Vikan


Vikan - 31.01.1963, Síða 8

Vikan - 31.01.1963, Síða 8
hún vilji hafa hjónabandið stöðugt tilhugalíf og hringiðu. Þó er líka hugsanlegt að allar skemmtanirnar hafi stafað af veiðiskjálfta og þá róast hún svo rækilega að hún vill helzt ekki neitt fara út.. Sú veraldarvr.n?. er ákaflega skemmtileg stúlka. Hún er alitaf fallega klædd og kann að bera föt. Hún hefur ferðazt um talsverðan slatta hins siðmenntaða heirns og jafnvel út fvrir hann. Það er ör- uggt að hún kann tveim til þrem tungumálum meira en maðurinn sem hún er með. Hún dansar charieston, mambo, cha cha og twist eins og sérfræðingur. Hún elskar osta, rauðvín og spaghetti. Hún er yfirleitt glitrandi skemmtileg í samræðum, getur talað um flesta hluti af nokkurri skynsemi. án þess að vita neitt um þá. Hún vcit ctrúlegustu hluti, en yfirleitt eru það þeir hlutir, sem minnstu máli skipta í lífinu. Hún sver og sárt við leggur að hún muni annaðhvort aldrei gifta sig, eða að minnsta kosti ekki fyrr en hún er 35 ára gömul, vegna þess að það sé svo gaman að lifa ein. Það einkennir hana öðru fremur, að hún vill aldrei tala um neitt í alvöru, né 20 MISMUNANDI GERÐIR Sú rómantíska. Getur orðið góð húsmóðir, en hættir til að fá of mikinn áhuga fyrir jarðarförum og líkræðum. taka neitt alvarlega. Það má heita gjörsamlega ómögulegt að koma henni á óvart, nema þá að með því, að tala skynsamlega og alvar- lega um eitthvað sem máli skiptir. Það er enginn vafi á að hún skilur það. Að skemmta sér með henni er mjög dýrt. Hún drekkur talsvert, en þolir mikið, húp biður alltaf um eitthvað af því dýr- asta á matseðlinum, ekki af því að það er dýrast, heldur af þvi að henni þykir það gott. Hún er oftast laus við snobb. Þessi stúlka giftist að sjálfsögðu miklu fyrr en hún ætlaði sér, en venjulega niður fyrir sig, hvað viðkemur menntun og karakter. Þegar hún er gift er leitun á annarri eins húsmóður. í stuttu máli, heillandi stúlka en erfið. Sú snobbaða vill alls ekki tala við ykkur, nema hún haldi að þið séuð henni meiri, rikari, eða hærra settir í þjóðfélaginu. Hún talar í sífellu um frægt fóik sem hún hefur kynnzt, staði sem hún hefur farið til, og ef hún er sérlega langt leidd, talar hún um staði sem hún hefur ekki heimsótt, vegna þess að hún telur þá fyrir neðan virðingu sína. Til að slá hana alveg út, þarf ekki annað en að þekkja nöfn á tveim frönskum réttum og einni tegund af rauðvíni. Svo er bazt að líta ekki á matseðilinn, en panta þetta. Þessu verður hún hrifin af. Hún hefur mikla tilhneigingu til að senda aftur steikina, af því hún sé ekki rétt steikt, til þess eins að vera merkileg, þó að hún þekki ekki muninn á góðri steik og slæmri. Hún er yfirleitt illkvittin við alla minnimáttar, ókurteis við alla, sem ekki mega svara fyrir sig, svo sem þjóna, og yfirleitt gersneydd tillitssemi. Hún hatar foreldra sína fyrir að hafa ekki ættarnafn og er illa við ailt sem er íslenzkt. Ekki held ég að þurfi að vara ykkur sérlega við þessum kvenmanni, þar sem þið verðið að deyja úr leiðindum eftir stutta stund með henni. Sú, sem er listasnobb, hefur flest einkenni þeirrar snobbuðu, þó beinist það inn á nokkuð aðr- ar