Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.11.2009, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 12.11.2009, Qupperneq 56
40 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR Bókmenntir ★★ Elías Snæland Jónsson Rúnagaldur Sótt í horfinn heim Í Rúnagaldri segir frá glímu sjónvarpskonunnar Melkorku við arfleifð afa síns, Höskuldar, en við sviplegt fráfall hans kemur ýmislegt gruggugt í ljós. Melkorka fer á slóð afa síns í gegnum dagbækur, ferðast um horfinn heim nasista sem leituðu í horfinn heim Eddukvæðanna. Höfundurinn fléttar ágætlega saman þeim hugmyndum sem framámenn Þriðja ríkisins höfðu um uppruna hins germanska kynstofns, við leit hins unga fræðimanns að sannleikanum. Bestu kaflar bókarinnar segja frá lífi afans. Þar vantar þó aðeins upp á; skrefið sem Höskuldur stígur frá því að verða norrænufræð- ingur í að verða ötull fylgismaður SS-sveitanna, og þess óumræðanlega hryllings sem þær stóðu fyrir, er til dæmis hálfótrúverðugt og lítið skýrt í sögunni. Þá vantar upp á persónusköpunina í þeim hluta sem gerist í nútímanum. Lítill áhugi kviknar hjá lesendum á örlögum Melkorku og hennar fólks, höfundur hleypir lesendum lítið inn í sálarlíf þess. Sagan á þó ágætisspretti sem vinna hefði mátt betur úr, hún skautar á köflum full mikið yfir framvindu mála. Kolbeinn Óttarsson Proppe Niðurstaða: Þokkaleg saga sem hefði orðið mun betri með frekari úrvinnslu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 12. nóvember 2009 ➜ Tónleikar 20.00 Ourlives heldur útgáfutónleika í Hafnarfjarðarleikhúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. 20.00 Pulling Teeth verða með tón- leika á Gamla bókasafninu, kaffi- og menningarhúsi ungs fólks við Mjósund í Hafnarfirði. Einnig koma fram Tentacles of Doom, Hark og Logn. 20.30 Magnús Kjart- ansson er gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröð- inni „Af fingrum fram“ í Salnum við Hamraborg í Kópavogi. 21.00 Erik Qvick og félagar í Lighthouse kvartettnum taka ofan hattinn fyrir trommugoðsögninni Elvin Jones og leika lög eftir David Liebman og Steve Grossman ofl. á tónleikum í djasskjall- ara Café Cultura við Hverfisgötu. 21.00 Trúbadora-dúettinn Hobbitarnir verða með tónleika í Frumleikhúsinu við Vesturbraut í Reykjanesbæ. 21.00 Janis Joplin tribute verður á Græna hattinum Hafnarstræti 96 á Akureyri. Húsið verður opnað kl 20. 22.00 Rafbandið Stereo Hypnosis heldur útgáfutónleika á Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu. Ruxpin sér um upphitun. ➜ Opnanir 16.00 Í Safnahúsi Borgarfjarðar við Bjarnarbraut í Borganesi, verður opnuð ljóðasýning barna í fimmtu bekkjum grunnskólanna í nágrenninu. Opið alla virka daga kl. 13-18. 17.00 Sýning á verkum Soffíu Sæmundsdóttur opnar í Artóteki, 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur við Tryggvagötu 15. Opið mán.-fim. kl. 10- 19, fös. kl. 11-19 og um helgar 13-17. ➜ Ljóð og lög 20.00 Mohawks og Poetrix standa fyrir Open Mic-kvöldi í kjallara Kaffi Rótar við Hafnarstræti 17. Listamenn stíga á svið og flytja lög, texta eða ljóð en svo verður orðið gefið laus. ➜ Sýningar Í Listasafni Árnesinga við Austurmörk í Hveragerði standa yfir sýningarnar Þræddir þræðir: samsýning Ásgerðar Búadóttur, Hildar Hákonardóttur, Guð- rúnar Gunnarsdóttur og Hildar Bjarna- dóttur og Einu sinni er: sýning Hand- verks og hönnunar þar sem þemað er „gamalt og gott“. Opið fim.