Vikan - 04.12.1958, Síða 17
Merkileg göng
Hin 150 ára gamla hugmynd um
neðansjávargöng —- draumur verk-
fræðinga og fjármálamanna, en
áhyggjuefni brezkra herforingja — er
enn lifandi meðal Breta og Frakka.
Þeir hafa nú, eftir að málið hefur
legið niðri í meira en 70 ár, myndað
með sér samvinnufyrirtæki, sem hef-
ur það á stefnuskrá sinni, að gerð
verði neðansjávargöng undir Ermar-
sund. Komið hefur til tals, að fyrir-
tækið gerði fyrst einskonar tilrauna-
göng, sem innihéldu rafmagns- og
símaþræði. Kostnaður við slík göng
er áætlaður um 4 milljón sterlings-
punda, en endanlegar ákvarðanir við-
víkjandi byggingunni hafa ekki verið
gerðar.
Draumagöng verkfræðinganna
verða mun dýrari í byggingu, enda
eiga þau að gegna miklu hlutverki,
þar eð þau eiga að vera akvegur og
járnbrautarleið milli landanna. Bygg-
ingarkostnaður ganganna getur orð-
ið á milli 45 til 86 milljón sterlings-
pund. Áætlað er að þau byrji inni
i landi báðum megin Ermarsunds,
sennilega í Dover og Sandgatte (ná-
lægt Calis), eða í Folkestone og
Cap Criz Nez.
1 sannleika hefur byggingin þegar
verið hafin. 1 Dover var gröftur haf-
inn árið 1875, og ná þau göng eina
mílu undii’ sjávarbotninn. Þessum
göngum er ennþá haldið við. Sams-
konar framkvæmdir áttu sér stað
i Sandgatte um líkt leyti.
Aðal áhyggjuefni Breta þessu við-
víkjandi var, að göngin yrðu notuð
af óvinaher til innrásar, en nú þykir
sá ótti ástæðulaus, enda eru Bretar
farnir að lita á það, sem nauðsynja-
verk, að göngin verði gerð. 1 hern-
aði gætu þau ekki sakað neinn, þar
eð Bretar og Frakkar eru í hernað-
arbandalagi Vesturveldanna.
Það ber fyrst og fremst að hugsa
til alls þess gagnlega, sem göngin
myndu hafa í för með sér. Vöruflutn-
ingar til meginlandsins yrðu ódýrari
og ferðamannastraumur ykist, svo
eitthvað sé nefnt.
Hugmyndina að skurðinum átti
einn af verkfræðingum Napoleons.
Síðan i'æddi Napoleon málið við
Ereta, en ekkert varð úr framkvæmd-
um, þar sem skömmu síðar dró til
ófriðar milli Breta og Frakka.
★
EIIMKAFLUGVÉL ÞÍIXI
Vickers Viscount-fiugvélar Flugfélags íslands kostuðu um 40 miljónir hvor, enda eru þær mjög vistlegar og
liraðfleygar. Það liggur og i augum uppi, að venjulegur daglaunamaður getur alls ekki keypt slika vél til
eigin afnota. Þess vegna verður hann að leita að einhverju ódýrara, Itanar liafa byggt rellu eina, sem er
afar ódýr í byggingu. Heildarverð hennar er 22500 krónur, þar af kosta vél og hreyfiil 15750 krónur. Vélin
er venjuleg Voikswagenvél, sem er þó styrkt til muna. Þimgi flugvélarinnar er 360 pund, og hún fer á loft og
lendir á 60 kíiómetra liraða. Aðalefni belgs og vængja er tré. — l»jóðverjar tóku að byggja flugvélar með
Volksvvagenvélum fyrir mörgum árum. Fór bygging þeirra og tiiraunaflug að mestu frám á Spáni. Var
þetta vegna þess, að Þjóðverjar höfðu skömmu áður staðið í hernaði en- verið sigraðir, og máttu þeir ekki
gera neinar tæknitilraunir í heimalandinu.
Með þvi að nota sér (jamla sjálfspilandi píanóið, hefur maður nokkur
í Texas, Ed Lardum að nafni, yert nýja teyund af slíku hljóðfæri. Hér
er um að ræða rafeindapíanó með afar hvellum tónum.
Sjálfspilandi píanóið yaf frá sér tóna, þeyar lofti var blásið gegnum
röð af götum á pappírsrúllu. sem snerist á hraða í hlutfalli við hraða
lagsins. Eitt gat einhvers staðar ,í breidd pappírsins átti við eina sér-
staka nótu, sem tónaði fagurlega, þegar loft lék um gatið. Nú er þetta
hljóðfæri útdautt að mestu, enda fann Lardum sitt lijóðfæri á fornsölu,
og ákveða að breyta hljóðum þess með einhverjum ráðum.
UIVI ELDSPÝTUftlA
Haustdag einn árið 1832 gerði lyf-
sali nokkur, John Walker að nafni.
mikið galdraverk á götu úti í Lond-
on. Vegfarendur sáu hann taka
tveggja þumlunga langa spýtu og
troða henni inn á milli sandpappirs-
blaða. Síðan dró hann spýtuna snöggt
út aftur, en við það átti kraftaverk-
ið sér stað, hún logaði fjörlega.
Walkei' hafði með þessari tilraun
sinni gert fyrstu eldspýtuna, sem
kveikt var á við að nugga henni við
grófan flöt.
Níu árum áður hafði fyrsta efna-
fræðilega eldspýtan verið gerð í
Austurríki, en hún var mun lengri
en Walkers, og á enda hennar var
kalcium klórat, brennisteinn og resin,
en þessi efnablanda logaði, þegar
henni var dýft í aðra. Hausinn á
Walkereldspýtunni var einfaldari, og
innan fárra ára var búið að endur-
bæta hana svo mjög, að sandpappírs-
ins var ekki þörf lengur, þar sem
allir grófir fletir voru nægilegir til
að tendra hana.
Um þetta leyti tóku menn að dýfa
trékubbum í brennistein til að glæða
logann, en síðar tók olían við hlut-
verkinu.
Árið 1835 var fyrsta eldspýtna-
verksmiðjan stofnsett i Vinarborg, og
fjöldaframleiðsla þessa varnings var
þar með hafin.
Það var árið 1848, að Böttger fann
upp öryggiseldspýtuna, en hann kom
henni ekki á framfæri fyrr en árið
1855. Þá kynntist hann Lundström,
sem, ásamt tveimur bræðrum sín-
um, stofnaði fyrsta öryggiseldspýtu-
fyrirtækið. Eldspýtur þeirra voru
styttri en áður, eða að nútíma lengd.
Þetta varð ekki einungis til þess að
spara viðinn, heldur líka til þess, að
þægilegra var að bera þær á sér.
"Jsr
VIKAN
17