Fréttablaðið - 12.11.2009, Page 44

Fréttablaðið - 12.11.2009, Page 44
 12. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● nærfatnaður & náttföt ● TRÚARLEG TENGING NÆRKLÆÐA Nærföt hafa sums staðar, rétt eins og annar fatnaður, öðl- ast táknrænt eða trúarlegt gildi. Víða tengist notkun þeirra trúarleg- um kröfum um að hylja beri þá staði líkamans sem tengja má við getn- að. Enn hafa nærbuxur sums stað- ar greinilega táknræna merkingu. Þannig nota til dæmis sumir hindúar ákveðna gerð nærbuxna til að hemja ástríður sínar. Eins klæðast mormón- ar bómullarsamfestingum innstum klæða til að minna sig stöðugt á ým- islegt sem lýtur að hreinlífi og trú- festu. Heimild. www.visindavefur.is. ● SAGA BRJÓSTAHALDARANS Konur hafa öldum saman notað einhvers konar klæði sem líkjast brjóstahöldurum. Líklegt þykir að brjóstahaldarar í þeirri mynd sem við þekkjum hafi svo smám saman þróast út frá þessu klæðum. Heiðurinn að fyrsta ósvikna brjóstahaldar- anum er oft eignaður annaðhvort Herminie Cadolle eða Mary Phelps Jacob. Flík Cadolle er frá árinu 1889, hún var tvískipt og efri hlutinn átti að halda uppi brjóstum og styðja við þau. Jacob þykir síður eiga þenn- an heiður skilinn þótt hennar brjóstahaldari sé líkari því sem konur eiga að venjast. Jacob fékk einkaleyfi á hönnun sinni árið 1914. Síðan þá hefur brjóstahaldarinn þróast enn frekar, hann er framleiddur í ýmsum skálastærðum og fæst í alls konar gerðum: hlýralaus, fóðraður, meðgönguhaldari og svo framvegis. Heimild: www.visindavefur.is ● G-STRENGURINN Síð- ustu misseri hefur G-streng- urinn notið mikilla vinsælda, en margt er á huldu um upp- runa þessa þarfaþings og þar á meðal hvernig sjálft heitið er til komið. Vitað er að orðið g- string eða geestring var notað yfir lendaskýlur indíána seint á 19. öld. Sennilegt þykir að orðið sem notað er yfir nærhaldið sé dregið af því. Þó er ekki vitað með vissu hvernig lendaskýl- an sjálf hlaut þetta heiti. Ein til- gátan er sú að bókstafurinn g sé stytting á orðin girdle, sem þýðir sokkabandabelti. Heimild: www.visinda- vefur.is. Karlar og konur hafa löngum haft gaman af því að finna út meðal- stærð hinna ýmsu líkamsparta og eru brjóstin ekki undanskilin. Brjóstastærð er mæld í bókstöf- um frá A og upp úr auk þess sem ummálið í tölustöfum fylgir með. Bæði málin hafa vaxið umtalsvert á undanförnum árum. Um miðjan síðasta áratug var meðal brjóstastærð í Bretlandi 34B. Hún er nú komin í 36C og virðist tilhneigingin vera svipuð í öðrum löndum. Á það jafnvel líka við hjá asískum konum sem lengst af hafa flestar verið í stærð A. Skýringarnar á þessu eru einkum tvær, brjóstastækkanir og vaxandi ummál kvenna almennt. - ve Meðalstærðin komin í 36C Pamela Anderson er ein þeirra kvenna sem kom af stað bylgju brjóstastækkana um miðjan síðasta áratug. Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til að koma þér af stað á mjög árangurs ríkan og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðsins er að koma þér á æðra stig hvað varðar líkamlega og andlega heilsu. Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur 3 öflugir brennslutímar 2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara Vikulegar mælingar Ítarleg næringarráðgjöf Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu Hollustudrykkur eftir hverja æfingu Takmarkaður fjöldi 6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon 1. vika – Orkuhleðsla Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi. 2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest út úr holla matnum sem þú ert að borða. 3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft. 4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja líkamann á náttúrulegan hátt. Ný námskeið hefjast 16. nóvember Fyrirlestur 14. nóvember Skráning er hafin í síma 444 5090 eða nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is Hilton Reykjavík Nordica Hotel Suðurlandsbraut 2 Sími 444 5090 nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is fyrir konur og karla Sjöfn Sigþórsdóttir hjúkrunarfræðingur og María Kristjánsdóttir lögmaður Námskeiðið er frábær leið til að auka styrk, úthald og hreyfigetu. Við erum betur í stakk búnar að takast á við krefjandi verkefni Ég breytti um LÍFSSTÍL og þú getur það líka. Búinn að missa yfir 20 kíló á tveimur og hálfum mánuði og er enn að léttast Gissur Ísleifsson tölvunarfræðingur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.