Vikan - 19.10.1961, Side 34
Aðalútsölustaður
Kirkjustræti 8—10.
Sími 1 28 38.
Viðurkennd gæðavara heima
sem heiman.
Gæði, fjölbreytt litaval og
ótrúlega hagstætt verð, hafa
gert Gefjunaráklæði að út-
flutningsvöru.
Gefjunaráklæðin eru vinsæl-
ustu og mest notuðu áklæðin
á Islandi. Framleidd í fjöl-
mörgum gerðum og ávallt í
nýjustu tízkulitum.
aður fyrir Bowling, sem er skemmti-
legur leikur með kúlur og keilur. Kúl-
unum er rúllað eftir endilöngum
bragganum og kúnstin er að hitta og
fella sem flestar keilur í einu. Við
biiiardborðin var ærið áskipað og
Þar hitti ég tvo heiðursmenn og átti
við þá stutt samtal; þetta voru hvort-
tveggja ungir menn, kurteisir og
pruðir i framkomu.
— Afsakið herrar mínir, en ég
vildi gjarna fá að segja við ykkur
nokkur orð. Eruð þið báðir frá
Bandarikjunum ?
— Jú, annar var frá Minnesóta og
hinn frá New Jersey og báðir höfðu
verið nálega ár i herþjónustu.
— Og ætlið kannske að leggja her-
mennsku fyrir ykkur?
— Nei, hætta, — báðir ætluðu að
hætta. Þeir voru feimnir eins og
drengir, sem koma i fyrsta sinn í
skóla, horfðu ýmist niður fyrir sig
eða hvar á annan.
— Þið þurfið ekkert að vera feimn-
ir striðsmenn. Ég er bara frá blaði í
Reykjavik. Ég skal ekki spyrja um
neitt óþægilegt. Hvað ætlið þið að
gera, þegar þið hættið hermennsku?
— Ég ætla að verða útvarpsvirki,
sagði Jerseymaður.
— Ég útvarpsþulur, sagði sá frá
Minnesota.
— Hafið þið ferðazt mikið um Is-
land?
— Nei, Jerseymaður hafði einu
sinni komið til Reykjavíkur, hinn
ekki útaf vellinum.
— Hvernig fannst ykkur siðast liö-
inn vetur? Kaldara eða hlýrra en þið
bjuggust við?
— Það var miklu betra, sögðu þeir
báðir. — Bjuggust við miklu meiri
snjó.
— Byrjið þið snemma á morgnana?
— Við byrjum kl. 8 og erum lausir
hálf fimm.
— Og hvað gerið þið hérna á Kefla-
vikurflugvelli ? Þeir litu mjög vand-
ræðalega hver á annan og Jerseymað-
ur sagði:
— Við óskum frekar eftir því að
svara þeirri spurningu ekki.
— Jæja, það er i lagi. Þið spilið
billard í tómstundunum ?
— Já, og softball og svo förum við
í bíó.
— Hafið þið kynnst íslenzkum
stúlkum ?
— Bara Þeim, sem vinna hérna á
vellinum, sagði Jerseymaður. Minne-
sotaþulurinn var afskaplega þögull og
lét hinn um að svara.
— Farið þið ekki á dansleiki?
— Nei, þeir voru daufir yfir því.
— En þessi dularfulla vinna ykkar,
— er hún Það erfið, að þið séuö mjög
þreyttir á kvöldin?
Nei, hún er létt, við erum alveg ó-
þreyttir. Við áttum stundum svolitið
erfitt með að sofna í sumar, þegar
næturnar voru bjartar.
— Þið hefðuð fremur kosið myrk-
ur ?
— Nei, þeir voru ekki alveg viss-
ir um það.
— Og launin, það er kannske
leyndarmál?
Nei, þau eru 170 dollarar á mánuði
<7.310.00 ísl. kr.) Við erum báðir sjálf-
boðaliðar. Allir í sjóhernum eru sjálf-
boðaliðar.
—■ Eru nokkrir kommar í liðinu?
— Nei, það héldu þeir ekki. Þeir
væru ekki teknir.
— En þið eruð auðvitað sannfærð-
ir um þýðingu vallarins?
— Já, alveg sannfærðir, bæði í
köldu og heitu stríði. Þeir voru mjög
alvarlegir á svipinn yfir þessu og
þótti auðsjáanlega leikurinn fara að
grána, þegar ég minntist á pólitík.
