Vikan


Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 9

Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 9
ekkert að tala við hana um annað en íþróttir, eða þá eitthvað af þessum venjulegu saumaklúbbaumræðuefnum, sem karlmönnum eru ekki létt né skemmtileg. Hún verður þó góð eigin- kona, sem fæðir heilsusamleg böm og vel trúlegt að hún geri menn úr þeim með dugnaðinum. Sú fráskilda er gjarnan varasamur kvenmaður. Hún er ekkert að hika við að láta þig vita það, ef hún hefur áhuga fyrir þér. Hún hefur áhuga fyr- ir karlmönnum, nærri sama hver þeirra er. Fyrst eftir að hún skilur, vill hún ekki heyra á giftingu minnzt, en fljótlega verður henni það efst í huga. Eitt af því sem er óþægilegt við hana, er það að hún talar um allskyns feimnismál, eins og ekkert sé sjálf- sagðara. Þetta er hún alveg til með að gera hárri raustu á opinberum stað. Það er almenn trú að fráskildar konur séu allar lauslátar og hafi fyrir engu öðru meiri áhuga. Þetta kann <3 Sú sem á barn. Hefur orS- ið fyrir óhappi, sem marg- ar gæti hent. Engin ástæða til að fordæma hana og úti- loka vegna þess. Sú metnaðarlausa. Hún á hágt, óvönd að félagsskap og hættir til að fara í hundana. — Verður jafn kærulaus í hjónahandinu. að vera rétt í sumum tilfellum, en varla er það almennt. Ef þið verðið ástfangnir af henni þá giftizt henni, en varla er ástæða til að leggja áherzlu á að fá nokkur börn í búið, þegar þið giftist, nema um mikla ást sé að ræða. Sú fráskilda er oft lífleg og góður fé- lagi. Sú, sem á barn í lausaleik, hefur orð- ið fyrir óhappi, sem komið gæti fyrir miklu fleiri kynsystur hennar en raun ber vitni, ef þær væru ekki heppnari. Þá er rétt að hafa það í huga að sam- kvæmt rannsóknum sem fram hafa farið, er talið að um 20 prósent af öllum þungunum í hinum vestræna heimi, endi með fóstureyðingu. Það er varla ástæða til að ætla að talan Stúlkan, sem notar karlmenn~;rj er furðu algeng. Hún sést oft ein á skemmtistöðum eða þá með giftum mönnum. Hún er venju- lega í svo dýrum fötum, að engin von er til að hún hafi efni á þeim af launum sínum. Hún er venjulega heldur fínna klædd en ástæða er til. Það er skemmti- legt að fara með henni út, þang- að til kemur að því að fylgja henni heim. Þá vill hún annað- hvort fara ein í bíl, eða að það má alls ekki fara alveg að hús- inu. Af hverju það stafar verður hver að gera upp við sig, en mín skýring er sú að hún sé að fara að hitta einhvern annan, sem ekki má láta sjá sig með henni í birtu dags. Þetta er ein versta tegund kvenmanns. Framhald á bls. 48 Sú iistfenga. Ógreidd og drusluleg eða frumleg og snyrtileg. Verður alltaf erfið eiginkona vegna duttl- unga. Oftast misskilin. stúlkan verður barnshafandi. Sú sem er orðin 35 ára er mjög á- kveðinn kvenmaður. Hún er í leit að karlmanni, hver sem hann er, hvernig sem hann er og hvar sem hann er. Hún á kannski bæði bíl og íbúð og er í góðri stöðu. Hún er samt orðin þreytt á öllu saman og orðin örvæntingarfull yfir því að eiga ekki mann eins og allar hinar í saumaklúbbnum. Eins og allar aðrar konur vill hún helzt fá duglegan og karlmannlegan mann, þó að hann kunni að vera eitt- hvað síðri í útliti en Cary Grant. Hún hefur þó ekki lengur möguleika á að velja og hafna. Hún getur aðeins vonað að einhver velji hana. f millitíðinni reynir hún allt hvað hún getur og not- ar ekki alltaf til þess skynsamleg ráð. Það er oft auðvelt að notfæra sér þess- ar konur, ef menn hafa þannig sam- vizku. Yfirleitt eru þær þó ekki sér- lega girnilegar, sem eiginkonur, of langt sjálfstæði hefur sett sitt mark á þær, svo að þær verða varla úr þeesu mjög sveigjanlegar. Sú, sem er hrædd við karlmenn, er oft mjög skemmtileg stúlka, sem skemmtir sér mikið. Hún kyssir alla á kinnina, sem hún rekst á og er ekk- sé mikið lægri hér. Þarna er því stúlka, sem hefur hugrekki til að taka afleið- ingunum af eigin gerðum. Það skiptir miklu hvernig stúlkur fara með þetta. Það er hrein fásinna að umgangast karlmann til lengdar án þess að segja honum frá því. Hitt er jafn ástæðulaust að segja frá því í fyrsta skipti sem þær hitta manninn. Munið það að ekki er endilega ástæða til að fordæma stúlku, þó að hún hafi eignazt barn utan hjónabands. Þjóðarsiðgæðið á þar mikla sök, þar sem það telur ekkert athugavert við að fólk búi saman utan hjónabands, og það er alls ekki óal- genet að maðurinn ert feimin að faðma karlmenn, ef nógu margir eru viðstaddir. Þegar hún er orðin ein með karlmanni stirðnar hún upp, ef komið er við hana einhvers stað- ar fyrir ofan úlnliði. Hún er venjulega full af öllum möguleg- um sálarflækjum og þó ein- kennilegt sé, hefur hún gjarnan ánægju af því að tala um kyn- ferðismál. Hún gætir þess þó gjarnan að sitja nærri hurðinni, ef ske kynni að samræðurnar hefðu einhver veruleg áhrif á karlmanninn. Þegar hún eign- ast mann, eru allar líkur til að hún verði ástrík og góð eigin- kona. Eitt veit maður líka um hana, að hún er ekki brunninn eldur, þegar hún loks gefur sig manni, sem gjarnan er ekki ann- ar en eiginmaðurinn. Sú sem er orðin 35 ára. t leit að karlmanni, hver sem hann er, hvernig sem hann er og hvar sem hann er. Orðin örvæntingar- full VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.