði eða önnur kynferðismök,
eða þannig er ástatt um hann að
öðru leyti að hann getur
ekki spornað við verkn-
aðinum eða skilið þýð-
ingu hans.
Nauðgunarhugtakið
var rýmkað með laga-
breytingu árið 2007.
Greinargerð með breyt-
ingarlögunum er ítarleg.
Þar er lögð rík áhersla á
að í stað þess að einblína
á hvort manneskju hafi
verið þröngvað til sam-
ræðis eða annarra kyn-
ferðismaka sé litið til þess hvort
um samþykkisskort hafi verið að
ræða. Sjá má af rökstuðningi í
dómum sem fallið hafa eftir laga-
breytinguna að þessi nýja nálg-
un hefur haft áhrif á sönnunar-
mat dómara, þ.e. mat þeirra á
samþykki og viljaafstöðu brota-
þola. Auk þess er hugtakið ofbeldi
túlkað rúmt. Sem dæmi má nefna
Hæstaréttardóma í málunum nr.
229/2008 og 383/2008.
Rannsókn lögreglu
Lögregla rannsakar kynferðis-
brotamál sem hefst með fram-
kominni kæru brotaþola, beiðni
um rannsókn t.d. frá barnavernd-
aryfirvöldum eða að frumkvæði
lögreglu. Á höfuðborgarsvæðinu
starfar miðlæg rannsóknardeild
sem sinnir þessum málaflokki.
Með því fæst mjög góð yfirsýn yfir
málin og sérhæfing sem hefur skil-
að góðum árangri.
Fullyrða má hins vegar að engin
tvö málanna séu eins. Þau eru jafn
ólík og einstaklingarnir sem þar
koma við sögu. Þeir sem fara með
ákæruvald lúta mjög skýrum rétt-
arfarsreglum. Þeim ber að gæta
jafnt að þeim atriðum sem horfa til
sýknu eða sektar sakbornings og
eiga að stuðla að því að hið sanna
og rétta komi í ljós. Þannig er það
skylda ákæruvaldsins að gæta
hlutleysis á þennan hátt og láta
ekki persónulegar skoðanir eða
utanaðkomandi þrýsting
hafa áhrif á ákvarðanir.
Rannsókn lögreglu felst
í því að afla nauðsynlegra
sönnunargagna svo unnt
sé að taka ákvörðun um
framhald málsins. Hún
getur hins vegar á öllum
stigum leitt það í ljós að
ekki sé grundvöllur fyrir
áframhaldandi rannsókn.
Þar geta margar ástæður
legið að baki, m.a. að kæra
sé ekki á rökum reist, sök
geti verið fyrnd eða gerandinn
kunni að vera óþekktur einstakl-
ingur sem ekki finnist. Sé kær-
andinn ósáttur við þessi málalok
getur hann kært ákvörðun um að
lögregla hætti rannsókn til Ríkis-
saksóknara. Nýtur hann við það
liðsinnis réttargæslumanns en
það er lögmaður sem skylt er að
tilnefna brotaþolum í kynferð-
isbrotamálum. Staðfesti Ríkis-
saksóknari ákvörðun lögreglu er
málinu lokið. Kærandi getur þó
krafist þess seinna meir að rann-
sóknin verði tekin upp aftur komi
ný sönnunargögn í ljós.
Umræður um ákærur og dóma
Kynferðisbrotamál sem eru
fullrannsökuð eru send Ríkissak-
sóknara, sem tekur ákvörðun um
hvort gefin verði út ákæra. Út frá
því er gengið í lögum um meðferð
sakamála að ákæra sé aðeins gefin
út teljist málið líklegt til sakfellis.
Sönnunarbyrði um sekt sakborn-
ings um atriði sem telja má honum
í óhag hvílir á ákæruvaldinu en í
þeirri reglu felst að allan skyn-
samlegan vafa skuli túlka sak-
borningi í hag.
Sá saksóknari sem fer með
málið verður því að meta styrk-
leika þeirra sönnunargagna sem
aflað hefur verið hjá lögreglu
og hvort hann telji þau geta leitt
til sakfellingar. Við þetta mat er
horft til krafna dómstóla í þessum
efnum og þá sérstaklega dómafor-
dæma Hæstaréttar þegar við þau
er að styðjast.
