Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 62
46 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Hljómsveitin Hvanndalsbræð-
ur tekur nú starf sitt með mikl-
um alvörubrag ólíkt því sem áður
tíðkaðist. Hljómsveitin hefur líka
aldrei verið jafn vinsæl. Hún hefur
átt tvo stórsmelli á árinu sem heyr-
ast á öllu útvarpsstöðvum lands-
ins og í spinningtímum. Sveitin
vinnur nú að efni á sjöttu plötuna
sem koma mun út í vor og verð-
ur frábrugðin fyrri plötum. Eins
og áður hefur komið fram verður
bandið með í undankeppni Eurov-
ision og það gefur út sína útgáfu
af jólasálminum „Í Betlehem er
barn oss fætt“ á næstu dögum. Þá
verður ráðist í að semja titillag
leikverksins 39 þrep eftir Alfred
Hitchcock, sem Leikfélag Akur-
eyrar sýnir eftir áramót.
Annir í Hvanndal
Í HITCHCOCKLEIKRITI Brjálað að gera hjá Hvanndalsbræðrum.
„Þetta er „súpudagur“ fatahönnuða,
með þessu framtaki viljum við þakka
fólki góðar móttökur og bjóða fólki í
heimsókn og upplifa skemmtilega jóla-
stemningu í leiðinni,“ segir Gunnar
Hilmarsson, formaður Fatahönnunar-
félags Íslands.
Fatahönnuðir við Laugaveg og nær-
liggjandi götur bjóða gestum og gang-
andi í heimsókn í kvöld. Boðið verður
upp á veitingar og ýmis skemmti-
atriði auk þess sem fólki gefst færi
á að skoða nýjar jóla- og vetrarvör-
ur. „Hönnunarverslunum hefur fjölg-
að mjög hratt á síðustu árum og nú
hefur myndast skemmtilegur kjarni
hönnunarverslana í kringum Lauga-
veg og nærliggjandi götur. Stór hópur
fólks kemur niður í miðbæ til að heim-
sækja þessar verslanir og þið getið
rétt ímyndað ykkur hversu tómlegur
Laugavegurinn væri ef þessar hönnun-
arverslanir væru ekki.“
Sextán hönnunarverslanir í mið-
bænum taka þátt og má nefna verslan-
ir á borð við Nikita, Elabel, Andersen
og Lauth, Steinunn, ELM, Júniform,
Nakta apann auk annarra. „Það er
mikill samhugur meðal fatahönnuða
og fólk talar mikið saman, skiptist
á upplýsingum og hjálpar hvað öðru
og við höfum einnig staðið að nokkr-
um samsýningum fyrir viðburði, eins
og Bleika kvöldið.“ Aðspurður segir
Gunnar að áætlað sé að gera þetta að
föstum lið og að félagið standi fyrir
degi sem þessum tvisvar á ári, fyrir
jól og aftur að vori.
Dagskráin hefst klukkan 18.00 og
stendur til klukkan 21.00. - sm
Fatahönnuðir bjóða í heimsókn
KRAFTMIKLIR HÖNNUÐIR Gunnar Hilmarsson,
formaður Fatahönnunarfélags Íslands, segir
fatahönnun vera í mikilli uppsveiflu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fjöldi þekktra tónlistarmanna
kemur fram á tónleikum Lions-
klúbbsins Fjörgynjar sem verða
haldnir í Grafarvogskirkju á
fimmtudaginn. Á meðal þeirra
verða Friðrik Ómar og Jógvan,
Páll Óskar og Monika, Lay Low,
Hörður Torfason, KK og Ellen
Kristjánsdóttir. Karlakórinn
Fóstbræður stígur einnig á svið.
Þetta er sjöunda árið í röð sem
Fjörgyn stendur fyrir þessum
góðgerðatónleikum og hefur
aðsókn ávallt verið mjög góð.
Allur ágóði rennur til Barna-
og unglingageðdeildar LSH og
líknar sjóðs Fjörgynjar. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 20 og er
miðaverð 2.500 krónur.
Styrkja börn
> HITTIR FORELDRA JESUS
Madonna og kærasti hennar, Jesus
Luz, lentu í Brasilíu í gær og munu
dvelja í landinu í nokkra daga. Á
meðan á dvölinni stendur mun
Madonna meðal annars hitta
foreldra Jesus í fyrsta sinn,
en móðir piltsins er
heilum fimmtán árum
yngri en Madonna.
