Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 40
12. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● nærfatnaður & náttföt
La Senza býður upp á breitt
stærðar- og litaúrval en þar er
hægt að finna nærföt í stíl við
nánast hvaða föt sem er.
Starfsmenn La Senza eru í óða önn
að taka upp jólavörurnar þessa
dagana en þar á meðal eru sloppar,
inniskór og baby doll-kjólar í úr-
vali. „Við erum með mikið í rauðu
og svörtu að vanda en líka í neon-
bleiku, grænu, bláu og fjólubláu,“
segir verslunarstjórinn Þóra Hlíf
Jónsdóttir.
La Senza, sem sérhæfir sig í
nátt- og nærfatnaði, opnaði á Ís-
landi fyrir sjö árum en keðjan var
stofnuð í Kanada árið 1990. Hún er
í dag í eigu Limited Brands, eig-
anda Victorias Secret, og starf-
rækir yfir 700 verslanir í yfir þrjá-
tíu löndum um allan heim.
La Senza leggur upp með að það
eigi að vera einstök tilfinning að
koma inn í verslanirnar og að við-
skiptavinurinn upplifi persónu-
lega þjónustu. „Við bjóðum upp á
brjóstahaldaramátun og leggjum
mikla áherslu á innpökkun vör-
unnar með ilmkúlum og öðru fín-
eríi. Þá erum við með ilmvötn og
sturtusápur í úrvali sem henta vel
í gjafapakkann eða handa þeim
konum sem vilja gera sérstaklega
vel við sig. Eins státar La Senza af
mörgum stærðum, frá 30 A og upp
í 38 FF auk þess sem von er á stærð
40 G innan tíðar,“ segir Þóra. Hún
fullyrðir að konur af öllum stærð-
um og gerðum geti því fundið eitt-
hvað við sitt hæfi.
Í versluninni er bæði að finna
hefðbundin og blúnduskreytt nær-
föt en litaúrvalið er með fjölbreytt-
ara móti. „Ef konur vantar til
dæmis brjóstahaldara undir fjólu-
bláan kjól þá er hægt að fá hann
hjá okkur. Þá erum við með gott
úrval af brjóstahöldurum sem er
hægt að breyta á ýmsa vegu og til
dæmis skipta um hlýra, taka þá af
eða gera kross í bakið en þannig
má með auðveldum hætti laga þá
að klæðnaði hverju sinni.“
Litadýrð og gott viðmót
Mikið er lagt upp úr framsetningu vörunnar í versluninni og er henni ávallt pakkað inn eftir kúnstarinnar reglum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● DUTTLUNGAR TÍSKUNNAR
Elstu lífstykki sem vitað er um eru frá 12.
öld, gerð úr járni, og er vitað til þess að
konur hafi látið fjarlægja úr sér rifbein til
að passa betur í þau. Lífstykki urðu ekki
eðlilegur hluti af klæðnaði kvenna fyrr en
á endurreisnartímabilinu. Hugsuðir upp-
lýsingastefnunnar töldu þau heilsuspill-
andi og mótmæltu ákaft notkun þeirra
um 1770. Franskar konur fóru að
ganga í lífstykkjum án þving-
ana eftir frönsku byltinguna
og slepptu þeim á nýklassíska
tímanum. Þau öðluðust nýtt
líf á biedermeier-tímanum, um
1825. Um 1840 voru þau svo eftir-
sótt að meira að segja karlar klæddust
þeim. Nú, eftir umtalsverð-
ar bætur, njóta þau nokkurra
vinsælda.
Heimild: Tíska aldanna
Lífstykki litu sum hver svona
út á 16. öld en þetta er gert úr
járni.
Nú eru
lífstykki öllu
þægilegri.
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
1000 kr. stykkið.
Nýtt kortatímabil.
Nærföt
● NÝTT VOPN Í BARÁTTUNNI Breskir vísindamenn við Háskólann
í Bolton eru að þróa brjóstahaldara sem þeir vonast til að geti orðið nýtt
vopn í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Í honum eru skynjarar sem
nema hitabreytingar í brjóstinu en hækkandi hiti á ákveðnu svæði getur
bent til vefjabreytinga eða mögulegrar krabbameinsmyndunar.
Haldarinn mun gefa frá sér hljóð- eða sjónmerki sem gefur notandan-
um til kynna að eitthvað geti mögulega verið að. Prófessor Elias Siores,
sem stýrir rannsókninni, vonast til þess að brjóstahaldarinn geti orðið til
þess að krabbameinið uppgötvist á fyrri stigum og að hann geti aukið
lífslíkur þeirra kvenna sem þegar hafa greinst en hann sér fyrir sér að þær
geti gengið í haldaranum meðan á meðferð stendur. Hann segir engar
aukaverkanir fylgja örbylgjunum en að haldarinn, sem hann vonast til að
komi á markað innan tveggja ára, muni kosta sitt.
Brjóstahaldarinn kemur á markað innan
tveggja ára og vonast menn til að hann
geti orðið til þess að brjóstakrabbamein
greinist á fyrri stigum.
Kringlan - Smáralind - Akureyri