Vikan


Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 7

Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 7
Sú sem er hrædd við karlmenn. Kyssir menn á kinnina í fjölmenni, en stirðnar upp, ef komið er við hana fyrir ofan úlnliði. það verða samræðurnar á heimilinu allar um líkræður. Ekki uppörvandi eftir erfiðan dag. Sú giftingarsjúka á oft eitthvað sameiginlegt með þeirri rómantísku, en þær eru alls ekki í sama flokki. Þessi er til dæmis miklu verra eig- inkonuefni, þó að miklu meiri hætta sé á að þið giftist henni, þar sem hún er miklu ágengari. Þessi stúlka er venjulega um eða yfir tvítugt, í sæmilegri vinnu, ekki rík, en hefur næga nasasjón af auðæf- um til að vita, að þau vill hún fá. Hana dreymir um háan herðabreið- an mann og allt það gull og ger- semar, sem sá hinn sami þarf að eiga. Látið ekki þessa drauma svæfa ykkur til falskrar öryggiskenndar. Þó að þið kunnið að vera innskeifir, hjólbeinóttir og pervisalegir, er hún alveg til í að slá eitthvað af draum- unum, til að geta gift sig, sér í lagi ef hana grunar að þið munið eiga eitthvað af peningum, eða eigið möguleika á að eignast þá. Hitt er svo annað mál, að hún lætur mann- inn sinn aldrei gleyma því að hún giftist honum, þó að einn hár, herðabreiður og ríkur hafi verið á boðstólnum. Þetta tyggur hún upp í sífellu, þangað til hún trúir því sjálf. Eftir það fyrirgefur hún hvorki Stúlkan, sem notar karlmenn. Oft á skemmtistöðum með gift- um mönnum. Fínt klædd en mjög varhugaverð. Forstjórinn verður sérstaklega að gæta þess, að gera hana ekkj að einkaritara. Sú metnaðargjarna. Henni nægir ekki jafnrétti, óhemju góð fyrirvinna, en hald- in stórhættulegum nútímasjúkdómi. manninum né sjálfri sér þessi herfi- legu mistök. Þessi stúlka er hættu- leg, því að hún verður sjaldan góð eiginkona, en verður þó yfirleitt alltaf eiginkona. Það er með hana eins og annað fólk, sem ekki hefur nema eitt markmið í lífinu, hún nær því yfii'leitt. Piltar, þið eigið fótum fjör að launa í þessu tilfelli. Sú metnaðargjarna er haldin stórhættulegum nútímasjúkdómi, sem þjáir mestan hluta kvenkyns- ins. Henni nægir það ekki að hafa jafnrétti við manninn, vera honum jafnfætis. Hún vill vera eins og hann, gera sömu hluti og hann og ef hægt er, vera honum nokkru fremri. Þessi stúlka er oft huggu- leg, og þá venjulega vegna þess að hún telur heppilegt að vera hugguleg. Það veikir karlmenn í viðskiptum við hana. Hún gengur í dragt, með karlmannlega sniðn- um jakka og í blússu sem líkist karlmannsskyrtu. Hún er óhemju dugleg og ef þið hafið áhuga á að giftast fyrirvinnu, er þetta mann- eskjan sem þið eruð að leita. Hún mun vinna fyrir manni sínum um- yrðalaust, en fyrirlíta hann af hjarta. Verði hún fyrir því að eign- ast börn, sem koma í veg fyrir að hún geti starfað utan heimilisins, mun hún snúa sér að heimilinu og halda því í svo grimmilega góðu standi, að hvergi má leggja frá sér logandi vindil. Hún mun ota manni sínum áfram án miskunn- ar og hefur alltaf einhvern til að bera hann saman við. Það er erfitt að vinna fyrir henni, en hún er góð fyrirvinna. Sú metnaðarlausa á bágt og full ástæða til að vorkenna henni. Hún er algert rek- ald í lífinu. Hún hefur engan áhuga fyr- ir vinnunni og sinnir henni því ekki meira en svo vel og hefur heldur ekki neinn verulegan áhuga á neinu öðru. Hún er mjög óvönd að félagsskap og lítur svo á að hún geti alveg eins umgengizt þig eins og hvern annan. Ef maður fer út með henni, getur hann alveg eins átt von á því að sjá hana með frægum róna daginn eftir. Hún gerir engan greinarmun á fólki, og þó að það sé dyggð að gera ekki manna- mun, má ganga of langt í því. Hún er hamingjusöm, að svo miklu leyti sem hún getur verið það, ef hún á fyrir næstu máltíð. Hún hefur litlar tilfinningar, en ef hún sýnir þær veit hún oftast ekki hvernig bezt er að sýna þær. Hún er alltaf í hættu fyrir ófyrirleitnum mönn- um og lendir oft í óhöppum, svo sem að eignast barn, og það er alltaf stúlka af þessari gerð, sem veit ekki hver faðirinn er. Það er þó verra, að það er engin trygg- ing fyrir hegðun hennar að hún gifti sig. Sú veraldarvana. Skemmti- leg og kann sig vel. Heill- andi en erfið og verður oft- ast mjög góð húsmóðir. Það eru talsverðar líkur til að hún verði jafn kæru- laus innan hjónabands sem utan. Sú skemmtanasjúka er furðu algengt fyrirbæri. Hún er alltaf að skemmta sér og það einkennir hana að hún metur skemmtanir fremur eftir magni en gæðum. Ef hún fer út að skemmta sér er ekkert gaman, nema skemmtunin standi fram undir morgun og því meira er gaman, sem fleiri flöskur eru drukknar. Það er þó at- hugandi að skemmtunin er ekki aðalatriðið, heldur það að tala um hana eftir á. Hún er gjarnan grá, tuskuleg og í vondu skapi, fram eftir degi, en úr því fer að rökkva minnka baugarnir undir augunum og hún fer að lifna við. Hún talar mikið og er oft skemmtileg, en sjaldan kemur það fyrir hana að segja nokkuð, sem athygl- isvert getur talizt. Þegar hún giftist er hætta á að Framhald á næstu síðu. OG HELZTU EINKENNI ÞEIRRA VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.