Vikan


Vikan - 27.09.1962, Blaðsíða 41

Vikan - 27.09.1962, Blaðsíða 41
R AFM AONSEI .DAVÉLAR MARGAR GERÐIR 85 '4K A Itl l \sn Gerð 4403-4 fáanlegar með 3 eða 4 hellum, glópípu eða steyptum (heilum), klukku og Ijósi, glóðarrist og hitaskúffu. Verð frá kr. 4.750.00 Eldavélasett til innbygging- ar f ný eða gömul eldhús, 2 gerðir, einnig með glóðarrist Verð frá kr. 7.090.00 settið Ódýrasta eldavélin á markaðnum Gerð 2650 - 3 steyptar hellur, auðveldar í hreins- un, með bökunarofni KBK H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN HAFNARFIRÐI an og mætti þeim á heimleiðinni, hélt áfram heim og þakkaði mann- inum hestlánið og bað hann vera í nótt, „en farðu strax á morgun og muntu fá gott veður og færð og komast út í Vík, en kom þú ekki í Krýsuvík.“ Maðurinn fór að ráð- um hans og fékk gott veður, en heim að Krýsuvík var bylur að sjá. Mað- urinn kom í Grindavík um kvöldið og reri næsta dag og annan og hinn þriðja. Að kvöldi þess dags komu félagar hans og höfðu teppzt í Krýsuvík þrjá daga í byl. En mað- urinn hafði þá fiskað meir en hundrað. EIRÍKUR og SVIKNI UNNUSTINN. Maður nokkur sem fór til vers gisti um nótt á Vogsósum; hann var mjög hryggur. Eiríkur kallaði hann afsíðis og bað hann segja sér hvað að honum gengi. Hann var tregur til þess, en sagði honum loks að unnustan sín hefði sagt sér upp áður en hann fór og bað nú Eirík ásjár. Hann kvað það all- óhægt. Um kvöldið lætur Eiríkur sinn mann hátta í hvurju rúmi og (er) sjálfur síðast á ferli. Nú er barið að dyrum og fer Eiríkur til dyra. Þar er komin stúlka í skyrtu og nærfati og rennvot; því rigning var. Hún heilsar presti og bað gistingar, kvaðst vera dauð í kulda. Hann lætur hana koma inn og spyr hvurning á ferð hennar standi. Hún mælti: „Ég fór út í kvöld hálfhátt- uð því mér kom í hug að vita hvurt þvottur hefði verið tekinn inn þeg- ar regnið kom. Ég ætlaði þangað sem hans var von, en villtist í myrkrinu og komst loksins hingað.“ Eiríkur mælti: „Nú er ekki um gott að gjöra, hér er húsfyllir af fólki og geturðu hvurgi komizt fyrir nema ef þú vilt fara upp fyrir manninn þarna í rúminu,“ og benti til ferðamannsins sem lá grafkyrr. Hún kvaðst gjarnan vilja það held- ur en deyja úr kulda. Fer hún upp í fyrir ofan manninn og þekkti hann þar unnustu sína og hún hann. Hún var hjá honum um nóttina og kom þeim vel saman. Þar eftir giftust þau og urðu góðar samfarir þeirra. PEYSAN. Öllum sögnum ber saman um það að Eiríki presti hafi verið send millifatapeysa, en mjög fer mis- sögnum um það hver það hafi gjört. Sögn er það fyrir norðan í Skaga- firði að það hafi gjört Stokkseyrar- Dísa eins og Gísli Konráðsson segir í þætti Vogsósa-Eiríks. Selvogsmenn segja að það væri kona ein á Vest- fjörðum, en Árnesingar segja að það hafi verið kvenmaður fyrir norðan. Sama segir Runólfur Jóns- son í Vík og að hún hafi verið prestsdóttir, er áður hafi átt í brös- um við Eirík. Sumir segja að peys- an hafi verið rauð, en aðrir að hún hafi verið fagurblá með rauðum bryddingum. En hvað sem öllu þessu líður er hitt víst að Eiríki var send peysan að gjöf og látið að gott eitt gengi þeim til er sendi, en raunar bjó það undir að kona þessi vildi