Vikan


Vikan - 04.12.1958, Page 23

Vikan - 04.12.1958, Page 23
Einn fanginn geymir í klefa sínum lítið búr með tveim fallegum kanarífuglum. Þeir eru hans augnayndi í einverunni og ef til vill finnur hann til samstöðu með þeim. til þess að vita. Einkum finnst mér þetta slæmt vegna foreldra minna, því ég hélt að þau hefðu nóg á sinni könnu. Ég hefi einnig frétt að ekki muni allt með felldu i hjónabandi systur minnar. Ég vona þó að það geti lagast því bæði eru þau hinar beztu manneskjur og og hafa reynst mér mjög vel. Allt veldur þetta mér nokkrum áhyggjum og er þó tæpast á þær bætandi, því ég er þessa dag- ana mjög vondaufur um allt sem lýt- ur að framtíð minni. Ég get varla í- myndað mér að úr rætist fyrir mér í bráð. Ég hef þó ekki gefist upp og bið ávallt til Jesús, um hjálp mér til handa og er sannfærður um að hann heyrir bænir mínar og breytir á sin- um tíma öllu mér i hag. Ég hugsa nú títt til minnar elskuðu J .. og vona að hún megi verða mín um alla fram- tíð. 7/8 Veður er í dag mjög gott, nær alveg logn og sterkju- hiti daglangt. Nú i kvöld komum við hér í klefa mínum saman þrír fang- ar og lásum saman úr Biblíunni og báðum til Jesús að hann mætti ávallt vera með okkur og að viðleitni okkar til bóta mætti bera sem mestan og beztan árangur. Ég vona að fram- hald geti orðið á þessu hjá okkur og að það verði okkur styrkur og hvatn- ing í okkar „innri baráttu“. Andlegt ástand mitt er nú sæmilegt nema hvað mér finnst leitt að heyra ekkert að heiman né heldur frá J . . En vænt- anlega fær þetta allt farsælan endi með handleiðslu Jesús. 8/8 í dag er veður mjög gott og allir fangar við hey- skap. 1 dag fékk ég pakka að heim- an og þótti mér mikið vænt um það, með pakka þessum fékk ég og bréf þar sem pabbi segir mér að P . . O . . hafi boðist til þess að taka þessi mál mín að sér og bind ég nú nokkrar vonir við þann hinn mikla heiðurs mann. 9/8 Sama veður er í dag, logn og skafheiðríkt. 1 dag komu hér í heimsókn til mín þeir Á . . E . . og A . . K . . ásamt þriðja manni, þeir ræddu hér við mig um tilgang og gildi trúarinnar. Mér fannst mjög mik- il ánægja að heimsókn þessara ágætu inanna, og er athyglisvert hve mikið þeir leggja á sig fyrir meðbræður sína. Mér finnst nú að mér líði til muna betur en áður og þakka ég það einungis áhrifum frá kristindómnum. Enn berast mér engar fréttir af minni elskuðu J . ., ég geri mér stöðugt vonir um að hún sé mér ekki með öllu af- huga, því án hennar finnst mér næsta tómlegt fram að líta. 10/8 I dag er sunnudagur og fremur leiðinlegt veður. Nokkuð var þó um heimsóknir hingað, enda þótt engir komi til mín. Meðal þeirra sem fengu heimsókn var J.. litli V . . og var það móðir hans sem hingað kom, ég gladdist með honum því hann á svo míklu sálarstríði bless- aður. Dagur þessi var svo sem aðrir sunnudagur hér, fremur leiðinlegur og leið við hið vanalega rabb um dag- inn og veginn. P.S. 1 kvöld tókst J . . V . . að loka fangaverðina inni á efri gangi húss- ins, þannig að þeir voru þar bjargar- lausir, þar til einum fanga af neðri hæð tókst að brjótast út úr klefa sín- um og opna fyrir þeim gæzlumönnum. Hér var allt í uppnámi, barsmíðar og allskyns háreysti var höfð í frammi, þannig að líkast var vitfirringahæli. Ef slíkt endurtekur sig mun ég krefj- ast þess að verða fluttur burt úr þessu fangelsi, því taugar mínar þola á eng- an hátt slíkt uppnám. J. . tókst að komast undan, og hélt hann lítt klædd- ur út í náttmyrkur og rigningarsudda. Ég gat ekki annað en vorkennt aum- ingja drengnum. Þetta hlýtur að vera meira en litil innri barátta og efast ég um að J. . sé sjálfráður gjörða sinna þegar þessi köst ná á honum tökum. Nú fyrst um klukkan tólf er hér komin sæmileg kyrrð og menn að jafna sig á þessum látum. 11/8 Hingað bárust í dag þær fréttir að J . . V. . hefði verið handsamaður í Reykjavík I morgun. Veður er í dag fremur slæmt og ekkert unnið úti við. 12/8 Veður er í dag mjög sæmi- legt og fangar flestir við vinnu. Einn fangi gerði í dag tilraun til stroks, en var fljótlega handsam- aður og koma til nokkurra stympinga á milli þessa fanga og svo fangavarða. Hér er nú nokkur ólga á meðal fanga og ekki ósennilega að draga kunni til nokkurra tíðinda ef við svo búið stendur. Enn frétti ég ekkert af minni elskuðu J . . En vona þó og bið að vel megi fara í því sem og öðru mér aðlútandi. 13/8 Ég var veikur í dag og svaf eins mikið og ég frekast gat. Ekkert skeði hér mark- vert, veður er fremur napurt, norðan næðingur. 