Vikan - 23.11.1961, Qupperneq 39
Vfsníi-
Mmkeppnin
Mikil þátttaka var í visnasam-
keppninni og bárust vísur frá fólki
á öllum aldri, en auðvitað kom ekki
til greina að veita verðlaunin nema
börnum. Beztu visuna átti GuSni
Kristjánsson, Grœnukinn 7, Hafnar-
firði. Sú næstbezta var eiginlega
heill bragur og var eftir Hjördísi
Sigurbjörgu Matthíasdóttur, 12 ára,
Túngötu 12, Siglufirði. Og þriðju
beztu vísuna átti Anna Soffía Sverr-
isdóttir, 10 ára, Vesturgötu 83,
Akranesi.
Það skal tekið fram, að þess var
ekki krafizt að stuðlar og höfuð-
stafir væru með, heldur einungis
endarim.
Guðna Kristjánssyni láðist að
geta aldurs sins, en við gizkum á
að hann sé svona 12 ára og hér eru
visurnar hans:
Syngdu fagri svanur minn
syngdu um fögru fjöllin
syngdu um haf og himininn
syngdu um grænan völlinn.
Syngdu um fjallavötnin blá
syngdu um heiðarfriðinn
syngdu um glaða silungsá
syngdu um fossaniðinn.
Þá er næst bragurinn hennar
Hjördísar:
Syndir vötn á silungsslóð
svifur á vængjum breiðum
syngur yndissólaróð
svanurinn fram á heiðum.
Svanurinn heiðar situr við lind
sóliu um hádegið roðar hvern tind
Frelsinu unir i fjallanna þröng
af fögnuði syngur hann
vorkvöldin löng.
Syngur hjá blómum svanurinn
sjá má undir vænginn
indæll þar er unginn þinn
og hans mjúka sængin.
Svanurinn með söngsins völd
svífur á vængjum breiðum
sólskins fögru sumarkvöld
syngur hann fram á heiðum.
Hérna er svo þriðja bezta visan
eftir Önnu Soffíu:
Fljúgðu til mín svanur minn
mig langar til að heyra
fallegasta sönginn þinn
hljóma mínu eyra.
Þessi þrjú fá eins og áður er get-
ið verðlaun og eru þau öll látin i
té af Tómstundabúðinni, Austur-
stræti 8. Þar er bæði vandað og
fjölbreytt úrval af leikföngum og
liefur mikil ánægja verið með verð-
launin í síðustu samkeppni. Fyrst
þurfa Kristján, Hjördís og Anna
Soffía þó að snúa sér til Vikunnar,
áður en þau geta farið niður í Tóm-
stundabúð og náð í vinningana.
" ' ^ 2-
vf"['\ "^
1.1V
A
KONAN YÐAR
Fleiri og fleiri eignast einnig hin handhægu
AUKATÆKI
Drykkjablandari
Sneiðari
Kurlari
EIGINMENN
íslenzkar húsmæður sem nú eiga
ömbeam
hrærivél skipta þúsundum og ailar eru ánægðar
vikan 39