Vikan - 19.10.1961, Blaðsíða 15
9
Á stríðsárunum bax
allmarga sendimenn
þjóðverja að landi vlð
Austfirði. Síimir þeirra
voru íslendingar, sem
neyttu þessara bragða
til að komast til lands-
ins, en Bretar voru
vantrúaðir á skýr-
ingar þeirra.
1 fJSllnBUB, Bem teygja aig út & hrern skaga á Austfjörðnm, var viSa hægt að fela sig.
Stakk hann þá bögglinum undir
hálsmálið á perysu sinni.
Var svo haldið meS alla menn-
ina út til herskipsins. En um leið
og fyrirliði fanganna átti að fara
upp í herskipið, steig hann upp á
þóftu i bátnum og var sem hann
léti sig falla aftur á bak i sjóinn. En
áður og meðan hann var að falla,
veitti Helgi Jónsson þvi eftirtekt, að
hann var að hagræða einhverju í
buxnavasa sinum, er datt i sjóinn.
Náði Helgi f veski, er flaut upp með
bátnum og tók yfirforinginn við þvi.
Þegar búið var að hjálpa mann-
inum upp i bátinn, hafði hann orð
& þvi, að það væri hált á b&tnum.
Föngunum var nú komið upp á
herskipið og þeir látnir standa þar
1 röð aftur á.
Sáu Borgfirðingarnir yfirforingj-
ann ganga að þeim og veifa veskinu
ögrandi framan 1 fyrirliða fanganna
og stinga þvi svo niður.
Að þessu loknu bað foringinn
Borgfirðingana að draga fyrir sig
bát í land. Væru á honum 6—8 menn
frá herskipinu. Fóru sex þeirra rak-
leitt inn i Grjótbrekkur, eftir slóð
foringjanna, og komu von bráðar
berandi alls konar farangur, ýmist i
kössum, pokum eða pökkum, og voru
fluttir um borð með það.
Undruðust foringjarnir, hve mik-
inn flutning fangarnir gátu flutt með
sér á jafnskömmum tima 1 annarri
eins ófærð og jafn langa og erfiða
leið.
Var sagt, að i farangri þeirra hafi
verið allskonar tæki og þar á meðal
sundurskrúfuð vélbyssa, en mat-
væli hafi verið lítil sem engin.
Að skilnaði þökkuðu foringjarnir
Borgfirðingunum mjög alúðlega
fyrir góða fylgd og alla aðstoð
þeirra, greiddu þeim svo hæfileg
timalaun, eins og upp var sett. Héldu
svo hvorir sína leið.
Um fangana er það vitað, að aðeins
fyrirliði þeirra var Þjóðverji, en
hinir tveir íslendingar. Jafnskjótt
og komið var með þá til Seyðisfjarð-
ar var sent skip með þá til Reykja-
víkur til yfirheyrslu. Þaðan munu
þeir hafa verið sendir til Englands
i fangabúðir. En ameriski yfirfor-
inginn var óðara hækkaður í tign
fyrir þetta afrek sitt.
SAGNIR UM ÚTILEGUMENN.
Þannig segir séra Ingvar frá. Og
margskonar sagnir flugu um Aust-
firði og viðar um handtöku þessara
dularfullu manna.
Það mátti nokkuð fljótlega renna
grun í, að þetta væru sendimenn
Þjóðverja. Einmitt um þær mundir
skeðu svipaðir atburðir, það er að
segja, mönnum var skotið á land
til og frá um Austurland, allt frá
Langanesi og suður undir Vopna-
fjörð.
Þeir komu ýmist á kafbátum eða
vélbátum og voru sumar þessar ferð-
ir ævintýralegar og háskalegar.
Voru sendimenn venjulega fljótlega
handteknir og siðan geymdir á veg-
um hersins. Þeir íslendingar, sem
komu i slikum ferðum, gerðu það
ekki að gamni sínu eða af spell-
virkjalöngun. Þeir báru það flest-
ir fyrir rétti, að á striðsárunum
hefðu Þjóðverjar boðið þeim tæki-
færi til að komast heim til Islands
með því skilyrði, að þeir hefðu
með sér senditæki til þess að nota í
þágu Þjóðverja. Áttu sendimenn að
senda skeyti um skipaferðir veður-
far og fleira.
Margir þessara manna voru i
Þýzkalandi á striðsárunum og töldu
neitun til slíkra sendiferða mjög við-
sjárverða, þar eð með neitun hefðu
þeir misst traust Þjóðverja og ættu á
hættu að týnast algjörlega í hring-
iðu styrjaldarinnar. Af þessum sök-
um fóru þeir því i glæfraferðirnar.