Ákæruvaldið hefur iðulega
sætt gagnrýni þegar ákvörðun er
tekin um að hætta rannsókn eða
ákæra ekki í kynferðisbrotamál-
um. Brotaþolar eiga erfitt með að
skilja slíka ákvörðun enda mikl-
ar tilfinningar þar að baki. Gegn
þeim getur verið erfitt að beita
rökum. Þá finnst brotaþolum oft
sem ákvörðunin þýði að framburð-
ur þeirra sé ótrúverðugur. Því ber
sérstaklega að leggja áherslu á að
ákvörðunin byggist á mati ákæru-
valdsins á sönnunarstöðunni í mál-
inu eins og lögin gera ráð fyrir.
Það er staðreynd, sem ekki verð-
ur litið framhjá, að almenningur
hefur eðli málanna samkvæmt
ekki þá vitneskju um málavexti í
kynferðisbrotamálum sem ákæru-
valdið og dómarar hafa. Hann er
því ófær um að leggja heildstætt
mat á málið enda skortir hann vitn-
eskju um allt það sem fram kemur
í skýrslutökum af aðilum og vitn-
um og annað það sem liggur fyrir
í málinu svo sem læknisfræðileg
gögn, niðurstöður tæknirannsókna
o.fl. Þinghöld í nauðgunarmálum
eru auk þess lokuð af tilliti til aðila
og þrátt fyrir að dómar séu birtir
er innihald gagna eða yfirheyrslna
aðeins rakið í meginatriðum. Sá
sem les dóm getur því ekki allt-
af við lestur hans áttað sig fylli-
lega á heildarmyndinni. Þá kemur
fyrir að rökstuðningur dóma sé
af skornum skammti. Þetta er þó
ekki sagt til þess að gera lítið úr
skoðunum manna á þessum erf-
iðu málum, því öll höfum við upp-
lifað vanmátt okkar frammi fyrir
þeim.
Það er í sjálfu sér ekkert óeðli-
legt að allir hafi skoðanir á
kynferðisbrotamálum enda er
umfjöllun fjölmiðla um þau fyr-
irferðarmikil. Umfjöllun, sé hún
skynsamleg og fagleg, er alltaf af
hinu góða. Sé hún það ekki getur
hún beinlínis verið skaðleg.
Ég reikna fastlega með því
að öll viljum við búa í réttar-
ríki þar sem sú regla er í heiðri
höfð að maður teljist saklaus uns
sekt hans er sönnuð. Þetta er
meðal þeirra grundvallarréttinda
okkar sem staðfest eru í stjórn-
arskránni. Ákvæðið byggir auk
þess á Mannréttindasáttmála
Evrópu sem hefur verið lögfest-
ur hér á landi. Það er ekki síst af
þessari ástæðu sem þær kröfur
eru gerðar til ákæruvaldsins sem
áður hafa verið raktar. Við getum
líka öll verið sammála um að við
viljum vernda þjóðfélagið okkar
gegn glæpum en viljum við ekki
að sama skapi vernda saklausa frá
því að vera dæmdir sekir? Ég bið
menn að ímynda sér sem snöggv-
ast að þeir sjálfir eða einhver þeim
nákominn sé sakaður um nauðgun.
Hvernig ætli málið myndi horfa
við ef sá hinn sami héldi fram sak-
leysi sínu? Myndi hann ekki krefj-
ast þess að umrædd grundvallar-
regla væri virt?
Refsiskilyrði
Refsiskilyrði samkvæmt almenn-
um hegningarlögum er að verkn-
aður sé unninn af ásetningi eða
gáleysi. Þegar um nauðgun er
að ræða er áskilnaður um ásetn-
ing. Hann getur verið mismun-
andi einbeittur og því skal einnig
meta hvað sakborningur mátti vita
við tilteknar aðstæður. Þegar við
lesum ákvæði laganna um nauðg-
un verður að hafa þetta í huga,
svo og hvort sönnun hafi tekist
um þau atriði sem tiltekin eru í
greininni. Það er þetta sem dóm-
arar í sakamálum koma til með
að skoða. Þeir leggja mat á hvort
hægt sé að véfengja með skyn-
samlegum rökum að sakborningur
hafi framið verknaðinn sem hann
er sakaður um. Markmið dómar-
ans er þannig að meta sönnunar-
gögn málsins, fylgja reglum laga
um meðferð sakamála um sönnun
og komast að niðurstöðu á hlutlæg-
an hátt.
