Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 70
54 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Einn eftirsóttasti knattspyrnumaður landsins þessa dagana er Blikinn ungi, Alfreð Finnbogason. Strákurinn sló í gegn í Pepsi-deildinni í sumar og vakti frammistaða hans athygli utan landsteinanna. Hann var til reynslu hjá norska liðinu Viking en félagið ákvað að bjóða honum ekki samning að svo stöddu. „Þeir vilja skoða mig betur og hafa boðið mér að koma með liðinu til La Manga í febrúar. Ég veit ekki hvort ég tek því boði enda langt í febrúar,“ sagði Alfreð en fram kom hjá forráðamönnum Viking að ein ástæðan fyrir því að þeir vildu ekki bjóða honum samning væri sú að hann sé hægur. „Þetta kom víst eitthvað vitlaust út og þeir sögðu blaðamennina einblína meira á það neikvæða. Ég veit samt að ég er ekkert sá fljótasti, ég er svona meðalfljótur.“ Alfreð er samt með fleiri járn í eldinum og hann fer að öllum líkindum á reynslu hjá enska félaginu Blackpool. Það lið er að standa sig vel í ensku B-deildinni og situr þar í fimmta sæti sem stendur. „Ég fer líklega út til liðsins í svona 2-3 daga og spila einn æfingaleik. Það lið gæti verið spennandi kostur,“ sagði Alfreð sem er staddur með íslenska U-21 árs landsliðinu í San Marínó. Hann hefur verið á ferð og flugi í um mánuð og ætlar að taka sér frí þegar hann kemur heim frá Blackpool. „Það er kominn tími á smá hvíld. Þetta er búin að vera mikil keyrsla,“ sagði Alfreð sem er samningslaus og getur því gengið til liðs við það félag sem hann vill. Stóru félögin á Íslandi hafa öll áhuga á þessum skemmtilega framherja og svo vilja Blikar að sjálfsögðu halda sínum manni. „Ég hef ýtt öllu hér heima frá mér enda vil ég komast út. Ef ekkert verður af því er ljóst að ég mun fyrst setjast niður með Blikum áður en ég ræði við önnur félög,“ sagði Alfreð en kitlar ekkert að spila með stóru liði eins og FH eða KR? „Jú, auðvitað er það freistandi. Við erum samt að byggja upp skemmtilegt lið í Kópavoginum og það er gaman að taka þátt í því þó svo að ég stefni á að fara út sem fyrst.“ ALFREÐ FINNBOGASON: FÉKK EKKI SAMNING HJÁ VIKING EN SEGIR BLIKANA KOST NÚMER EITT HEIMA Enska liðið Blackpool vill fá að skoða Alfreð HANDBOLTI Í síðustu viku fengu þeir Jóhann Gunnar Einarsson og Daníel Berg Grétarsson símtal og var spurt hvort þeir væru til í að spila með sádiarabísku liði í þrjár vikur. Var umhugsunartíminn sem þeir fengu nánast enginn því þeir þurftu að fara strax morguninn eftir ef þeir vildu koma. Þó svo að þeir hafi í fyrstu hald- ið að um gabb væri að ræða ákváðu þeir að slá til og halda á vit ævin- týranna í þrjár vikur. Þeir vissu nákvæmlega ekkert hvað beið þeirra. „Meistaradeildin fer fram hér í Amman og stendur yfir í þrjár vikur. Við erum búnir að spila tvo leiki og þeir unnust báðir. Við erum því komnir áfram í átta liða úrslitin,“ sagði Daníel Berg í sam- tali við Fréttablaðið. Þeim félögum hefur gengið vel í fyrstu tveim leikjunum. Daníel er búinn að skora fimm og tíu mörk í leikjunum en Jóhann hefur skor- að fjögur og sex mörk. Leikirnir tveir voru gegn liðum frá Katar og Írak. Stórstjörnur taka þátt í mótinu Asíska meistaradeildin er sérstakt mót því þá styrkja öll liðin sig með útlendingum og borga vel fyrir það. Má því oft sjá gamlar hetjur á þessum mótum. Á meðal þeirra sem eru þarna núna má nefna Frakkann Joel Abati og Egypt- ann Hussein Zaky. Svo er gamla stórskyttan úr Stjörnunni, Tite Kalandadze, einnig á mótinu en hann er að spila með liði frá