Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 74
58 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
HANDBOLTI Góðæristímabilið fór
illa með rekstur handboltadeild-
ar ÍBV og deildin er enn að glíma
við gamlar syndir að því er fram
kemur á heimasíðu ÍBV.
Enginn leikmaður félagsins í
dag fær greitt fyrir að spila með
liðinu og flestir leikmanna liðsins
eru meðlimir í stuðningsklúbbn-
um Krókódílunum. Má því segja
að þeir borgi sig inn á leiki sem
þeir spila sjálfir.
Menn brydda upp á ýmsu í
Eyjum til þess að greiða niður
skuldirnar og nú síðast voru leik-
menn liðsins að skelfletta humar
fyrir Vinnslustöðina. Það gerðu
þeir með bros á vör. - hbg
Handboltalið ÍBV:
Leikmenn
vinna í humri
STEMNING Leikmaður ÍBV í humar-
vinnslunni. MYND/HEIMASÍÐA ÍBV
FÓTBOLTI Skagamenn hafa enn
ekki samið við miðjumanninn
sterka Helga Pétur Magnússon
sem og Guðmund Böðvar Guð-
jónsson.
Guðmundur Böðvar situr að
samningaborðinu með Skaga-
mönnum að því er fram kemur
á heimasíðu félagsins en Helgi
Pétur er með allt opið í sínum
málum.
Ástæðan er sú að hann er að
leita sér að framtíðaratvinnu.
Helgi Pétur er reynslumikill
leikmaður sem getur leikið bæði
á miðju og í vörn. Er því líklegt
að einhver lið hugsi sér gott til
glóðarinnar og reyni að krækja í
leikmanninn. - hbg
Leikmannamál ÍA:
Helgi Pétur enn
á lausu
HELGI PÉTUR Er án samnings.
FÓTBOLTI Spænska neðrideildar-
liðið Alcorcon skráði sig heldur
betur í sögubækurnar í fyrra-
kvöld er liðið sló stórlið Real
Madrid út úr spænsku bikar-
keppninni.
Alcorcon vann fyrri leikinn 4-0
og tapaði svo aðeins 1-0 á Santi-
ago Bernabeau-leikvanginum.
„Þetta var magnað og við
munum aldrei gleyma þessu það
sem eftir er af ævi okkar,“ sagði
Sergio Mora, leikmaður Alcor-
con. „Útsýnið inni á Bernabeau
er ótrúlegt. Það var ótrúlegt að
taka þátt í þessu því við vorum að
skrifa söguna. Ég held ég muni
ekki átta mig almennilega á því
hvað gerðist fyrr en síðar.“
Ævintýri liðsins heldur áfram
en liðið mætir Barcelona í næstu
umferð. - hbg
Spænski konungsbikarinn:
Alcorcon mætir
Barcelona næst
Svooona sterk
Því lengi býr að fyrstu gerð
Sumt breytist aldrei
Enn sem fyrr býður Gerber upp á mikið úrval af næringarríkum,
hollum og góðum barnamat. Veldu aðeins það besta fyrir barnið þitt,
því lengi býr að fyrstu gerð.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
5
5
2
FÓTBOLTI Dramatíkin í kringum
framtíð Brasilíumannsins Robinho
hjá Manchester City heldur áfram
en spænskir fjölmiðlar fullyrða
að Barcelona sé komið af fullum
þunga í viðræður við enska félagið
um kaup á leikmanninum.
Bæði Barcelona og Manchest-
er City hafa til þessa harðneitað
því að hafa átt í viðræðum en leik-
maðurinn sjálfur og faðir hans og
umboðsmaður hafa gefið sterk-
lega í skyn að hann kunni að vera
á förum frá Borgarleikvanginum
í Manchester og að Nývangur sé
ekki ólíkur áfangastaður.
Í spænska dagblaðinu El mundo
Deportivo er reyndar haft eftir
Gilvan de Souza, umboðsmanni og
föður Robinho, að hann sé þegar
búinn að láta forráðamenn City
vita að leikmaðurinn vilji yfirgefa
herbúðir félagsins við fyrsta tæki-
færi og geti ekki hugsað sér að
klára yfirstandandi keppnistíma-
bil með félaginu.
Knattspyrnustjórinn Mark
Hughes hjá City hefur hins vegar
látið sér fátt um finnast um skrif
dagblaðanna og stjórnarformaður-
inn Garry Cook tók í sama streng
í gær og ítrekaði að Robinho væri
ekki á förum frá félaginu.
„Það er ekki rétt að við höfum
rætt við forráðamenn Barcelona
út af Robinho og það stendur held-
ur ekki til. Eina sem við erum að
hugsa um núna er að hann jafni sig
á meiðslunum og geti spilað með
City á nýjan leik,“ er haft eftir
Cook.
Hinn 23 ára gamli Robinho gekk
í raðir City á lokadegi félagaskipta-
gluggans í september árið 2008 á
32,5 milljónir punda en ef eitthvað
er að marka breska og spænska
fjölmiðla undanfarið þá verður að
teljast líklegt að hann yfirgefi City
brátt. Hvort sem það verði í janúar
eða næsta sumar. - óþ
Forráðamenn Barcelona í viðræðum við Manchester City út af Robinho samkvæmt spænskum fjölmiðlum:
City ítrekar að Robinho sé ekki á förum
ROBINHO Er sagður ósáttur og vilja yfir-
gefa herbúðir City við fyrsta mögulega
tækifæri. NORDIC PHOTOS/AFP