Vikan


Vikan - 27.09.1962, Blaðsíða 37

Vikan - 27.09.1962, Blaðsíða 37
f*ér njótið vaxandi álits ... þegar þér notið Blá Gillette Extra rakblöö Þér getið verið vissir um óaðfinnanlegt útlit yðar, þegar þér notið Blá Gillette Extra blöð, undrablöðin, sem þér finnið ekki fyrir. Pó skeggrótin sé hörð eða húðin viðkvæm, þá finnið þér ekki fyrir blaðinu ef notuð eru Blá Gillette Extra. 5 blöð aðeins Kr, 20.50. Gillette er eina leiðin til sómasamlegs raksturs i Gitlette er skrásett vörumerki. Og enn reis hún á fætur. Gekk þvert yfir svefnherbergisgólfið og tvílæsti að sér. Hún varð að komast á brott. Flýja. Hún gat þó ekki farið án þess að taka með sér það, sem hún hafði lofað að sækja. Maður hennar og börn vissu það, að orðum hennar var alltaf að treysta. Hún hraðaði sér yfír að kistunni og fór að leita í flaustri og hendur hennar titruðu. Það reyndist vera hreint ekki svo fyrirferðarlítið þegar til kom, sem hún þurfti að taka með sér, meira en hún gæti borið. Hún var tilneydd að taka leigubíl. Um leið og henni varð hugsað um bílinn, gerðist hún róleg aftur og hjartsláttur hennar dvínaði. Ég hringi samstundis á leigubíl, hugsaði hún, og fer ekki niður fyrr en ég heyri hann koma. En þá mundi hún, að það var lokað fyrir símann. Komast undan honum flýja hann Eiginlega var hann mér aldrei ástúðlegur, hugsaði hún. Ég minnist þess ekki, að hann væri mér nokkurn tíma góður og tillitssamur. Mamma sagði einmitt, að hann tæki aldrei tillit til mín. Af hans hálfu ur einungis ástríðu. Ekki sú ást, sem þrungin er góðvild. Þá hefði hann ekki heldur látið mig sverja þennan hræðilega eið ... Annars er ég búin að gleyma þessu... Nei, hún hafði engu gleymt. Hún mundi það allt ljóst og greinilega — óeðlilega ljóst og greinilega. Svo hræðilega ljóst, að tuttugu og fimm árin hurfu sjónum hennar, svo að hún leit í lófa sér ósjálfrátt til að fullvissa sig um, að merkið eftir hnappana á einkennisbúningnum sæist þar ekki enn. Hún mundi ekki einungis hvert orð hans og at- vik og algert mótstöðulevsi sitt þessa viku í ágústmánuði. Ég var alls ekki með sjálfri mér, hugsaði hún, það sagði fjölskylda mín líka. Hún mundi allt — allt nema andlit hans. Hvernig sem hún reyndi, gat hún ekki með neinu móti manað andlit hans fram fyrir hugskotssjónum sín- um. Ég get því ekki þekkt hann aftur, hvar svo sem hann bíður mín, hu<*s- aði hún. Og maður getur ekki flúið þarm. sem maður þekkir ekki. Eina ráðið til undankomu. var að hún gæti náð í leigubíl áður en stefnumót.sstundin rann upt>. Hún varð að laumast út og krækia fvrir torgið vfir á aðalgötuna og ná í loigub'l: síðan gat hún látið hann aka sér aftur heim að húsinu og fenmð bílstjórann til að koma inn með sér eftir farangrinum. Þá var hún örusg. Tilhugsunin ein jók henni dirfsku os framtak. Hún lauk upn dyrunum, gekk fram á stiga- pallinn og hlustaði. Hún heyrði ekki neitt, en allt í einu fann hún dragsúg leika um and- lit sér. Hann hlaut að koma neðan úr kiallaranum. Það var einhver, sem hafði onnað kjallarahurðina og farið út einmitt í þessari andrá. r m-iv !■ rj’- - " , ■ -,M . —. Regninu hafði slotað og gangstétt- irnar voru gliáandi af vætu, þegar frú Drover laumaðist út um aðal- dvrnar. Hversi sást maður á ferli og auð og yfirgefin húsin störðu á hnna á laun segnum gluggahlerana. Hún hlióp við fót og gætti þess veh að líta ekki um öxl, þótt hún hefði mikla löngun til þess. Þögnin var svo allsráðandi, að enginn hefði getað veitt henni eftirför án þess að hún yrði þess vör. Enn bjó fólk í húsunum við torg- ið, og þegar þangað kom, fór hún hægara, til þess að vekja ekki á sér athygli, enda þóttist hún öruggari þar sem hún vissi fólk nálægt sér. Handan við torgið sá hún tvo stræt- isvagna aka framhjá — konur á gangi, telpu með barnavagn og gaml- an mann sem ók hjólbörum á und- an sér. Allt virtist aftur eðlitegt og öruggt. Leigubílastöðin var þarna á hominu. Þessa stundina stóð þar ekki nema einn bíll, og það var rétt eins og hann biði eftir henni. Bílstjórinn ræsti hreyfilinn án þess að líta um öxl til hennar um leið og hún greip um hurðarhand- fangið og settist inn í aftursætið. í sömu andrá sló turnklukkan sjö. Bíllinn vissi út að aðalgötunni og varð því að snúa við til þess að komast heim að húsi hennar. Hún hallaði sér fram í sætinu, en sá þá sér til undrunar, að bílstjórinn var að snúa við, án þess að hún hefði enn sagt honum hvert halda skyldi. Hún drap fingrunum á rennirúð- una bak við hnakka bílstjórans. Hann hemlaði svo hastarlega, um leið og hann skaut reimirúðunni til VIKAN 37 i

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.