Vikan


Vikan - 27.09.1962, Blaðsíða 34

Vikan - 27.09.1962, Blaðsíða 34
Allir utan hættu, austur gefur. A A-10-9 D-5-4 4 9-6-4-2 * A-K-5 A 8-5-3 y G-9-3 ^ 10-8-7-5-3 * 10-8 Austur Suður 1 hjarta 1 spaði pass pass Útspil hjartaþristur. 5 Af hinum mörgu tegundum bridgemanna, þá virðist hérumbil- sérfræðingurinn vera sá skemmti- legasti. Hann þekkir allar teórí- urnar og getur talað gáfulega um sagnir, úrspil og flest sem að spil- inu lýtur. Oft getur hann líka talið upp að tíu án þess að nota fingurna, en ekki alltaf. Fjórir af áðumefndri tegund spil- uðu ofangreint spil. Suður lenti í fjórum spöðum eftir að austur hafði opnað á hjarta og vestur var trúr köllun hérumbilsérfræðinganna og spilaði út hjartaþristi. Það heppnast í eitt skipti af fimmtíu að spila lægsta spili í sögð- um lit makkers þegar maður hefur gosann þriðja, en mér líkar þó persónulega betur við 98 prósentin. Þegar blindur lét lágt, setti aust- ur réttilega kónginn á, sem var- nagla við því, að vestur hefði spilað 7-6 A-K-10-6 K-D-G G-9-6-3 Norður 4 spaðar út frá fjórum lágspilum. Síðan spil- aði austur tígulkóng og suður tók til við að verða einn niður á spilið. Hann tók tvisvar tromp og spilaði síðan þrisvar laufi. Vestur trompaði þriðja lauf og spilaði hjartagosa. Suður var fljótur að benda á, að hann hefði tekið bezta möguleik- ann. Liggi laufin þrjú-þrjú, eða ef andstæðingurinn með aðeins tvö lauf á ekki þriðja trompið, þá vinnst sögnin með þremur slögum á lauf, sex á spaða og einn á tígul. En betri leið er að telja upp að tíu. í þriðja slag er spaða spilað á tíuna í borði, tígull trompaður með hátrompi, farið tvisvar inn á lauf til þess að trompa tvo tígla í viðbót. Síðan spilar suður síðasta trompinu sínu á A-9 í borði og fær síðan tíunda slaginn á laufadrottningu. Spili vestur hins vegar út hjartagosa, þá eru strax teknir þrír á hjarta og tromp eða lauf banar spilinu. Allir utan, austur gefur. A 7-3-2 y A-K-10-8-3 + 10-5-2 •fc 8-5 D-10-9-8 G-9-6 9-7-3 7-4-2 A V ♦ * A-K-6-4 5-4 A-K-G-6 A-10-5 Austur Suður Vestur Norður pass 1 tígull pass 1 hjarta pass 1 spaði pass 2 hjörtu pass pass 3 grönd pass pass Útspil laufakóngur. Einhver ætti að taka sig til og finna upp gervimann, sem gæti séð um alla venjulega spilamennsku, eins og t. d. að spila gegnum sterku spilin og á veikleikann í borði; að láta lágt í annarri hendi, hátt í þriðju o. s. frv. Það myndi vera fundið fé fyrir margan spilamann- 34 VIKAN inn; þeir gætu sett gervimanninn í gang, farið á bíó og borgað svo bara tapið á eftir, í stað þess að eyða timanum líka. Vestur spilaði út laufakóng, hélt áfram með drottninguna og gosann, þegar suður gaf tvisvar; allt mjög gott og sjálfsagt. í fjórða slag spilaði sagnhafi hjartafimmi, vestur lét tvistinn og eftir það átti hann skilið að vera leiddur út í port og skotinn. Sagn- hafi svínaði tíunni og fékk síðan fjóra slagi á hjarta, tvo á spaða og tvo á tígul, sem gera níu slagi með laufaásnum. Vestur á auðvitað að láta hjarta- drottninguna í fjórða slag, hann pr tapar ekki á því, nema suður eigi fjórtán spil og þá verður gefið upp hvort eð er. Suður hefur sagt tvo liti og sýnt þrjú lauf og getur því ekki átt þrjú hjörtu. Þið segið kannski að hann hafi getað opnað á þrílit í tígli og eigi því þrjú hjörtu. Ég get vel íallizt á það, en í því tilfelli getið þið ekki banað spilinu hvort sem er. Blóm á heimilinu: DÓMARABLÓM eftir Paul Y. Michelsen. Frúarlnuf Stephanolis floribunda. Frúar- lauf er ættuð frá Madagaskar. Mjög fögur vafningsjurt, sem blómstrar yndislegum hvítum blómum, er ilma langar leiðir. Blómin koma mörg saman í stór- um klösum í hverri blaðöxl og geta enzt margar vikur. Blöðin eru sígræn, leðurkennd, dökk, egglaga og koma tvö og tvö sam- an. Þessi vafningsplanta þarf góðan stuðning og er hægt að binda hana upp eins og hver vill. T. d. má setja vír í boga yfir pottinn, stinga niður tveim bambusstengum og setja þá þriðju sem slá yfir, og vefur plantan sig þá um stoðirnar. Þá má og festa nælonþráð úr pott- inum upp í gluggakarminn, sem sagt, á margan hátt má binda hana upp. Stephanolis þarf góða birtu og þolir sól nokkuð, með góðri hirðu, þolir talsverðan hita að sumrinu, en má hafa kaldara að vetrinum. Á sumrin þarf að vökva nokkuð mikið og gefa blómaáburð á aðalvaxtartíman- um. Frúarlaufi er fjölgað með græðlingum að vorinu og fram eftir sumri, en oft getur verið erfitt að láta þá festa rætur. Venjuleg moldarblanda er góð, sé hún frjó og ekki um of þétt í sér. Gætið þess að hafa gott frá- rennsli úr pottinum, gott að nota viðarkol í pottbotninn. Jacobina eða Justicia. Dóm- arablóm ættað frá Brasilíu er trjákenndur blómrunni. Af hon- um eru margar tegundir til. Jacobina magnifica verður um metershá með ferstrendum stöngli og stór aflöng eða egg- laga blöð, með rauðleitum æðum á neðra borði. Blómin stór rós- rauð, límug og sitja í 12—16 cm háu axi á greindarenda. Þau eru mjög fögur og töluvert lík Hyasintum. Mörg háblöð eru við blómskipanina. Þessi tegund er oftast kölluð Justicia carnea. Jacobina pohliana hefur fer- strendan rákóttan stöngul og stór langegglaga blöð og líkist fyrnefndri plöntu, en er grósku- meiri og blómin dökkrauðari. Jacobina pauciflora blómgast að vetrinum, pípulaga, rauðum og appelsínugulum blómum. Blöðin smá, slétt. Má ekki þorna um of og þolir minni hita en hinar. Dómarablómum er f jölgað með græðlingum á vorin og fram eft- ir sumri. Þrífast bezt í góðri vel frjórri mold. Þurfa góða birtu en ekki mjög sterka sól. Frekar mikla vökvun að sumrinu og góðan blómaáburð yfir vaxtar- tímann. Gott getur verið að toppstýfa Dómarablómin svo þau greinist betur. Þau virðast mjög dugleg og ánægjuleg í alla staði, geta orðið mjög grósku- mikil með góðri umhirðu. ir

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.