Líb- anon. „Okkur skilst að liðið okkar heiti Al Ahli en við höldum að liðið heiti Al Jedda. Við erum eiginlega ekki vissir hvað liðið heitir ef ég á að segja eins og er,“ sagði Daníel en eins og áður sagði gerðust hlutirn- ir hratt. „Við komum hingað á föstudags- kvöldinu og þá kom forseti félags- ins á flugvöllinn og náði í okkur. Við hittum hann svo í hádegismat á laugardeginum og svo var leikur klukkan hálf fjögur. Það var mjög sérstakt því við vissum ekki hvað einn maður hét þarna og hvað þá að við hefðum séð þá spila hand- bolta áður. Okkur var bara hent í búning og út á völl,“ sagði Daníel og hló dátt. Jói er hræddur við að fara út Strákarnir hafa lítið gert annað en að æfa og spila það sem af er. Frá og með deginum í dag fá þeir aftur á móti frí frá leikjum fram á næsta miðvikudag. „Þá gefst kannski tími til þess að skoða sig aðeins um. Annars er Jói svo hræddur við að fara út enda vitum við ekkert hvað við erum komnir út í. Jói spurði einn starfs- manninn í matarsalnum hvort það væri óhætt að fara út. Það var nú bara hlegið að honum og sagt að auðvitað væri það óhætt,“ sagði Daníel kátur er hann rifjaði upp þetta skemmtilega atvik. Þeir félagar hafa annars lent í mörgu skemmtilegu það sem af er og bíða spenntir eftir framhald- inu. „Forsetinn sagði við Jóa fyrir síðasta leik að það yrði auðveld- ur leikur og hann yrði að skora fimmtán mörk. Svo er mikill áhugi á mótinu hérna og myndavélar elta mann alveg inn í klefa. Manni líður bara eins og NBA-leikmanni. Svo má reykja alls staðar hérna og leik- menn fá sér bara sígarettur inni í klefa eftir leiki. Það þykir ekkert óeðlilegt hér,“ sagði Daníel. Peningarnir flæða – líka í lyftunni Strákarnir fá vel greitt fyrir að taka þátt í þessu ævintýri en félag þeirra, Kassel, lánaði þá í þrjár vikur. Þeir snúa svo aftur þangað þegar dvölinni í Amman er lokið. „Við fáum mjög fínan pening fyrir að koma hingað og spila. Það er þegar búið að greiða okkur þá. Mjög fín laun sem við værum svona fjóra til fimm mánuði að fá í Þýskalandi. Svo virðist allt flæða í peningum hérna. Daginn eftir leik kemur maður með seðla- búnt og lætur okkur fá bónus. Við höfum ekki hugmynd um hvað það er mikið enda sádiarabískir pen- ingar. Hittum svo manninn með seðlana í lyftunni aftur og hann lét okkur fá meiri pening. Svo er búið að lofa okkur tíu þúsund dollurum ef við vinnum mótið. Við erum nú ekki beint að treysta á að sá pen- ingur skili sér en það er allt í lagi,“ sagði Daníel Berg Grétarsson. henry@frettabladid.is Vitum ekki einu sinni nafn liðsins Handboltastrákarnir Jóhann Gunnar Einarsson og Daníel Berg Grétarsson eru þessa dagana staddir í Amman í Jórdaníu þar sem þeir spila með liði frá Sádi-Arabíu í asísku meistaradeildinni. Dvölin hingað til hefur verið mikið ævintýri. Strákarnir fá jafngildi 4-5 mánaða launa í Þýskalandi fyrir þrjár vikur í Jórdaníu. TITE LÍKA Í AMMAN Tite Kalandadze, sem spilaði með ÍBV og Stjörnunni, er í Amman að spila með liði frá Líbanon. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÆVINTÝRI Í AMMAN Þeir Daníel Berg Grétarsson og Jóhann Gunnar Einarsson spila í asísku meistaradeildinni þessa dagana. Þeir sjást hér saman á bekk Fram fyrir aftan Guðmund Guðmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC KÖRFUBOLTI Það gekk mikið á hjá úrvalsdeildarliði FSu í gær enda urðu nokkrir leikmenn liðsins uppvísir að agabroti er þeir fengu of mikið í staupinu. Samkvæmt agareglum körfu- boltaakademíunnar hjá skólan- um mega leikmenn aldrei drekka áfengi á meðan þeir eru á mála hjá akademíunni. Slík brot geta varðað brottrekstur. „Ég er ekki að reka þá. Þeir reka sig alveg sjálfir þessir gaur- ar,“ sagði Brynjar Karl Sigurðs- son, yfirmaður akademíunnar. „Ég er að hreinsa út úr húsinu núna.