— Hvað haldið þið að yrði um
Island í striði?
— Þeir hristu höfuðin.
—■ Enginn áróður rekinn gegn Rúss-
um meðal ykkar?
—• Nei, þess þarf ekki. Við erum
allir Ameríkanar.
— Hversvegna skyldu allir Amerík-
anar vera & aömu skoðun?
— Vegna þess að við höfum trú
á skipulagi okkar og lifnaðarháttum.
— Jæja, það er gott. Eyrirgefið þið
ónæðið.
Eg lét þá ósk i ljós við leiðsögu-
manninn, aö ég viidi gjarnan koma
á heimili hjá einhverri af fjöiskyld-
unum, sem búa a velhnum og Þvi var
mjög vmsamiega tekið. Hann lór og
talaði viö eina frúna og okkur var
boöið uppá aðra hæð i einni af gráu
sambyggingunum. hrúin hét mrs.
Trimbie og var eins amerísk og Ni-
agarafossarnir; kona um fertugt tag-
grönn og aískapiega eiskuieg. Ibúð-
ín var mjög vistieg á bandariska visu
og frúin bar okkur ágætar veitingar.
Þau hjón attu fjögur börn og þau
voru öii með pemi á Keflavikurflug-
velii, það eizta 12 ára og það yngsta
2 ára.
— Eg bjóst við miklu meiri kulda,
sagði frú Trimble, og kom ég þó
bemt hingað frá Kahforniu. Eg hef
ekkert yfir veörinu að kvarta.
— Er mikill kunningsskapur mihi
fjöiskyidnanna hér á veliinum?
— Já, hér innan vaUarins er það.
Hinsvegar höfum við hjónin aðeins
kynnzt einni islenzkri fjölskyldu í
Hafnarfiröi og komið á heimih þeirra.
— Hvernig hagar frúin innkaup-
um?
— Eg fer til innkaupa á hverjum
degi í búðina hérna og kaupi meðal
annars islenzka mjólk í hyrnum, sem
okkur Ukar mjög vel. Hún er bæði
góð og ódýr.
— Og stundum farið þið kannske
tU Reykjavikur?
— Já, stundum til innkaupa, en aö-
ailega til að sltoða i búðirnar og
kaupa minjagripi.
— Og hvað er gert i tómstundum,
þegar bóndinn er heima við?
Við horíum nokkuð mikið á sjón-
varpið, en við þekltjum lika marga
hérna og félagsskapurinn er góður,
stundum förum við út og dönsum
hérna i kiúbbnum.
— Verðið þið ekki að fá barnapiu
til þess að komast út?
— Jú, við höfum fengið isienzka
stúlku og það er segin saga, að sá
yngsti segir alltaf nei i staðinn fyrir
no eftir að hún hefur passað hann.
— Hvað verðið þið hér lengi?
— Við erum alveg á förum til
Mc Guire-vallar i New Jersey í
Bandarikjunum og verðum þar ein-
hvern tima. En ég vil gjarnan fá
blaðið sent þangað, ef hægt væri.
Það var auðvitað sjálfsagt að senda
henni blaðið og svo kvöddum viÖ
þessa ágætu frú og héldum áfram
ferð okkar um Keflavíkurflugvöll.
Frá því verður sagt í næsta blaði.
GS.
SVARTA PARDUSDÝRH)
Framhald af' bls. 13.
fyrir þessu, og ég vona að þér liði
betur á eftir.
Hann hló dálítið feimnislega. —
Ég geri vist allt heimskulega, sagði
hann. Þegar ég vil létta á hjarta
mínu, býð ég blaðamanni í heimsókn
og segi honum sögu . . .
— Þtað hefur þú vissulega ekki
gert. Þú bauðst vini þínum.
— Þakka þér fyrir, Marty. Og nú
er bezt að við ríðum heim. Þú verður
varla góður í bakinu á morgun, gæti
ég trúað.
Við stigum á bak, og ég var feginn
þvi að hann hafði sagt það sem hann
þurfti. Hann hafði áreiðanlega haft
gott af því, sérstaklega þó að losna
við morðímyndunina.
En í rauninni var þar ekki um
neina imyndun að ræða.
Þau drápu hann þegar þetta sama
kvöld.
Þau drápu hann beint fyrir framan
nefið á mér.
■IWPPW*
Kvöldiö hófst eins ánægjulega og
34 VlhsAN