Vikan


Vikan - 27.09.1962, Blaðsíða 22

Vikan - 27.09.1962, Blaðsíða 22
PRINZINN OG HÁLFT KÓNGSRÍKIÐ í ÞESSUM BÍL ER HUGSAÐ VERÐ- LAUNA- GETRAUN VIKUNNAR 22 VIKAN Og þú getur hrepþt hann eins og aðrir — eða hvaða rök mæla gegn því? Samkeppnin á bílamarkaðnum er orðin ákaílega hörð og framleiðendur kepp- ast um að búa bílana sem flestum ágætum og tæknilegum þægindum. Nýjar línur í útliti bíla sjá dagsins ljós og „slá í gegn“. Svo var um Corvair-línuna, sem Chevrolet varð fyrstur til að taka upp. Hún varð tízkufyrirbrigði og þið sjáið það bezt á myndinni af Prinzinum, hvernig hún er. Prinzinn er sem sagt gerður eftir nýjustu tízku, ekki einungis hvað útlitið snertir, heldur og tækni- lega séð. Corvair-línan einkennist af beltinu og bryggjunni sem er utan með bílnum, allt í kring. Að öðru leyti er hann látlaus og sléttur. Gluggarnir eru mjög stórir og útsýnið frábærlega gott. Þennan bíl getur þú unnið, lesandi góður, með því einu að halda getraunarseðlunum til haga og senda til Vikunnar að getraun- inni afstaðinni — það er að segja, ef heppnin verður með.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.