-sun. kl. 12-18. Pétur Gautur sýnir olíuverk í Eplinu við Borgartún 26. Opið virka daga kl. 9-18 og lau. kl. 9-15. Margrét Jónsdóttir listmálari hefur opnað sýningu í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna við Þverholt. Opið virka daga kl. 12-19 og lau. kl. 12-15. Íslensk grafík 40 ára, sýning í tilefni af 40 ára afmæli félagsins stendur nú yfir í í Norræna húsinu við Sturlugötu. Opið þri.-sun. kl. 12-17. ➜ Síðustu forvöð Sýningu Gjörningaklúbbsins „Svartir svanir“ í Kling & Bang galleríi lýkur á sunnudag. Kling & Bang, Hverfisgötu 42. Opið fim.-sun. kl. 14-18. ➜ Leikrit 20.00 Listafélag Verzlunarskóla Íslands sýnir leikritið Poppkorn eftir Ben Elton. Sýningar fara fram í hátíðar- sal skólans við Ofanleiti. Nánari upplýs- ingar á www.nfvi.is. ➜ Upplestur 17.00 Árni Matthí- asson les upp úr bók sinni „Papa Jazz: Lífs- hlaup Guðmundar Steingrímssonar“ í Bókasafni Hafnarfjarð- ar við Strandgötu. Papa Jazz mætir með tromm- urnar, spilar og spjallar við gesti. Allir velkomnir. 19.00 Þýski sendiherrann býður öllum áhugasömum um þýskar bók- menntir og atburðarins 9. nóvember 1989 þegar Múrinn féll, að hlýða á rit- höfundalestur þriggja þýskra rithöfunda. Renatus Deckert, Annett Gröschner og Thomas Rosenlöcher sem munu lesa úr bókinni „In der Nacht als die Mauer fiel“ og síðan svara spurningum viðstaddra. Upplesturinn fer fram að Túngötu 18. 20.30 Ljóðaklúbburinn Hási kisi stendur fyrir ljóðaupplestri í fokheldu einbýlishúsi að Hömrum 19 á Egils- stöðum. Aðgangur er ókeypis og gestir hvattir til að koma vel klæddir. ➜ Fyrirlestrar 20.00 Í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu verða flutt erindi sem fjalla um hvernig hönnun, sköpun og viðskipti mætast. Erindin flytja Margrét Sigrún Sigurðardóttir, Helga Valfells og Gunnar Hilmarsson. Allir velkomnir. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Í dag verður opnuð í horni Artóteksins í Borgar- bókasafni í Grófarhúsi sýning á myndverkum Soffíu Sæmundsdóttur myndlistarmanns. Málverk Soffíu hafa stundum verið kölluð sögumálverk vegna þess að myndir hennar búa yfir frásögn af einhverju tagi með sínum óljósu mannverum í landslagi sem greinilega er íslenskt þótt ekki sé það ráðandi í myndinni. Mannvera og land takast á í rými sem áhorfandanum er tamt að lesa í einhverja sögu. Sjálf kallar Soffía á ferðalanga, þeir hafa dálitla vængi til að hefja sig yfir hvunndaginn og tilheyra furðu- heimi sem áhorfendur fá aðeins að gægjast inn í litla stund. Soffía vinnur verk sín oft á tré, úr æðun- um í viðnum spretta fram undraheimar. Pappír og hvítur strigi veita aðra möguleika og efnisnotkun hefur áhrif á útkomuna. Soffía Sæmundsdóttir lærði myndlist við grafík- deild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987-1991 og lauk mastersgráðu í málun frá Mills College í Oakland, Kaliforníu 2003. Frá því Soffía lauk námi hefur hún verið virk í íslensku myndlistarlífi og vakið athygli fyrir málverk sín og teikningar. Soffía Sæmundsdóttir hefur tekið þátt í fjölmörg- um samsýningum og haldið einkasýningar, bæði á Íslandi og erlendis í Evrópu og Ameríku. Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir list sína. Má þar nefna Jay De Fao-verðlaunin (2003) og Joan Mitchell Painting and sculpture award (2004), kennd við samnefndar stofnanir, styrk úr ferða- og dvalarsjóði Muggs og vinnustofudvöl í Kanada og á Íslandi. Verk Soffíu eru í eigu fjölmargra opin- berra aðila og stofnana. Á sýningunni eru olíumál- verk á tré og striga og einþrykk á pappír. Á vegg verður sýnt myndbandið Málarinn við höfnina, sem er innsýn í myndheim Soffíu en það gerði sonur hennar, Erlendur Sveinsson, nemi við Kvikmyndaskóla Íslands. Sýningin stendur til 13. desember, opið er mánu- daga til fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-19 og um helgar kl. 13-17. - pbb Ferðalangar í landinu MYNDLIST Mannvera í landinu. Eitt verka Soffíu á sýningunni í Artótekinu. MYND/ARTÓTEK Íslensk píanótónlist verður í forgrunni þegar píanóleikarinn Tinna Þorsteinsdóttir kemur fram á tónlistarhátíðinni Autunno Musicale í Capua á Ítalíu á morgun. Hátíðin er viðamikil og fjölbreytt og stendur yfir allt haustið í Cas- erta-sýslu í grennd við Napólí. Tinna kemur fram undir sérstökum lið hátíð- arinnar þar sem ný píanótónlist er kynnt og mun leika verk eftir þau Þorstein Hauksson, Þuríði Jónsdóttur, Hilmar Þórðarson, Karólínu Eiríksdóttur, Mist Þorkelsdóttur og Jón Leifs. Á hátíðinni kemur fram breiður hópur þekktra listamanna sem og ýmsir ungir og upp- rennandi sigurvegarar keppna á borð við Schubert-keppninnar í Graz, kammermúsíkkeppninnar í Lyon, Cleveland-píanókeppninnar og Bach-keppninnar í Leipzig til að nefna nokkrar. Heimasíða hátíð- arinnar er www.autunnomusicale.altervista.org/ Ferð Tinnu er styrkt af Reykjavík Loftbrú. - pbb Tinna í Capua TÓNLIST Tinna Þor- steinsdóttir píanó- leikari. F R U M F L U T N I N G U R Á D E G I H E I L A G R A R S E S S E L Í U ÓRATÓRÍAN EFTIR ÁSKEL MÁSSON CECILÍA FYRIR FJÓRA EINSÖNGVARA, BLANDAÐAN KÓR, TVÖ ORGEL OG HLJÓMSVEIT TEXTI: THOR VILHJÁLMSSON STEINHARPA OG VATNSTROMMUR EFTIR PÁL Á HÚSAFELLI Þ ó ra E i n a r s d ó t t i r s ó p ra n : H e i l ö g C e c i l í a , v e r n d a r d ý r l i n g u r t ó n l i s t a r i n n a r B ra g i B e rg þ ó r s s o n t e n ó r : Va l e r í a n u s , e i g i n m a ð u r C e c i l í u Ág ú s t Ó l a fs s o n b a r í t o n : T í b ú r k í u s , b r ó ð i r Va l e r i a n u s a r B j a r n i Th o r K r i s t i n s s o n b a s s i : A l m a k h í u s g r e i f i Þ ó rg u n n u r A n n a Ö r n ó l fs d ó t t i r : e n g i l l M ó t e t t u kó r H a l l g r í m s k i r k j u K a m m e r s ve i t H a l l g r í m s k i r k j u Ko n s e r t m e i s t a r i : U n a Sve i n b j a r n a rd ó t t i r S t j ó r n a n d i : H ö r ð u r Á s ke l s s o n H A L LG R Í M S K I R K J A S U N N U DAG I N N 22. N Ó V E M B E R 2009 K L. 16.00 Ve r k i ð v a r p a n t a ð a f L i s t v i n a f é l a g i H a l l g r í m s k i r k j u m e ð s t y r k f rá K r i s t n i h á t í ð a r s j ó ð i , Tó n l i s t a r s j ó ð i m e n n t a m á l a r á ð u n e y t i s i n s , M e n n i n g a r - o g f e r ð a m á l a r á ð i R e y k j a v í k u r b o r g a r o g K r i s t n i s j ó ð i . LIST VINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRK JU 27. STARFSÁR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.