Vikan - 24.01.1963, Side 9
Fljótt á litið virðast stræt-
isvagnar ekki ákjósanleg-
ur staður til þess að leita
sér að konu, en sé maður
laginn, þá niá einmitt
stofna til kynna og koma
ótrúlegustu hlutum til leið-
ar í strætisvagni.
legar stúlkur út í Nauthólsvík til þess að verða
brúnar, en verða bláar úr kulda í staðinn. Þá er
upplagt að bjóða þeim í kaffi.
FORÐIZT ÞÆR A VINNUSTÖÐUNUM.
Á vinnustað kynnast menn gjarnan stúlkum. Er það oft freist-
andi að fara eitthvað á fjörurnar við þær. Það eitt skal mönn-
um ráðlagt í því máli að gera það ekki, nema að þeir séu alveg
vissir um að veruleg alvara sé á þak við það. Það er ekki til verri
hlutur, en að vinna með stúlku, sem menn hafa einhvern tíma
verið með og svo hætt því. Kvenfólk sem telur að sér hafi verið
óvirðing sýnd af karlmanni, er algerlega samvizkulaust í hefnd-
inni, ekki sízt ef því finnst að karlmaðurinn hafi misvirt það
fyrir samstarfsfólki. Það er mjög góð regla að halda skemmt-
unum og s.tarfi, sem mest aðskildum. Ef þið eruð það hátt settir
að þið hafið einkaritara, er skynsamlegt að láta hana alveg vera
og umgangast annað kvenfólk utan vinnutímans. Ef þið eruð hátt
settir, fylgir því venjulega að þið þurfið mikið að vinna. Stúlka,
sem er orðin ykkur náin, vinnur aldrei eins vel og leyfir sér
meira, en sú sem aðeins er starfsstúlka.
Sundlaugar eru að mestu óplægður akur. Flestir karlmenn
fara þangað 1 þeim tilgangi einum að synda. Þarna er oft á
sumrin fjöldi af fallegum stúlkum, sem ekki hafa annað betra
við tímann að gera, en að sleikja sólskinið. Það er ekki talið
neitt athugavert við það að setjast við hliðina á stúlku og byrja
sjálfur að sleikja sólskinið. Það er þó æskilegt að hafa sjálfur
farið á laun út í bakgarðinn í nokkurra klukkutíma sólbað, áður
en farið er í slíkan leiðangur. Annars getur maður átt von á
því að vera eins og nýþvegin bleyja, við hlið einhverrar stúlku,
sem nálgast að vera eins og múlatti á litinn. Þessi litarmunur
getur haft mjög óheppileg áhrif á andrúmsloftið.
Þá er upplagt að setjast í heita kerið. Þar talast allir við ó-
hikað og ekkert talið óviðeigandi að ávarpa nærstatt fólk. Það
er rétt að geta þess, að vonlaust er að fara í Sundhöllina. Þar
hafa þeir fengið þá fáránlegu hugmynd að aðskilja kynin, meðan
á sólbaði stendur. Sundlaug Vesturbæjar er
tvímælalaust bezta sundlaugin.
ÞÆR SEM BLÁNA 1 NAUTHÓLSVÍK.
Nauthólsvíkin er eini vísirinn af baðstað
sem til er á íslandi. Þar sem sóldýrkun virð-
ist vera að verða almenn trúarbrögð hjá
ungum stúlkum og sú þykir fallegust (í
augum kvenna að minnsta kosti), sem er
brúnust, hópast þær suður eftir hvenær sem
sér til sólar, að sumrinu. Tilgangurinn er
að verða brúnar, en svo er veðráttu okkar
háttað, að þær geta allt eins orðið bláar úr
kulda, enda yfirleitt eins lítið klæddar og
velsæmið leyfir.
Ekki er ráðlegt fyrir menn að fara að
sýna neinn hetjuskap, svo sem að synda í
sjónum. Það getur endað með því að menn
komi skjálfandi af kulda upp úr, og í versta
tilfelli með drukknun. Það er miklu skemmti-
legra að ganga um og horfa á stúlkurnar
og jafnvel að tala við einhverjar þeirra. Þó
er rétt að fara varlega að þeim. Stúlkur
vilja ekki tala mikið í Nauthólsvíkinni, en
þó er alltaf reynandi að bjóða þeim kaffi,
þegar hann er kominn á útsunnan.
Bókasöfn og önnur söfn eru hvorki mikið
umtöluð né stunduð hér á landi. Mikill
meirihluti þeirra, sem þangað koma, eru
stúlkur og óvíða er eins auðvelt að gefa sig
á tal við þær eins og einmitt þar. Umræðu-
Framhald á bls. 3(i
Einn góðan veðurdag kemur að
því, að þú berð hina útvöldu yfir
þröskuldinn.
. V*- .