Veðrið - 01.04.1960, Page 19

Veðrið - 01.04.1960, Page 19
Á myndinni á þessari síðu sést lægð, sem var um 600 km vestur af írlandi 2. apríl. í lægðar- miðju er stórt skúrasvæði, eins og stundum verður í gömlum Jægðum, en utan um mikinn hluta hennar vefst skýrt afmark- að skýjabelti. Hluti þess sézt of- an til, líkt og ör í laginu, og aftur í hægra horni myndarinn- ar að neðan. Veðurkortið svarar til mynd- arinnar eftir því sem næst verð- ur komizt, en nær þó heldur lengra austur, svo að regnsvæð- ið sést samfellt hægra megin á myndinni. Myndir þessar eru teknar úr grein eftir Harry Wexler og Sigmund Fritz í timaritinu Science. Með þeirri grein eru fimm aðrar Tiros-myndir, m. a. sú, sem birt er á kápusíðu. Er hún af lægð yfir Kyrrahafi. Höf- undarnir benda á, að skýjamynd- anir lægða séu nokkuð ófíkar yfir höfum og löndum, meira af tiltölulega fíngerðum böndum og breiðum yfir sjónum. Varla mun of djarft ályktað, að myndatökur sem þessar muni bæði bæta aðstöðu veðurfræð- inga til að gera sér grein fyrir daglegu veðri og auka almenna þekkingu þeirra á eðli skýjafars og úrkomusvæða. P. B. VEÐRIÐ 19

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.