Sönnunarmat dómarans er samt
sem áður frjálst, sem þýðir það að
hann leggur einstaklingsbund-
ið mat á þau sönnunargögn sem
ákæruvaldið hefur fram að færa.
Sé það mat dómara að sönnun
ákæruvaldsins um sekt hafi ekki
tekist ber honum að sýkna ákærða.
Það er af þessari ástæðu sem menn
geta verið ósáttir við eina dómsnið-
urstöðu en sáttir við aðra í málum
sem þeir telja vera sambærileg.
Verður því enn að hnykkja á því
að engin tvö mál eru nákvæmlega
eins þó að unnt sé að fá ákveðna
leiðsögn í dómafordæmum.
Sú leið er því tæk að áfrýja
dómum héraðsdóms til Hæsta-
réttar en þar með er ekki sagt að
fólk sætti sig frekar við niður-
stöðu æðri dóms. Það að Hæsti-
réttur staðfesti dóm héraðsdóm
er hins vegar vísbending um að
mat hans á sönnunargögnum hafi
verið rétt.
Trúverðugleiki vegur þungt
Í nauðgunarmálum og reyndar kyn-
ferðisbrotamálum almennt er sönn-
unarstaðan oftar en ekki ákaflega
erfið þar sem sönnunargögn eru
jafnan af skornum skammti. Trú-
verðugleiki þeirra sem gefa skýrsl-
ur í málinu, hvort sem er á meðan
rannsókn stendur eða fyrir dómi,
hlýtur því alltaf að vega þungt.
Eins og sést af dómum er oftar
en ekki tekist á um þetta atriði.
Dómar sýna að trúverðugur, stað-
fastur framburður brotaþola, til
viðbótar við óbein sönnunargögn,
getur haft úrslitaþýðingu. Sé fram-
burður sakbornings hins vegar jafn
trúverðugur og staðfastur verður
sönnunarstaðan erfiðari. Sem dæmi
má nefna karlmann sem hefur sam-
ræði við konu og bæði eru jafnölv-
uð. Hún heldur því fram að hann
hafi notfært sér ástand hennar en
hann segir samræðið hafa verið
með fúsum og frjálsum vilja henn-
ar. Dómgreind hvors þeirra var
skertari við þessar aðstæður? Ef
það liggur ekki í augum uppi ræðst
niðurstaða málsins af því hvaða
sönnunargögn önnur en framburð-
ur þeirra liggja fyrir í málinu. Má
sem dæmi nefna dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli nr. 580/2009.
Mótspyrna ekki skilyrði
Ákæruvald og dómarar hljóta að
þurfa að meta það hvort sönnunar-
gögn bendi ákveðið til þess að brot-
ið hafi verið gegn kynfrelsi brota-
þolans á þann hátt að hann hafi
sér enga björg getað veitt og því
orðið að láta að vilja sakbornings-
ins. Það kann því að vera að brota-
þoli hafi verið beittur slíkri nauð-
ung að hann hafi hreinlega „frosið“
við þær aðstæður og því enga mót-
spyrnu veitt. Það er ekki skilyrði
samkvæmt nauðgunarákvæðinu
að brotaþoli sýni mótspyrnu eða að
hann beri áverka á líkama sínum.
Nýlega hafa fallið dómar þar sem
sannað þótti að brotaþoli hafi verið
beittur slíkri nauðung að „aðgerð-
arleysi“ hans þótti eðlilegt þegar
hann stóð frammi fyrir tilteknum
aðstæðum, sem dæmi má nefna
fyrrnefnda Hæstaréttardóma.
Er þörf á að breyta
nauðgunarákvæðinu?
Því hefur verið haldið fram að
enn sé nauðsynlegt að breyta 194.
gr. almennra hegningarlaga og
þá þannig að það sé talið nauðgun
þegar samþykki beggja aðila skorti
til samræðis eða annarra kynferð-
ismaka. Rökin hafa m.a. verið talin
þau að þannig séu allir verndaðir en
ekki aðeins minnihluti fórnarlamba
nauðgana. Ég vík þá aftur að orðum
mínum í upphafi greinarinnar og
ítreka þá skoðun mína að samræði
eða önnur kynferðismök við mann-
eskju gegn vilja hennar er óásætt-
anlegur verknaður. Hins vegar tel
ég nauðsynlegt fyrir þá sem starfa
að þessum málaflokki að þeir njóti
leiðsagnar skýrrar verknaðarlýs-
ingar lagaákvæðis.
