Vikan - 19.10.1961, Page 18
Þessi stúlka er í dökkgrænu felldu
pilsi og ljósgrænni peysu. Trefillinn
er langur og köflóttur, en köflótt er
enn mjög vinsælt. Sokkar og hár-
band eru svört.
V
Vetrartízkan þennan vetur er ein-
föld og kvenleg. Hún er að mörgu
leyti svipuð tizkunni síðasta vetur og
öllum til mikillar ánægju hafa engar
rótttækar linur komið til sögunnar
eða annað þess háttar. Eiginlega má
segja að vetrartizkan hafi tvær hlið-
ar. önnur er fjörleg og ærslafull
og hæfir vel ungum stúlkum. Hin er
bliðari, meira sjálfs sín vitandi og
glæsilegri og yfirleitt eru þar þrengri
línur. Ef á annað borð á að tala
um nýjar linur, er þar helzt að nefna
svokallaða klukkulínu, sem litið er
frábrugðin beinu linunni, aðaltízkan
felst 1 smáhlutum.
í sambandi við hárið verða hár-
bönd alls ríkjandi í náinni framtið,
breið hárbönd í öllum regnbogans
litum, svona um það bil 4—8 cm á ,
breidd. heizt ekki minna en 4. E'inn-
ig er mikið um hárskraut, rósir og
annað bess háttar. Húfur eru enn
hæstmóðins og mest ber á loðhúfum.
Hálsmál eru annað hvort fyrir-
ferðarmikii og í stíl við húfuna. eða
míög látlaus og kannski alls engin.
Mik;ð er um Kennedvkraga“^jýns
og hann er kallaður En eitt tízku-
fyrirbrigði í sambandi við hálsinn
fer eins og eldur í sinu um allt og
það er trefillinn. Hann hefur aldrei
verið eins mikið notaður í vetrartízk-
unni og núna. Og Þeir eru hafðir
langir. mjög langir, þannig að sumir
ná niður á læri, þó vafið sé um háls-
inn. Treflarnir eru jafnt notaðir við
pevsur, kápur og kjóla.
Kjólar eru beinsniðnir og einfaldir,
mittið örlítið neðarlega. Mikið er um
alveg langar ermar, eða stuttar,
allt frá rétt íyi.i xieðan öxlina eða
niöur að oinboga. Lítið er um svo-
kallaðar kvartermar ,en margar eru
í ,,armband length“, það er dálítið
fyrir ofan úlnliðínn. Belti eru mikið
höfð á kjólum og eru þá bundin laus-
lega saman að framan.
Pils eru ekki víð og ekki mjög
þröng heldur og fylgja þau alveg
sömu línu og kjólarnir. Þau eru felid
á skemmtilegan hátt, en ekki alltaf
plíseruð.
Dálítið er um mislita sokka og þelr
Þá í dökkum litum. Skór eru allflest-
ir með þvertá og mikið skreyttir með
slaufum og ristarböndum. Stigvéla-
kuldaskór, ef svo mættl að orði kom-
ast, eru helztu utanyfirskórnir og
tíðkuðust þeir einnig siðasta vetur.
Munið að nauðsynlegt er að troða
bómull I þvertærnar, annars vilja
þær brotna þvert fyrir.
Ýmislegt annað smávegis mætti
tína til. Hnappar t. d. eru grófir og
stórir helzt sérkennilegir. Kögur alls
Framhald á bls. 32,
Brúnleitur tweedkjóll með prjónuðum kraga. Sniðið
einfalt og hugsazt getur og beltið lauslega bundið.
er
eins
1B VIKAN