14/8 I dag komu hér í heim- sókn til mín tveir góðir vinir mínir, þeir Þ . . Ó . . og Þ . . J . . Þeir færðu mér 1 karton af Camel svo og nokkrar flöskur af Coca-Cola. Mér þótti mjög vænt um heimsókn þessara pilta og þann hug er henni fylgir. Hing- að kom í dag einn nýr fangi og hefir sá oft dvalið hér áður og er mér sagt að hann sé fremur óskemmtilegur maður. Ég frétti enn lítið af mínum málum og er raunar hættur að hugsa um losun, því mér þykir sýnt að ég verði að taka út a. m. k. allan næsta vetur. Og finnst mér fremur leitt til þess að vita, enda þótt ekki þýði þar um að sakast úr því sem komið er. 15/8 Veður er í dag mjög fag- urt og mikill hiti. Hér vinna fangar nú dag hvern að hey- skap og miðar þar all sæmilega. Hér skeður fátt utan hins venjulega og fasta þvaðurs um losun og náðanir. Síðast nú í dag var mjög rætt um að tveir fangar væru á förum og var í því sambandi fullyrt að ég væri annar þeirra. Ég marka lítt slíkan söguburð, enda sjaldnast fótur fyrir þesskonar fréttum. Mér líður þessa dagana eins vel og unnt er að líðan manna sé bezt í tugthúsi. Mér virðist helzt svo sem menn staðni hér hvað allt andlegt lif áhrærir, og verða menn er framlíða stundir sljóir og öll vit- und bundin þessum stað einum, allt normalt líferni þokar fyrir föstu formi þess er við áþján býr. 16/8 Bærilegt veður var í dag, og var hér unnið að hey- skap svo sem verið hefir undanfarið. Ég er nú mjög í uppnámi, því ég hefi fengið öruggar fréttir um að S . . J . ., Hér sjást tveir ungir piltar á L,itla-Hrauni grúfa sig yfir bók. Bókakostur er yfirleitt góður á liælinu og fangarnir margir bókelskir og fróðleiksfúsir. sá er með mér var í afbroti, sé að losna héðan nú næstu daga. Hann er ekki búinn að dvelja hér nema mjög stutt, en mun hafa sterka menn að baki sér er vinna að málum hans af miklum krafti. Ég læt mér detta í hug að ekki muni ég þurfa að dvelja hér lengi eftir að hann er farinn, því við erum hér fyrir sameiginlegt afbrot. Annars er ekkert hægt um þessi mál að segja, maður er hér gjörsamlega án sambands við umheiminn og því erfitt að afla frétta af gangi mála. 17/8 1 dag' er sunnudagur og hið fegursta veður. Hér var í dag mikið um heimsóknir og fengu allflestir fanganna einhvern í heim- sókn og sumir heila hópa. Hingað kom síðari hluta dags flokkur manna ög kvþnna frá Fíladelfíu og fluttu okk- ur boðskapinn um Jesú Krist. Mér var mikil gleði og ánægja að komu þessa fólks og kann þvi miklar þakk- ir fyrir allar heimsóknir þess. Því \ issulega sýnir það fagurt fordæmi með komu sinni einmitt á slíkan stað sem þennan, því þótt víða sé mönnum þörf á Guðs orði er þörf þess óefað hvergi meiri en einmitt hér. Ég frétti enn lítið af málum minum og er hálf vonlítill um að ég muni losna héðan í bráð, enda þótt sífellt voni ég hið bezta. Ég geri mér nú litlar vonir um að frétta af minni elskuðu J. ., ég vona bara að hún sé við góða heilsu og ekkert illt hafi hent hana. 18/8 Hér er í dag bezta veð- ur, og enn er unnið að heyskap, og þykir mönnum sem þau verk séu með nokkrum seinagangi. því nú munu nær allir bændur hafa lokið heyskap, en hér er hann tæp- ast nema hálfnaður. Enn frétti ég ekkert að heiman, hvað þá um losun eða þessháttar. Ég finn nú, eftir að hafa hætt að nota svefnmeðul, hversu mjög ég er slappur á taugum, ég má ekki við minnstu i'öskun því þá er sem allt fari úr skorðum og ég tek að skjáfla mjög, sérstaklega er þetta á- berandi með hendur mínar. 1 dag kviknaði í klefa mínum hér og var sígaretta orsök þess. Gardínur og fleira smátt brann hér hjá mér, en teljandi tjón varð þó ekki. Oft verður mér á ao hugsa til J . ., og finnst mér ég tæpast geta hugsað til þess að tapa henni fyrir fullt og allt. En hér verð- ur maður að sætta sig við flest, hvort sem manni líkar það betur eða ver. Ég er þessa stundina í mesta uppnámi og veit ekki hvað því veldur en senni- lega er það einn af fylgikvillum tugt- húsvistarinnar. 19/8 Afbragðsveður enn í dag ekkert samt ég frétti. Vona þó á vænni hag og vistinni hér létti. Hingað komu í heimsókn til min þrír kunningjar mínir. Þeir færðu mér bæði sígarettur og peninga. Mér þótti Framhald d bls. 31. í kjallara hússins er eldhús og nialsalur, sem jafnframt er eini samkomu- staður fanganna. Fangarnir vinna sjálfir við matseld og ferst það prýðis- vel úr hendi. VIKAN 23

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.