Að mínu mati veitir orðalag
nauðgunarákvæðis almennra
hegningarlaga brotaþolum nægi-
lega vernd. Yrði ákvæðinu breytt
á þann veg að ofbeldi, hótanir eða
önnur ólögmæt nauðung yrði fjar-
lægð úr verknaðarlýsingu ákvæð-
isins hefði það fyrst og fremst
táknræna þýðingu en ólíklegt er
að breytingin myndi skila sér á
annan hátt, t.d. með fleiri ákær-
um og sakfellingum. Hins vegar
myndum við standa uppi með mun
óskýrara ákvæði en nú. Slíkt ber
að forðast enda er það til þess fall-
ið að valda enn meiri tortryggni
manna á því að hvaða atriðum
sönnun beindist.
Í reynd beinist sönnun að því nú
hvort samræði eða önnur kynferð-
ismök hafi farið fram gegn vilja
brotaþola. Kemur skýrt fram í
greinargerð hversu mikil áhersla
er á viljaafstöðu brotaþola eins og
áður sagði. Eftir sem áður stönd-
um við frammi fyrir sömu réttar-
farsreglum og áður voru nefndar
og ásetningi sem refsiskilyrði.
Þess má geta í þessu samhengi
að sé brotaþoli undir 15 ára aldri
verður nauðgunarákvæðinu beitt
samhliða ákvæði 1. mgr. 202. gr.
almennra hegningarlaga, sem
leggur bann við því að hafa sam-
ræði eða önnur kynferðismök við
barn undir 15 ára aldri. Það varð-
ar þó sömu refsingu og nauðgun
að brjóta gegn barni á þennan hátt
en séu skilyrði fyrir hendi er rétt
að ákæra fyrir brot gegn báðum
ákvæðunum. Oftast er um nauð-
ung að ræða eins og aðstæður þar
sem barnið „frýs“ og spornar ekki
gegn verknaðinum. Það sama ætti
að eiga við þegar barn er það ungt
að það skilur ekki hvað athöfnin
felur í sér. Hvað fyrrnefnda atriðið
varðar má nefna dóm Hæstaréttar
nr. 229/2008 sem áður var nefndur
og dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í
máli nr. 299/2009.
Ákæruvald og dómstólar
verða að sýna hlutleysi
Ég vona að ég hafi haft árangur
sem erfiði við að upplýsa um við-
fangsefni þeirra sem rannsaka,
ákæra og dæma í kynferðisbrota-
málum og þau vandamál sem þeir
standa frammi fyrir við meðferð
slíkra mála. Þetta eru ekki verk-
efni sem verða leyst á vélrænan
hátt án mannlegra tilfinninga.
Þessum aðilum ber hins vegar
í störfum sínum að sýna hlutleysi
og gera ekki greinarmun á því
hvort brotaþoli eða sakborning-
ur á í hlut. Fyrir það, þó ekki væri
annað, ættu þeir að njóta skilnings
almennings. Þegar upp er staðið
hlýtur niðurstaðan ávallt að vera
sú, að við viljum hafa lagareglur
sem vernda alla.
Höfundur er aðstoðarsaksóknari
í kynferðisbrotamálum hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Að horfa jafnt til sýknu og sektar
SIGRÍÐUR
HJALTESTED
KAUPUM GEGN
STAÐGREIÐSLU
Mercedes Benz GL, ML 320 Cdi
Landrover Discovery Dísel
LandCruiser 200 (bensín & dísel)
Range Rover Vogue V8 Dísel
Range Rover Sport Dísel
Audi Q7 Dísel
BMW X5 Dísel
Árgerð 2007 og yngra
Sendu myndir og upplýsingar í tölvupósti á:
deutsche.auto@gmail.com eða hringdu í síma 821 9980.
Pólýfónfélagið Pólýfónkórinn
Aðalfundur Pólýfónfélagsins verður haldinn laugardaginn 14.nóvember
2009 kl. 14:00 á Grand- Hótel, Sigtúni 38 í salnum Háteigi B, sem er á
4.hæð í nýju byggingunni.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar um starfi ð undanfarin
ár, reikningar félagsins, og kosningar. Loks verða almennar umræður um starfi ð
framundan, áframhald útgáfustarfsins og fl eira. Geisladiskar, mynddiskar og
fl eira verður til sölu á sérkjörum.
Vonast er til að allir félagar mæti vel og stundvíslega.
Auglýsingasími
– Mest lesið