Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 52
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
36 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Veistu hvað
Bára?
Mér finnst að þú ættir
að hreyfa litla sæta
rassinn þinn og sækja
bjór handa manninum
þínum!
Enn
einu
sinni?
Jebb!
Kýldu á það!
Koma svo!
Koma svo!
Allt í lagi að segja
það bara endrum og
sinnum! Afríska teið
eða Earl Grey?
Þú getur
það aldrei!
Ójú,
ég get
það.
Þú heldur því fram
að þú getir fengið
manneskju til að
svífa um loftið án
þess að snerta hana.
Sannaðu
það.Ein-
mitt.
ÉG SKAL
SVARA!
Börnin
hitta
jólasveininn
Ble! Er allt í
lagi?
Alltaf þegar ég sakna
gömlu vinnunnar þá
treð ég mér í gömlu
þröngu fötin og löng-
unin hverfur.
Það er nú eitt og
annað sem þú gætir
lært af tannálfinum
- af hverju gefurðu
okkur ekki bara
peninga!?!
Ha? Afríska.
Dauðinn er ekki mikið í umræðunni á Vesturlöndum. Að minnsta kosti ekki
miðað við í Mexíkó þar sem tímarit með
limlestum líkum úr bílslysum eru vinsæl
og haldið er upp á dag dauðra með mikilli
veislu og dansandi beinagrindum í byrjun
nóvember. Þessi ekki svo óvæntu endalok
þykja ægilegt tabú hjá okkur og ef maður
spáir of mikið í þetta fer fólk að skamma
mann og segja að maður hafi óeðlilegan
eða jafnvel óhugnanlega mikinn áhuga á
málinu.
EKKI misskilja mig, ég er ekkert mikið að
spá í dauðann og ekki heldur að kvarta yfir
lítilli umfjöllun. Mér finnst bara að fólk
gleymi dauðanum of oft í dagsins önn. Í
ljósi þessara óumflýjanlegu endaloka er
fólk allt of mikið að æsa sig og missa sig í
óþarfa leiðindi. Til hvers að eyða tímanum
í leiðindi þegar við liggjum öll steindauð
eftir hlægilega lítinn tíma (í jarðfræði-
legum skilningi)?
ÉG TEK því þess vegna með opnum
hug þegar Dagbjartur, sex ára
sonur minn, er að velta þessu fyrir
sér. Hann og vinir hans voru að
spá í dauðann og komust að þeirri
niðurstöðu og mikill munur væri
á því að vera dáinn og að vera
dauður. „Ef maður er dauður þá
dó maður á einhvern hræðilegan hátt, eins
og til dæmis að verða fyrir eldingu, en ef
maður er dáinn þá dó maður bara venju-
lega,“ sagði Dagbjartur. Þetta var niður-
staða strákanna. Þetta fannst mér nokkuð
rökrétt því „dauður“ er mun óvægnara orð
en „dáinn“. Dýr drepast og éta, en við kon-
ungar sköpunarinnar deyjum og borðum.
Ég var ekkert að leiðrétta hann.
ALLIR eru jafnir í dauðanum. Þetta hefur
farið fram hjá fréttafólki. Nýjabrumið er
svo mikilvægt að farið er hamförum yfir
svínaflensu, hún kölluð faraldur og reynt
að æsa mann upp í að fá stresskast. Á einu
ári látast hér að meðaltali 400 manns af
völdum reykinga, en það þykir ekkert
merkilegt og enginn talar um faraldur í
því sambandi. Kannski myndu daglegar
nákvæmnisfréttir í æsistíl af reykingafar-
aldinum gera einhverja nógu taugaveiklaða
til að fá sér móteitur: Að hætta að reykja.
LÍKLEGAST er svona lítið talað um dauð-
ann af því hann er svo leiðinlegur. Þrátt
fyrir að ýmsar hugmyndir hafi verið settar
fram eru menn engu nær um hvað taki við.
Ég er fullviss um að það verði annað hvort
eitthvað eða ekki neitt. Ég er líka nokkuð
viss um að maður þarf ekki lengur að
borga skatta og vaska upp. Það er því eftir
einhverju að slægjast.
Dánir og dauðir