brautir. Það er rétt að leyfa henni að tala, og segja henni svo að maður hafi lesið bæði Camus og Kafka. Ekki er þó rétt að segja það nema að það sé satt. Hún hefur aldrei vit á neinni list, vegna þess að hún hafi áhuga fyrir henni, aðeins af því að hún heldur að það sé fínt. Hún segir örugglega ef hún hefur komið til Parísar, að hún hafi ekki séð Louvre. Það er ekki í tízku núna að mála figurativt og þess vegna fyrir- líur hún það. Það er alltaf þreytandi að heyra fólk tala um það sem það hefur ekkert vit á og ekki sízt þegar um er að ræða huggulega stúlku, sem maður var að vona að væri skemmtileg. Sú listfenga er allt öðruvísi. Hún er ýmist ógreidd og druslu- leg til fara, eða sérkennileg og snyrtileg. Hún er gjarnan við- kvæm og skapheit og sér yfirleitt alla hluti í öðru ljósi en annað fólk. Það er mjög auðvelt að misskilja hana, en nær ómögulegt að skilja hana. Þess ber vel að gæta að rugla henni ekki saman við listasnobb, því að hún er alltaf að reyna að tjá sig í gegn um list, þó að það gangi misjafnlega, enda eru hæfileikar fólks misjafnir. Hún er ekki að þykjast. Það borgar sig aldrei að látast vita meira en maður gerir um listir, þar sem hún á í hlut. Það er miklu nær lagi að reyna að læra eitthvað af henni, sem oftast er hægt. Hún verður alltaf erfið eiginkona, vegna tilhneiginga sinna, hvort sem hún hefur hæfileika eða ekki, en aldrei verður hún leiðinleg. Sú bókhneigða er sorglega sjaldgæf á þessum síðustu og verstu tímum. Yfirleitt Sú bókhneigða. Hún er róleg og óspillt en fyrir alla muni talið ekki við hana um bækur. Sú skemmtanasjúka. Þegar hún giftist, villi hún hafa hjónabandið stöðugt tilhuga- <3 Iíf og hringiðu. Metur skemmtanir eftir magni fremur en gæðum. er hún róleg stúlka, sem ekki hefur á neinn hátt látið hraða nútímans hafa áhrif á sig. Það getur meira að segja verið að hún sé í rólegheitum að láta lífið fara fram hjá sér, með því að loka sig um of frá því. Það er oft erfitt að kynnast henni, en það er þess virði. Hún veit allt mögulegt, en finnst hún ekki vera sérlega menntuð, eins og öllum þeim finnst, sem eru að byrja að verða það. Þeim sem ekki eru það, finnst þeir gjarn_ an vita svo til allt sem er þess virði að vita. Hún hefur oft fremur lítinn á- huga fyrir útliti sínu. Gætið þess að tala ekki við hana um bækur. Það er miklu líklegra til að draga hana út úr sjálfri sér að tala um eitthvað sem hún ekki þekkir, en maður þekkir vel sjálfur. Af umgengni við jafn ágæta hluti eins og bækur hefur hún lært að taka við hug- myndum. Sú, sem stundar íþróttir er stælt og vöðvamikil, en því miður er hún stundum vöðvamikil, þar sem hún alls ekki ætti að vera það, svo sem á fótleggjum. Það er vissara, ef menn eru ekki í góðri líkamlegri þjálfun, að gerast ekki ágeng- ir við hana, til að tryggja það að liggja ekki skyndilega undir sófa með handlegg- inn úr liði. Hún er hörkudugleg og hefur mikinn viljakraft. Það er meira að segja hætta á að viljakrafturinn sé svo mikill, að þú sért farinn að stunda fjallgöngur og víðavangshlaup með henni, áður en þú veizt hvað kom fyrir þig. Venjulega þýðir g VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.