Vikan


Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 6

Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 6
A0EIHS FYRIR KARIMENH Sú fallega. Hún hefur athyglisverða snoppu, veit það og eyðir of miklum tíma í sjálfa sig. Oft frekar einmana. Þó að fæstir karlmenn séu tilbúnir að viðurkenna það, líta þeir undantekningalaust á stúlkur sem þeir kynnast, sem hugsanlegar eiginkonur, jafnvel þó að þeir séu ekki í neinum giftingarhugleiðingum. Þeir eru stöðugt að velta þessu fyrir sér, jafnvel þó að þeir hafi í augnablikinu mjög óheiðar- legar fyrirætlanir. Flestir karlmenn hafa talið sjálfum sér trú um að þeir hafi aðeins áhuga fyrir vissri „typu“ af stúlkum. Þetta er tóm vitleysa, eins og þeir munu fljótt sjá, ef þeir líta yfir farinn veg. Stúlkurnar sem þeir hafa verið skotnir í, eiga fátt ann- að sameiginlegt en að ganga á tveim fótum. Áður en við snúum okkur að því að lýsa helztu tegundum kvenna, er rétt að taka það fram, að það hefur hingað til ekki tek- izt neinum karlmanni, að skilja konur. Við ætlum ekki að reyna það, heldur líta yfir nokkrar staðreyndir, sem geta orðið ykkur til leiðbeiningar. Að sjálfsögðu heyrir engin stúlka til einum flokki algerlega. Líklegra og æskilegra er að hún sé blanda úr mörgum. Það sem gerir þó allra erfiðast fyrir, við að komast að niðurstöðu um konur, er þessi tilhneiging þeirra að vera aldrei alveg eins, frá degi til dags. Þetta getur verið mjög þreytandi, en þó- er það þetta, sem kemur í veg fyrir að menn verði leiðir á konunni sinni á fyrsta hálfa árinu. Því meira sem hún hefur af þessum eiginleika, því skemmti- legra verður hjónabandið, en því storma- samara líka. Við byrjum að ræða um þá rómantísku, þar sem hún er tiltölulega algeng. Sú rómantíska er oft mjög skemmtileg stúlka. Það stafar ekki sízt af því að allir karlmenn eru meira eða minna rómantískir, þó að ekki vilji þeir viðurkenna það fyrir nokkurn mun. Hún er yfirleitt góð stúlka, tilfinn- inganæm og góðhjörtuð.Þó er það verra að hún getur alveg eins verið væmin og tilfinningasöm. Verið góðir við þessa stúlku. Hún á það skilið, því að öll hennar innstilling hneigist að því a.ð vera góð við ykkur, ekki sízt ef þið hafið vit á því, að ganga með henni suður í Hljómskálagarð og tala um hve máninn sé dásamleg- ur, eða fara út í Örfirisey og horfa á sólina setjast. Hún er mjög hrifin af Fríkirkjuveginum, vegna ljóðs Tómasar og ef hún les einhver ljóðskáld, eru það vafalaust Tómas o" Davíð. Annað sem hún kann að lesa er allt róman- tísk vella, sem þið gætuð ekki lesið nema að halda fyrir nefið. Reynið fyrir alla muni að láta hana ekki lána ykkur bækur, því að hún mun kynna sér hvort þið hafið lesið þær, með stöðugum spurningum um hvort það hafi ekki verið dásamlegt, þegar greifinn giftist stofustúlkunni fátæku. Vei þeim manni, sem þá segir: „Bölvaður asni var greifinn að giftast henni, fyrst sú dökkhærða og ríka vildi hann“. Giftist þessari stúlku fyrir alla muni, ef þið viljið aldrei sjá aðrar kvikmyndir framar, en þær sem leiknar eru af Rock Hudson og Doris Day, ef þið viljið aldrei sjá aðrar bækur en þær sem heita Eldur ástarinnar, Eldheit ást, Sigur ástarinnar, Ástin sigrar, eða eitthvað svipað. Þessi stúlka getur vel orðið góð húsmóðir, en það er veruleg hætta á að hún fái mikinn smekk fyrir jarðarfarir, um það leyti sem hún verður fertug, og sæki þær af miklu kappi. Eftir Sú sem á bíl. Hún hefur öll völd með- an hún er við stýrið og þegar maður á ekki bíl sjálfur er hann í voðalegri aðstöðu. Sú giftingarsjúka. Verður alltaf eigin- kona, en sjaldan góð eiginkona. Er til með að slá af kröfunum, ef sá herða- breiði lætur standa á sér. ERTU AÐ LEITA AÐ KONU? 0 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.