“ Brynjar Karl gat ekki stað- fest hversu margir leikmenn yrðu reknir úr akademíunni en hann sagði að það væri „slatti“. „Þeir voru á fylleríi og það má ekki. Hjá okkur ríkja ákveðnar reglur og mönnum ber að virða þær. Strákarnir vita af þeim og það var enginn sem neyddi þá til þess að skrifa undir pappír- ana. Þeir vissu hvað þeir voru að skrifa upp á,“ sagði Brynjar Karl en ásamt því að mega ekki neyta áfengis þurfa leikmenn að taka að lágmarki sautján einingar á önn. Brynjar var afar ósáttur við þjálfara og forráðamenn ákveð- inna liða sem byrjuðu að sveima yfir leikmönnum FSu um leið og tíðindin bárust. „Þeir eru að hringja í mig og spyrja út í hvað mennirnir geta. Ég sagði þeim þá að ég væri enn með tárin í augunum enda fynd- ist mér málið sorglegt. Spurði þá í kjölfarið hvort þeim fyndist þetta vera viðeigandi hegðun af þeirra hálfu. Þetta er svo sálarlaust að það hálfa væri nóg,“ sagði Brynj- ar og ljóst er að hann tók málið mjög nærri sér. - hbg Hreinsanir hjá botnliði FSu í Iceland Express-deildinni í kjölfar fyllirís leikmanna: Þessir gaurar sáu um það sjálfir að reka sig SÁR OG REIÐUR Guðfaðir körfubolta- akademíunnar tók agabrot leikmanna nærri sér. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Ólafur Rafnsson, for- seti ÍSÍ og fyrrverandi formað- ur KKÍ, tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að bjóða sig fram til forseta körfuknattleikssam- bands Evrópu eða FIBA Europe. Kjörtímabili núverandi forseta lýkur í maí á næsta ári. Kosið er á fjögurra ára fresti. FIBA Europe er eitt af fimm svæðissamböndum körfuknatt- leiks í heiminum og ber ábyrgð á þróun körfuboltans í Evrópu ásamt því að fara með yfirstjórn allra körfuboltamála í Evrópu. Fram kemur í tilkynningu frá Ólafi að hann njóti stuðnings Ólafs Ragnars Grímssonar for- seta og Katrínar Jakobsdóttur íþróttamálaráðherra. Ólafur hefur verið í stjórn FIBA Europe frá árinu 2002. Síð- ustu fjögur ár hefur Ólafur verið varaforseti fjármálaráðs FIBA Europe og forseti áfrýjunardóm- stóls alþjóðakörfuknattleikssam- bandsins, FIBA. - hbg Ólafur Rafnsson í framboð: Býður sig fram til forseta FIBA Europe ÓLAFUR RAFNSSON Vill komast til frekari metorða hjá FIBA Europe. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Sá stórefnilegi íþrótta- maður, Arnar Sveinn Geirsson, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnu- deild Vals. Arnar, sem er sonur Geirs Sveinssonar, hefur einnig spilað með meistaraflokki Vals í hand- bolta og þykir hann ekki síðri í handbolta en fótbolta. Hann þreytti frumraun sína með meistaraflokki í fótbolta í sumar og þótti standa sig vel. - hbg Arnar Sveinn Geirsson: Framlengir við Valsmenn ARNAR SVEINN Áfram á Hlíðarenda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > Baldur á leið til Fylkis Miðjumaðurinn Baldur Bett hefur ákveðið að söðla um og leika með Fylki næsta sumar. Baldur hefur verið í herbúðum Vals síðustu ár eftir að hafa leikið með FH þar áður. Margir áttu von á því að Baldur yrði áfram í her- búðum Vals, sérstaklega eftir að faðir hans, James, var ráðinn aðstoðar- þjálfari félagsins. Baldur á eftir að verða hinu unga liði Fylkis styrkur enda reyndur miðjumaður sem hefur unnið ófáa titla á sínum ferli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.