Galdrakarlinn Einar M.
Sverrisson sýndi töfrabrögð
í Noregi fyrir 400 manns
við góðar undirtektir.
„Ég var á Íslenska barnum á
mánudagskvöldinu í síðustu viku
að sýna barþjónunum nokkur
töfrabrögð þegar maður á endan-
um á barnum spurði; „How‘s the
icelandic depression?“ Ég nennti
ekki að ræða það svo ég sýndi
honum nokkur brögð. Eftir korter
sagðist hann vera með stórt kvöld
í Óperunni í Ósló þremur dögum
síðar þar sem hann vildi fá mig
til að sýna og þremur klukkutím-
um síðar var hann búinn að bóka
fyrir mig flug, hótel og ganga frá
öllum smáatriðum,“ segir Einar
M. Sverrison töframaður. Honum
var boðið til Ósló af Bjorn Nor-
mann, eiganda fyrirtækisins Color
express, einu stærsta prentfyrir-
tæki Noregs, til að sýna á kvöldi í
Óperuhúsinu fyrir 400 af stærstu
atvinnurekendunum á Óslósvæð-
inu.
„Ég svaf eiginlega ekkert fyrstu
nóttina eftir að ég vissi að ég væri
að fara, þetta gerðist svo hratt. En
svo æfði ég mig mjög stíft, setti
saman prógram og fór út með mitt
besta efni. Til að fá að fara inn í
Óperuhúsið sem skemmtikraftur
þarf að fá leyfi og fylla út umsókn
svo ég var heppinn að hafa feng-
ið að fara þarna inn með svo litl-
um fyrirvara,“ útskýrir Einar
sem gekk á milli gesta og sýndi
töfrabrögð meðan vínsmökkun
fór fram og á milli rétta í fjög-
urra rétta veislumáltíð. „Þetta var
svolítið erfitt fyrsta korterið, en
þegar maður var búinn að brjóta
ísinn gekk þetta mjög vel,“ segir
hann.
Einar, sem er 23 ára, hefur
lagt stund á töfrabrögð um ára-
bil og er að mestu leyti sjálflærð-
ur. „Ég var um tólf ára þegar ég
fór að hafa áhuga á töfrabrögðum,
en maður vissi ekki hvar ætti að
nálgast það. Fyrir tveimur árum
hitti ég svo mann sem kom mér
inn í þetta og síðastliðið ár hef ég
æft mig reglulega og komið fram.
Maður getur lært af bókum sem
kenna grunninn og útfært brögð-
in á eigin hátt, en þetta lærist best
frá öðrum töframönnum,“ segir
Einar. „Ég sérhæfi mig í „table-
hop“ eða „stralling magic“ sem
eru töfrabrögð í návígi. Þetta er
mjög vinsælt í Ameríku og eftir að
David Blane fór að vera með þætti
í sjónvarpinu er fólk meðvitaðra
um að töfrar þurfa ekki að gerast
uppi á sviði. Fólk hefur oft meira
gaman af því að sjá töfrana gerast
beint fyrir framan sig,“ útskýrir
hann, en segist jafnframt halda
sviðssýningar inn á milli. „Um
leið og maður fær þessa töfrabakt-
eríu hugsar maður nánast ekki
um neitt annað og eftir því sem
maður verður betri vill maður ýta
sér lengra,“ bætir hann við.
Ljóst er að Einar hefur vakið
lukku í Óperuhúsinu í Ósló því
hann hefur nú þegar fengið tilboð
frá fleiri fyrirtækjum sem vilja
fá hann út á sínum vegum. „Þrjú
fyrirtæki sem voru á samkomunni
eru búin að hafa samband við mig
í þessari viku og vilja fá mig út í
desember á samkomur, en þar á
meðal er jólahátíð hjá Eurocard,“
segir Einar. Áhugasamir geta haft
samband við Einar í gegnum net-
fangið galdrar@internet.is.
alma@frettabladid.is
Sýndi töfrabrögð í Ósló
í boði dularfulls Norsara
TÖFRANDI Einar vakti mikla lukku meðal gesta Óperuhússins í Ósló í síðustu viku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M