Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.11.2009, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 12.11.2009, Qupperneq 52
BAKÞANKAR Dr. Gunna 36 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Veistu hvað Bára? Mér finnst að þú ættir að hreyfa litla sæta rassinn þinn og sækja bjór handa manninum þínum! Enn einu sinni? Jebb! Kýldu á það! Koma svo! Koma svo! Allt í lagi að segja það bara endrum og sinnum! Afríska teið eða Earl Grey? Þú getur það aldrei! Ójú, ég get það. Þú heldur því fram að þú getir fengið manneskju til að svífa um loftið án þess að snerta hana. Sannaðu það.Ein- mitt. ÉG SKAL SVARA! Börnin hitta jólasveininn Ble! Er allt í lagi? Alltaf þegar ég sakna gömlu vinnunnar þá treð ég mér í gömlu þröngu fötin og löng- unin hverfur. Það er nú eitt og annað sem þú gætir lært af tannálfinum - af hverju gefurðu okkur ekki bara peninga!?! Ha? Afríska. Dauðinn er ekki mikið í umræðunni á Vesturlöndum. Að minnsta kosti ekki miðað við í Mexíkó þar sem tímarit með limlestum líkum úr bílslysum eru vinsæl og haldið er upp á dag dauðra með mikilli veislu og dansandi beinagrindum í byrjun nóvember. Þessi ekki svo óvæntu endalok þykja ægilegt tabú hjá okkur og ef maður spáir of mikið í þetta fer fólk að skamma mann og segja að maður hafi óeðlilegan eða jafnvel óhugnanlega mikinn áhuga á málinu. EKKI misskilja mig, ég er ekkert mikið að spá í dauðann og ekki heldur að kvarta yfir lítilli umfjöllun. Mér finnst bara að fólk gleymi dauðanum of oft í dagsins önn. Í ljósi þessara óumflýjanlegu endaloka er fólk allt of mikið að æsa sig og missa sig í óþarfa leiðindi. Til hvers að eyða tímanum í leiðindi þegar við liggjum öll steindauð eftir hlægilega lítinn tíma (í jarðfræði- legum skilningi)? ÉG TEK því þess vegna með opnum hug þegar Dagbjartur, sex ára sonur minn, er að velta þessu fyrir sér. Hann og vinir hans voru að spá í dauðann og komust að þeirri niðurstöðu og mikill munur væri á því að vera dáinn og að vera dauður. „Ef maður er dauður þá dó maður á einhvern hræðilegan hátt, eins og til dæmis að verða fyrir eldingu, en ef maður er dáinn þá dó maður bara venju- lega,“ sagði Dagbjartur. Þetta var niður- staða strákanna. Þetta fannst mér nokkuð rökrétt því „dauður“ er mun óvægnara orð en „dáinn“. Dýr drepast og éta, en við kon- ungar sköpunarinnar deyjum og borðum. Ég var ekkert að leiðrétta hann. ALLIR eru jafnir í dauðanum. Þetta hefur farið fram hjá fréttafólki. Nýjabrumið er svo mikilvægt að farið er hamförum yfir svínaflensu, hún kölluð faraldur og reynt að æsa mann upp í að fá stresskast. Á einu ári látast hér að meðaltali 400 manns af völdum reykinga, en það þykir ekkert merkilegt og enginn talar um faraldur í því sambandi. Kannski myndu daglegar nákvæmnisfréttir í æsistíl af reykingafar- aldinum gera einhverja nógu taugaveiklaða til að fá sér móteitur: Að hætta að reykja. LÍKLEGAST er svona lítið talað um dauð- ann af því hann er svo leiðinlegur. Þrátt fyrir að ýmsar hugmyndir hafi verið settar fram eru menn engu nær um hvað taki við. Ég er fullviss um að það verði annað hvort eitthvað eða ekki neitt. Ég er líka nokkuð viss um að maður þarf ekki lengur að borga skatta og vaska upp. Það er því eftir einhverju að slægjast. Dánir og dauðir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.