Fréttablaðið - 12.11.2009, Page 64
12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Tónlist ★★
Cosmic Call
Cosmic Call
Grípandi Skagarokk
Á þessari fyrstu plötu Skagahljóm-
sveitarinnar Cosmic Call eru sjö lög.
Flest eru þau ágætlega grípandi þar
sem taktfastur trommuleikurinn og
leikandi gítarleikurinn blandast vel
saman. Sérstaklega er upphafslagið
Cold Hands vel unnið. Reyndar er
ekkert sem kemur á óvart á þessari
plötu. Fylgt er forskrift hljómsveita
á borð við Kings of Leon og Arcade
Fire og söngvarinn reynir hvað hann
getur til að stæla Caleb Followill, án
þess að ná sömu angurværðinni og
dýptinni í röddinni. Hvað sem öllum
samanburði líður hefur Cosmic Call
sent frá sér hina sæmilegustu frum-
raun sem hún getur vel byggt á í framtíðinni.
Freyr Bjarnason
Niðurstaða: Ágæt byrjun hjá efnilegri hljómsveit.
Samkvæmt The Sun hyggst söng-
konan Amy Winehouse fara í enn
eina lýtaraðgerð innan skamms.
Winehouse fór í brjóstastækkun
fyrir stuttu og samkvæmt heim-
ildarmanni The Sun er söngkonan
svo himinlifandi með barminn
að hún hefur íhugað að stækka
afturendann á sér og fullkomna
þannig hið nýja og kvenlega
útlit. „Amy er sérstaklega ánægð
með brjóstin á sér. Hún horfir á
sig í spegli tímunum
saman. Henni finnst
hún kvenleg á ný og
langar að verða enn
kvenlegri og trúir
því að með annari
aðgerð muni hún
fullkomna útlit sitt,“
sagði heimildarmað-
urinn.
Amy breytir
útliti sínu
AMY WINEHOUSE
„Þetta verður mjög fallegt og
skemmtilegt lítið hverfi sem þarna
rís,“ segir Jakob Frímann Magn-
ússon.
Jólaþorpi verður komið upp í
byrjun desember í hinum svokall-
aða Hjartagarði sem er fyrir aftan
Nýlenduverslun Hemma og Valda
á Laugaveginum, þar sem áður var
Hljómalind. Þar verður boðið upp á
aðstöðu fyrir fólk til að sýna hand-
verk og hönnun sína. Að auki verð-
ur þar ýmiss konar jólavarningur
á boðstólum. Í garðinum verður
komið upp fallega skreyttum tré-
húsum í bjálkakofastíl auk þess sem
viðburðatjald verður á staðnum þar
sem tónlist, upplestrar og barnvænt
efni verður á efnisskránni.
„Þarna verður miðborgarjóla-
stemningin í algleymingi en auðvit-
að verður hún úti um alla miðborg-
ina líka,“ segir skipuleggjandinn
Jakob Frímann. „Við verðum með
eitt og annað í gangi á Ingólfs-
torgi, Lækjartorgi, Skólavörðustíg
og víðar, en á laugardögum verð-
ur þetta aðalvettvangurinn fyrir
ýmsar uppákomur. Þarna verða
líka heimkynni Grýlu, Leppalúða
og jólasveinanna,“ segir hann. „Það
verður enginn svikinn af því sem
þarna verður í boði.“
Í síðustu viku var haldinn
handverks- og hönnunarmark-
aður í Ráðhúsi Reykjavíkur þar
sem fullt var út úr dyrum. „Eftir
það var alveg ljóst að það vantaði
aðstöðu fyrir þá sem eru að búa
til eitthvað skemmtilegt og vilja
koma því á markað,“ segir Jakob
og bendir á netfangið skemmti-
legt@skemmtilegt.is fyrir þá sem
vilja taka þátt. - fb
Jólaþorp rís við Laugaveginn
JAKOB FRÍMANN MAGNÚSSON Jakob
Frímann skipuleggur uppsetningu
jólaþorps í miðbæ Reykjavíkur í byrjun
desember.
Söngkonan Fergie sagðist
ekki hafa litið á það sem
framhjáhald hefði hún
sængað með öðrum konum.
Samkvæmt tímaritinu The Sun
áttaði söngkonan Fergie sig ekki
á því að hún mætti ekki gamna
sér áfram með öðrum konum
eftir að hún var orðin gift kona.
Fergie, sem giftist leikaranum
Josh Duhamel í byrjun þessa árs,
segir að hún líti ekki á það sem
framhjáhald sængi hún hjá ann-
arri konu. „Ég hef skemmt mér
vel með konum og ég skammast
mín ekki fyrir það. Vandamálið
er að ég skemmti mér alveg jafn
vel með karlmönnum. Eftir langt
spjall við sálfræðing minn átt-
aði ég mig á því að það teldist til
framhjáhalds svæfi ég hjá öðrum
konum ef ég er í föstu sambandi.
Svo segir víst reglan,“ sagði
söngkonan.
Fergie og Duhamel kynnt-
ust árið 2004 við tökur á þátt-
unum Las Vegas og hafa verið
saman síðan þá. Í lok október
birtist blaðaviðtal við strippar-
ann Nicole Forrester sem sagðist
hafa sængað hjá Duhamel fyrr
um sumarið. Forrester gekkst
undir lygapróf máli sínu til
stuðnings og átti að hafa staðist
það próf.
Hún lýsir bólferðum sínum og
Duhamels og segir einnig frá því
að hann hafi hringt í hana eftir
að upp um hann komst og beðið
hana um að draga sögu sína til
baka. Fergie hefur aftur á móti
staðið með sínum manni og segir
Duhamel vera góðan mann og að
ásakanir dansarans séu algjör-
lega út í hött.
Fergie hélt að hún mætti
sænga hjá öðrum konum
HÉLT AÐ HÚN
HEFÐI LEYFI
Söngkonan Fergie hélt
að hún mætti sænga hjá
konum þrátt fyrir að vera
gift. Skemmtileg tilviljun,
því, Josh Duhamel,
eiginmaður hennar var
sakaður um framhjáhald
á dögunum.
Spennandi
námskeið
Nánari upplýsingar og skráning:
sími 525 4444 og endurmenntun.is
á næstunni
Vinnusálfræði og samskipti á vinnustað
hefst 17. nóvember
Excel I – fjármál og rekstur
hefst 17. nóvember
Þróun og skipulag borga – sérkenni Reykjavíkur frá
alþjóðlegu sjónarhorni
hefst 17. nóvember
Bætt skipulag með hugarkortum (e. Mind Manager)
haldið 19. nóvember
Þrívíddarhönnun í SketchUp
hefst 19. nóvember
Myndgreining á miðtaugakerfi
hefst 20. nóvember
Nýir dómar um ógildingarreglur samningaréttar
haldið 23. nóvember
Náttúrulyf og náttúruvörur
haldið 26. nóvember
Íslenski þroskalistinn
haldið 26. nóvember
Smábarnalistinn:
Staðlaður þroskalisti handa ungbörnum
haldið 27. nóvember
Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
haldið 28. nóvember
Barnavernd: skipulag, vinnsla og samstarf
við aðra faghópa
haldið 30. nóvember
Excel II – fjármál og rekstur
hefst 3. desember
Fást: sígilt meistaraverk og ný tónlist eftir Nick Cave
hefst 8. desember