Vikan - 23.11.1961, Qupperneq 43
2aUMulBlr>N
Draumspakur maður ræður drauma
ryrir lesendur Vikunnar.
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að fá ráSinn draum,
sem mig dreymdi. Mér fannst ég
vera stödd í húsi hér 1 hæ, sem ég
veit hvar er og þá kemur maSur
til mín og kyssir mig og hann hag-
aSi sér alveg eins og hann þekkti
mig. Ég hef lengi veriS hrifin af
þessum manni. Svo seinna fannst
mér hann sitja á tröppunum heima
hjá mér og þá var ég aS gæla viS
lítinn dreng, sem mér þótti hann
eiga. MaSurinn talaði viS mig eins
og hann hefSi þekkt mig lengi.
MeS fyrirfram þökk.
B. A. E.
Svar til B. A. E.
Sagt er að ávallt sé fyrir góðu
að dreyma drengi. Ástasamskipti
ykkar í draumnum er þér fyrir
velgengni í ástamálum ef þið er-
uð bæði ógift, þá fer sennilega
allt að ganga betur. Á hinn bóg-
inn virðist sem maðurinn eigi
drenginn, sem þú lætur vel að
sem bendir til þess að maðurinn
sé giftur. Draumurinn getur því
alveg eins verið fyrir illu um-
tali í þinn garð, að minnsta kosti
er hann ekki fyrir góðu í því
tilfelli.
Kæri draumráSningamaður.
Mig langar til aS biSja þig aS ráSa
þennan draum fyrir mig. Mér fannst
ég vera komin inn í stofu og sitja
þar hjá manni, sem ég var meS fyrir
löngu, en er nú giftur og vildi hann
trúlofast mér og fannst mér aS hann
drægi af mér mína hringi, sem eru
tveir og renna upp á höndina á mér
venjulegum sléttum gullhring, en
svo silfurhring á eftir og fannst
mér hann afskaplega fallegur, allur
útkrotaSur. Fannst mér hann minna
mig á ameriskan hring, sem ég sá
fyrir löngu, en skyndilega breyttist
hann og varS aS silfurhring meS
stórum bláum steini, engu síðri aS
fegurS en hinn. Svo kyssti maSur-
inn mig og spurSi: „Ertu nú á-
nægS?“ en í því vaknaði ég. Nú
langar mig mjög til að vita hvað
þetta táknar. Með fyrirfram þakk-
læti. Anna.
Svar til Önnu.
Þessi fyrrverandi vinur þinn
er í þessu tilliti tákn ástamál-
anna. Hann dregur af þér þá
hringi, sem þú hefur á hendi f
sambandi við núverandi ástamál
þín. Þetta táknar að upp úr þeim
slitnar. Gullhringurinn, sem
hann síðan dregur á hönd þér er
tákn um gfitingu. Hringurinn
sem líktist amerfska hringnum að
þér fannst, er tákn þess að þú
eigir annan vin þrátt fyrir gift-
ingarmaka þinn, en upp úr þeim
vináttuböndum slitnar og silfur-
hringurinn með bláa steininum
er tákn síðasta vinar þíns.
Ekki vildi ég ráðleggja nein-
um fjöllyndi í ástamálum, sízt
af öllu þegar fólk er gift, af því
geta hinir alvar'egustu hlutir átt
sér stað, sem ekki er gott að sjá
fyrir um hvenær koma fyrir. Um
slíka atburði eru mýmörg dæmi
og ætti fólk að láta sér vítið að
varnaði verða.
Kæri draumráðningamaður.
Mig iangar að biðja þig að ráða
fyrir mig draum, sem mig dreymdi
og hann er á þessa leið:
Mér fannst ég vera í rútu á ein-
hverju ferðalagi og ég sat ein í sæti
í bilnum. Svo finnst mér einhver
karl lítill og Ijótur setjast við hlið-
ina á mér og reyna að kyssa mig.
Ég verð svo hrædd að ég fer til
bifreiðastjórans og segi honum frá
þessu. Hann fer aS hlæja og gera
grín aS þessu og ég fór þá líka
að hlæja og henti einnig gaman
að því. SíSan fannst mér ég vera
komin i iitinn bíl, en það var sami
bifreiðastjórinn. En ég verð að segja
þér að ég skar mig í fótinn nýlega
og það var saumað saman. ÞaS var
djúpt og breitt sár. í draumnum
fannst mér ég vera að kroppa í sár-
ið og að saumurinn rifnaði og sið-
an tók að blæða úr því. Bað ég
bifreiðastjórann að keyra mig til
læknis og ég ætlaði að biðja hann
að gera að sári minu. Akureyri var
næsti kaupstaSur að því er mér
fannst. Þegar þangað kom var mik-
ið farið að biæða úr sárinu og tók
ég þá einhvern poka út úr sárinu
með hlóði í og fannst mér ég alltaf
vera að reyna að koma honum inn
i það aftur, en gat það ekki. SáriS
var gapandi og tómt fyrst ég gat
ekki sett pokann aftur inn í það.
Svo ætlaði ég bara að biðja lækn-
inn að setja hann inn i sárið og
sauma svo fyrir og við það vakn-
aði ég.
Viltu svara mér fljótt og fyrir-
fram þakkir.
Dollý.
Svar til Dollý.
Þessi draumur er vissulega
ekki góðs viti. Gamli maðurinn,
sem var að kássa sér utan i þig
er tákn um ástarmöguleika, sem
þú kærir þig síður en svo um.
Til að komast frá þeirn manni
leitarðu á náðir annars og verður
þér af nokkur stundaránægja, en
ekki dvaldi Adam lengi f Paradís.
Gamlir atburðir úr lífi þínu ýfast
upp og valda þér óþægindum í
nútíðinni, við þessu áttu ekkert
ráð í bili, en samt hefurðu von
um að allt lagist. Það mun takast
ef þú heldur rétt á spöðunum.
Smmtgrið úetur
GEG/V HÍTA
OG KULDA
+20
Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgeiddan á fáum ár-
um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður
sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem
unnt er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun
notalegri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað).
VIKAN 43