Veðrið - 01.04.1960, Page 18

Veðrið - 01.04.1960, Page 18
Skýjamyndir frá gervitungli Hinn 1. apríl 1960 sendu Bandaríkjamenn á loft gervi- tungl, sem var sérstaklega ætlað til veðurathugana. Hlaut það nafnið Tiros I. Fyrsta mánuð- inn tók Tiros um 9000 skýja- myndir með svonefndri sjón- varpsmyndavél. Myndir þessar voru teknar jafnóðum á segul- band og síðan sendar til jarðar, þegar afstaða gervitunglsins til móttökustöðvar var heppileg. Myndin fyrir ofan sýnir skýja myndanir í sambandi við lægð yfir Bandaríkjunum 1. apríl 1960. Dökka svæðið á miðri myndinni er heiðskírt. Þar streymir þurrt loft, komið frá Kanada, rangsælis utan um lægð- ina, en austar kemur lilýtt og rakt loft sunnan frá Mexíkó- flóa og veldur víðáttumiklu regnsvæði og snjókomu. Neðar á myndinni er breitt skýjaband, víða mjög bjart, og voru þrumu- veður hér og þar á því belti. Til glöggvunar fylgir hér t. li. veður- kort af sama svæði, teiknað á Veðurstofunni í Reykjavík. Þar kemur fram svipuð heildarmynd, en augljóst er, að geimmyndin sýnir skýjafarið með meiri ná- kvæmni. Má segja, að kortið og myndin bæti hvort annað upp. 18 --- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.