Vikan - 19.10.1961, Síða 27
II
T 1
'HiiPioar
því hiS
kannski
Hrútsmerkiö (21. marz-20. apr.): Það er talað
illa um þig í þessarri viku, en líttu í eigin barm
— það kann að vera, að það sé ekki að ástæðu-
lausu. Þú skalt reyna að mætti að leiðrétta þenn-
an „misskilning". Fimmtudagurinn getur orðið
mikilvægur dagur i lífi þínu, ef þú hagar þér skynsam-
lega þann dag og lætur ekki stjórnast af orðum annarra,
heldur hugsar málið af skynsemi.
______Nautsmerlciö (21. apr.—21. maí): Það er ein-
hver óvissa yfir vikunni, og líklega er það vegna
þess, að þú ert undir áhrifum frá annarri persónu
og reynir um leið að hegða, þér sjálfstætt. Ást-
vinur þinn virðist. ekki með sjálfum sér þessa
vikuna, og kann að vera að þú teljir það honum til for-
áttu en dæmdu hann ekki of hart, Því að framkoma hans
á sér eðlilegar orsakir. Heillatala 6.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þú hjálpaðir
vini þínum fyrir skemmstu, en nú er eins og þú
lítir of stórt á þig vegna þessa smágreiða og
ætlist til of mikils af honum. Þegar maður gerir
vini sínum greiða, er maður ekki jafnframt því
að ætlast til einhvers af honum — ef þið eruð sannir
vinir, kemur það af sjálfu sér.
KrabbamerkiÖ (22. júni—23. júlí): Þetta verður
Hfremur róleg vika, og ekki gerist ýkjamikið
markvert, þótt vikan verði allt annað en leiðin-
leg. Þú sýnir einhverjum í fjölskyldunni ekki þá
umhyggju, sem hann á skilið. Reyndu að bæta úr
skjótasta. Gamall draumur þinn rætist nú, en
er það um seinan.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú nýtur lífs-
ins rækilega í þessarri viku, og þú munt skemmta
Þér óvenjumikið. Miðvikudagurinn verður sá
dagur, sem skiptir framtíð þína næstu vikur
mestu, og þá ríður á að halda vel á spöðunum.
Eitthvað, sem þér og vini þínum datt i hug I siðustu viku,
er alls ekki fallið til að hrinda i framkvæmd í þessarri viku.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23 sept.): Þér leiðist
eitthvað þessa dagana, vegna þess að þér finnst
ekkert gerast í kringum þig. Þetta er auðvitað
mesti misskilningur — þú kannt bara ekki að
gera þér mat úr þvi, sem fyrir kemur. Amor
kemur eitthvað við sögu þína í vikunni, en ekki stlnga örvar
hans djúpt I þetta sinnið.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Það verður
einhver til þess að angra þig i vikunnl, en þú
skalt láta allt, sem hann segir, sem vind um
eyru þjóta, því að þessi persóna kemur þér i
rauninni ekki hið minnsta við. Fjölskyldan ger-
ir miklar kröfur til þin I vikunni, og nú ríður á að bregðast
ekki trúnaðartrausti hennar, þótt áform þin breytlst.
DrekamerkiO (24. okt.—22. nóv): Þú mættlr
reyna að auka afköst þin á vinnustað — mestur
timinn virðist fara i kjánalega dagdrauma. Eitt
áhugamál þitt verður til þess að þú færð
skemmtilegt tilboð, sem þér er ráðlagt að taka,
ef þú hefur nokkurn tima til þess. Bréfaskriftir gætu haft
talsverð áhrif á framtið þína.
Bogmannsmerkiö (23. nóv—21. des): Þú kynnist
skemmtilegri persónu í vikunni, og hefðir þú gott
af því að umgangast hana meira. Hinsvegar
skaltu ekki vera of uppáþrengjandi, þvi að það
gæti orðið til þess að téð persóna fari að forðast
þig. Þú virðist ætla að hafa lánið með þér I vikunni'. Um
helgina teflir þú á tvær hættur og endalokin verða þér í hag.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þriðjudagur-
inn er sá dagur vikunnar, sem skiptir þig lang-
mestu. Það gerist margt þennan dag, og e.t.v.
tekur þú þá einhverja ákvörðun, sem skiptir þig
og ástvin þinn afar miklu. Um helgina gerist
eitthvað, sem kynni að varpa skugga á sæluna, en engin
ástæða er til þess að taka það of nærri sér.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú virðist
lifa allt of tilbreytingalitlu lifi þessa dagana —
þú reynir ekki að breyta til, og verður þetta til
þess að, þér fer að leiðast lifið. Reyndu að finna
þér ný áhugamál, kynnast nýjum vinum o.s.frv.
Þú ferð I afar skemmtilegt samkvæmi um helgina, en þá
muntu komast að þvi, að þú hefur metið nýja vln of mlkils.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þetta virð-
ist ætla að verða afar þægileg vika, og undan-
farið hefur þú kviðið fyrir einhverju, sem áttl
að gerast í vikunni, en þegar það gerist loks,
muntu komast að þvi, að þú varst búinn að gera
þér óþarfagrillur. Þessi vika er einkum konum til heilla —
ekki sizt ef Þær eru ógiftar. Heillatala 3.
m
P&RTJ5 CHAPEAU
Uuldahúfan
Fröken Theodóra Þórðardóttir er í góðu
skapi. ... Ekki að undra, segir hún! Ég
hef loksins fengið höfuðfat sem ég er
ánægð með. Ég er dökkhærð og með
brún augu svo ég valdi mér Orange-gula
Paris Chapeau kuldahúfu. Ég segi ykkur
stúlkur mínar (cdveg í trúnaði) að í síð-
asta bréfi frá Birgitte Bardotte segir hún
að Paris Chapeau kúldahúfan seljist eins
og plöturnar hans Presley og bað mig að
skila til ykkar að hver kona sem notaði
Paris Chapeau væri smekkleg og listræn.
Amor mióar özvum sínum á þær sem
bera PARIS CHAPEAU
Heildsölubirgðir:
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Laugavtgi 178. - Símar: 3884« - 3T880.