Vikan


Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 16

Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 16
SMÁSAGA EFTIR CARMEN CASTILLO Stella Barton stóð á tröppunum við Villa Acacia og starði ráðþrota á læstar dyrnar og lilerana fyrir gluggunum. Hljómur dyrabjöllunn- ar ómaði enn i eyrum hennar úr tóinu liúsinu. Það var enginn liér, enginn til þess að taka á móti lienni! Hún var komin flugleiðis frá London til Gihraltar, síðan hafði hún farið til La Linea og svo með áætlunarbílnum í gegnum frjósöm liéruð Suður-Spánar. Allan þennan brennheita dag hafði hún hlakkað til að komast á áfangastað, fá þar hlýjar móttökur og svalt bað. Hinn nýi húsbóndi hennar hafði verið mjög vingjarnlegur, þegar lnin hitti hann i London, og konan hans einnig. Og núna, þegar hún var komin alla leið til Malaga til þess að hefja starfið, var enginn hér að taka á móti henni. . . Nú var hún hér alein í ókunnu landi með nokkur pund í vasanum, fyrir utan pesetana, sem hún hafði keypt við landa- mærin, svo að hún gæti borgað farið í áætlunarbílnum hingað til þessa iitla þorps við sjóinn. Hvað gat hún gert? Hún andvarpaði, tók töskuna sína og gekk út á torgið, þar sem hún hafði far- ið úr bílnum. Hún reyndi að liaida sig í skugga trjánna. Þegar hún kom að litla útiveitinga- húsinu með guiu og bláu sólhlífunum, var hún búin að fá höiuðverk. Hendur hennar voru sveittar og henni leið illa og liún settist við lítið borð og bað um ávaxtadrykk. Það fór áætlunarbill til Malaga eftir einn eða tvo tima. Þar varð hún að hafa upp á brezka ræðismanninum.. En átti hún nóg fyrir farinu? Og setjum svo, að ræðismannsskrifstofan væri lokuð, þeg- ar hún kæmi þangað! Hún kunni ekki orð i spænsku, og það var enginn, sem hún gat leitað Jijálpar hjá. Stella lokaði augunum til að forðast sterkt sólarljósið. Hún sá fyrir sér skrif- stofuna i London, þröngt og lítið herberg- ið, fólksfjöldann og hraðann á öllu -— meira að segja einmanalegar helgarnar, sem hún hafði alltaf kvjðið svo fyrir, voru betri en þetta. Höfuðverkurinn fór versnandi og lamaði hugsun hennar og vilja- þrek. Hún sá óljóst glæsilegan, amerískan bíl slanza við gangstétl- ina, og mann og stúlku stíga út. Stúlkan hafði gullinbrúna húð, sem sýndist dekkri við sítrónugulan kjólinn. Svart hár liennar var tekið saman í hnút i hnakkanum og fagurt andlitið var svip- MÁNI 16 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.