reyna kunnáttu Eiríks. Selvogsmenn segja að sú er peys- una sendi hafi látið þau ummæli fylgja með að Eiríkur væri í henni er hann færi til Krýsuvíkur að messu. Prestur tók við sendingu þessari, leit á hana og lagði hana ofan í kistu og vildi lengi ekki í hana fara. Einn sunnudag er hann átti að messa í Krýsuvík var brunagadd- ur. Fór hann þá í hana. Prestur hafði mann með sér; segja sumir það hafi verið drengur sá er skar setskautann úr brókum sínum til að komast af baki á hesti Eiríks sem fyrr er sagt. En er þeir voru komnir út á Víðisand, aðrir segja svo langt að þeir sæju kirkjuna í Krýsuvík, fór peysan að herða að presti og svo leit út sem hann væri að brenna því hann þrútnaði allur upp og blánaði og féll af baki með froðufalli; mátti prestur þá ekki mæla, en þreifaði um sig með hendinni og benti meðreiðarmanni sínum. En aðrir segja að prestur hafi lagt undir við hann er þeir fóru frá Vogsósum að ef hann sæi sér nokkuð bregða á leiðinni skyldi hann rista utan af sér peysuna. Meðreiðarmaðurinn gripur þegar upp hníf hjá sér er hann sér hvað presti líður og ristir af honum peys- una. Raknar Eiríkur þá skjótt við og mælti: „Ég varaði mig ekki á þessu, heillin góð, því ég hafði gjört henni gott.“ Þakkar nú prestur fylgdarmanni sínum hjálpina og kveðst skyldi launa. Pilturinn seg- ist ekki ætla til launa fyrir þetta, en segir að presti fari lítilmannlega að láta stelpu eina gabba sig þann- ig. Prestur sagði svo vera, en kvað ekki útséð um það. Eftir það tekur prestur peysuna og snýr heim með hana og læsir hana ofan í kistu sem áður. Nú segja þeir svo frá sem láta Stokkseyrar-Dísu hafa sent presti peysuna að hann hafi setzt við að vinna og spinna gráa ull, fitjað upp á og prjónað nærpils er hann hafi sent Dísu og hafi henni þótt vænt um það því það hafi verið þykkt og skjólgott o. s. frv. En hinir segja að nú hafi liðið langt fram á vetur og Selvogsmenn segja að næsti vet- ur hafi komið svo ekki bæri til tíðinda. Það var eitt kvöld um vökuna að prestur bauð heimamönnum sín- um varnað á að ljúka upp bænum þó barið væri, en ganga sem bezt frá bæjardyrum, og hétu þeir góðu um það enda var þá bylur ákaflegur með frosti og fannkomu; sagði hann og að fáir mundu á ferð vera í því veðri. En ef barið væri skyldu þeir ekki hreyfa sig og ekki segja sér til ef hann yrði háttaður og heyrði ekki höggin fyrr en barið væri í þriðja sinn. Þegar leið á nótt fram er barið að dyrum, og urðu þeir þess varir er næstir sváfu presti að hann seg- ir: „Einhvur er þar seint á ferð og látum hann berja í annað sinn.“ Er þá þegar barið enn gríðarlegar en hið fyrra sinn. Prestur segir að ekki lægi enn á að fara til dyra. Þá var barið hið þriðja sinn og nokkru linlegar. Eiríkur stendur þá upp og klæðir sig og þó heldur tómlega, fer til dyra og lýkur upp. Sér hann þar komna kunnkonu sína (prestsdótturina) þá er hafði sent honum peysuna. Hún var í skyrt- unni einni og nærfatinu og hélt á næturgagni sínu í hendinni og var nær dauða en lífi af kulda. Eiríkur heilsar henni kompánlega og segir: „Nú er ekki meyjaveður úti og muntu eiga brýnt erindi heillin VIKAN 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.