Vikan - 23.11.1961, Qupperneq 29
l^Sl
í.
Það er bæði hagkvæmt og
ánægjulegt fyrir ykkur að útbúa
sjálfar fatnaðinn, sem þarf til
jólanna.
Við höfum á boðstólum tsekin
og.efnin, sem þarf lil þess.
SINGER-prjónavélar og mikið
úrval af prjónagami
SINGER SLANT-O MATIC
saumavélar
BUTT'ERICK-snið og fjölbreytt
úi'val af efnum til að sauma úr.
4
'ioLimar
HrútsmerkiÖ (21. marz—20, apr.): Þú skalt ekki
leggja í nein stórfyrirtæki í vikunni. Þú ert með
ótrúlegustu hugmyndir i kollinum, og væri mið-
ur, ef þú hrintir einhverju af þessu í framkvæmd.
Það virðist bera talsvert á þessu í fari þínu und-
anfarið Þú nennir beinlínis ekki að hugsa fyrir endann
á neinu þvi, sem þú byrjar á. Fimmtudagurinn verður ein-
kennilegur dagur. Heillatala 3.
Nautsmei'kiÖ (21. apr,—-21. maí): Þú munt kynn-,
ast persónu í vikunni, sem á eftir að hafa mikil
áhrif á gerðir þinar í framtíðinni — a.m k. nán-
ustu framtíð. Þessi persóna ætti að hafa góð
áhrif á þig á ýmsum sviðum, en Þú verður að
varast að fylgja henni í blindni og fara eftir öllu því, sem
hún býður þér.
Tvíburamerki (22. mai—21. júní): Þetta verður
mikil heillavika, einkum fyrir ungt fólk undir
tvítugu. Miðvikudagurinn getur þó orðið öllum
dálítið varasamur, því að þá steðja að alls kyns
freistingar. Vinur þinn er í vanda staddur,
og getur þú einn orðið að bjarga honum úr þessum ó-
göngum, og þú skalt láta verða af því, áður en það er um
seinan.
Krabbamerkiö (22. júni—23. júlí): Þú ferð lík-
lega að heiman í vikunni og getur þetta smá-
ferðalag haft talsverð áhrif á framtíð þína — og
það góð áhrif, ef þú heldur vel á spöðunum.
Þetta verður stutt ferðalag — kannski kemur
bú heim samdægurs. Það sýnir einhver, að hann öfundar
þig, og þú verður áþreifanlega var við þetta en þú skalt
láta, sem þú takir ekki eftir þessu.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þetta verður
einkennileg vika í flesta staði — einkum hvað
snertir öll hjartans mál. Þú skalt sem sagt fara
að öllu með gát og ekki gera neitt það, sem
er á móti samvizku þinni og skynsemi. Tilfinn-
ingahiti gæti leitt þig út í alls kyns ógöngur. Föstudagurinn
er mikill hamingjudagur fyrir gift fólk.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—-23. sept.): Þú skalt fara
varlega með peninga i vikunni. Á vinnustað ger-
ist atvik, sem á eftir að draga dilk á eftir sér.
Þótt þú eigir eiginlega engan þátt i því, sem þar
gerist, munt þú einhvern veginn flækjast inn i
þetta mál, þótt þér sé það þvert um geð. Heillatala 5.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þú ert eitt-
hvað undarlegur þessa dagana, og stafar það af
einhverju, sem gerðist i vikunni sem leið. Sann-
leikurinn .er sá, að þú þarft siður en svo að
hafa áhyggjur út af þessu. Þér verður gefin lítil
g.iöf i vikunni, sem þér mun þykja mjög vænt um, þótt
ekki_sé hún ýkja verðmæt.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þetta er vika
mikilla öfga. Þú ert ekki fyllilega sjálfum þér
samkvæmur í þessarri viku, ýmist gerir þú það.
sem þú gagnrýnir hvað mest í fari annarra, eða
þú lætur hjá líða að gera það, sem þú telur í
sjálfu sér skyldu þina. Hafðu samt engar áhyggjur út af
þessu hugarástandi þínu, því að í vikulokin gerist eitthvað.
Bogamannsmerlciö (23. nóv,—21. des.): Liklega
verður einhver til að valda þér sárum vonbrigð-
um í þessarri viku, en hann mun bæta þér það
upp, svo um raunar, áður en langt um iíður. Eitt
áhugámál þitt verður til þess að þér býðst gott
tækifæri, sem þú getur tímans vegna ekki nýtt þér um
stúndársakir, en þetta mun standa þér tii boða um hríð.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan ): Heima við ger-
ist eitthvað, sem kemur heimilisfólkinu úr jafn-
vægi.og líklega átt þú einhverja sök á því. Þú
getur þó hæglega bætt. úr Þessu, og veiztu. bezt
sjálfur á hvern hátt. Kvöldin verða mjög ánægju-
ieg i vikunni, en ekki verður sama sagt um morgnana, þvi
að þeir verða óvenjudauflegir.
Vatnsberamerkiö (21. jan. -19. feb.): Hegðun þin
í vikunni virðist benda til þess að þú sért óvenju-
gleyminn, en sannleikurinn er sá, að þú vilt
ekki muna þetta, sem þér ber að muna. og er
ljótt, til þess að vita, þvi að þú veizt,- að þetta
hit.nar illa á öðrum. Vinur þinn gerir þér ómet.anlegan
greiða í vikunni, og verður það til bess að þú kynnist nvi-
um kostum i fari hans.
Fiskamerkið (20. feb. 20. marz): Þú virðist ætla
að láta smámuni angra þig í þessari viku, sem
verður því heldur ömurleg fyrir þig og þína. Úr
þessu rætist þó von bráðar. Þú færð skemmtilega
hugmynd í vikunni, sem þú skalt strax reyna að
hrinda í framkvæmd, því að eftir svo sem viku er það um
seinan.