Var nú farið á kredk til þess að
rekja enn betur slóð þeirra þre-
menninga og leita farangurs þeirra.
Sleðagrind þeirra fannst daginn
eftir handtökuna, og var það enn
lengra innar i slóðinni en foringj-
arnir höfðu komizt.
Grindin var ekki merkileg. Hún
var slegin saman úr kassafjölum
með drögum undir úr blikkdósum.
Á grindinni var innpakkaður kassi
á borð við stóra ferðatösku, með
járngrind, sem stiga mátti sem hjól-
hest. Var það rafall, sem framleiddi
ótrúlega mikla orku.
Setuliðið á Seyðisfirði lét senda
eftir þessu og fleiru, sem fannst af
farangri þeirra félaga. Bendir allt
til þess, að þeir hafi verið vel út-
búnir.
MEIRA AF VARNINGI
FINNST.
Seinna um vorið var enn gerð
leit að farangri fanganna. Kom þá
skip frá setuliðinu og var gerð leit
í Selvognum, að talið var eftir til-
visun fanganna.
Skammt frá hellinum fannst nú
sendistöðin. Var hún þar í kletta-
skúta. Þar fundust einnig tilluktir
dunkar með fatnaði í, einnig munað-
arvörum og margskonar áhöldum.
Þetta var allt grafið niður í möl-
ina og steinar lagðir ofan á. Þrátt
fyrir þetta var talið, að ekki væri
allt fundið. sem hefði fylgt þeim fé-
lögum og voru menn enn lengi og
oft að leita á slóðum þessum.
Selvogur, þar sem þeir þremenn-
ingar höfðust við, var eini staðurinn
á langri strandlinu, þar sem hægt
var leynilega að setja menn á land
af skipi, sökum aðdýpis. Var því
auðsætt, að vel hafði verið undir-
búin landsetning þeirra. Auk þess
voru einmitt þarna hellisskútar til
þess að hafast við i. Og enn var það,
að óviða þar eystra sézt jafnvel til
skipaferða og þaðan.
Sýnir þetta, meðal annars, kunnug-
leika Þjóðverja af landinu.
Lyng höfðu þeir félagar rifið til
þess að hafa undir sér á hellisgólf-
inu. En eftri þetta gusu upp ýmsar
sagnir um að þarna hefðu menn
hafzt við um lengri tima. Það var
til dæmis talið, að „lynglagið í hell-
inum benti ótvirætt til þess, að þess
hafi verið aflað löngu fyrr, í það
minnsta fyrir hálfum mánuði rúm-
um eða áður en hann gekk í úr-
fellið,“ sem þá hafði gengið undan-
farna daga.
Þá þótti Austfirðingum margt
benda til þess, að Þjóðverjar hefðu
haft þarna mann eða menn fyrr
á hnotskóg.
Rifjaðist þá upp saga af pilti ein-
um „af Úthéraði, er fór ofan i Borg-
arfjörð skömmu fyrir jólin þennan
sama vetur, heyrði óvanaleg hljóð,
er hann kom niður i Ósfjallið, nótt-
ina, sem hann fór heimleiðis. En er
hann fór að skyggnast eftir frá
hverju það mundi stafa, sá hann
hvar maður hljóp fram og aftur með
einkennilegum tilburíSum, á ni(el-
hrygg einum þar i grennd. Varð
hann þá svo hræddur við sjón þessa
að hann hljóp I einum spretti niður
allt fjall, án þess að gefa þessu nán-
ar gætur. Og þar sem engir höfðu
verið á ferð um nóttina á þessum
slóðum, en hann einn til frásagnar,
var þetta skoðað sem hugarburður
og því ekki trúað.“
Þetta rifjaðist þó upp nú eftir
handtöku þremenninganna og þótti
ekki alveg útilokað, að þarna hefði
áður verið einhver njósnari á ferð.
Sendistöðin var biluð. Báru fang-
arnir það fram, að þeir hefðu sjálf-
ir skemmt hana, þar eð þeir hefðu
verið ófúsir til þessa leiks.
Nokkrum dögum siðar en þetta
var, bar það við, að þýzk flugvél
sást á sveimi yfir Njarðvíkurfjöll-
um,“ eins og hún væri að leita að
einhverju, því sumstaðar flaug hún
svo lágt að undrum sætti, svo sem
innan til i Njarðvíkinni.
En að þvi búnu hélt hún inn og
suður yfir fjallgarðinn milli Borgar-
fjarðar og Héraðs, unz hún hvarf
alveg sjónum manna.“
HINIR HANDTEKNU.
Vlkur þá að því, sem segir í upp-
hafi greinar þessarar, þar sem greint
Framhald á bls. 32.
tmum 15