Vikan


Vikan - 31.01.1963, Síða 10

Vikan - 31.01.1963, Síða 10
eir, sem áttu frívakt, lágu í koj- um sínum. Úti íyrir var vitlaust veður, stórsjór og suðaustan slag- veður. Togarinn lét illa á öldu- földunum, en það hafði ekki áhrif á vana og veðraða sjómennina um borð. Þeir voru fjarri sínu heimalandi, Bretlandi, höfðu verið á hinum fengsælu Islandsmiðum, þar til veðr'ið útilokaði veiðar, þá var leitað vars upp undir land. Þeir, sem voru á vakt reyndu eftir megni að standa í skjóli, og regnið rann í stríðum straumum af olíu- fötum þeirra, og rokið réif í þau svo þeir áttu erfitt með að hreyfa sig.............. Allt í einu lcom hnykkur á skipið, og ógn- þrungið brak heyrðist um leið. Sjómennirnir hentust fram úr kojunum, og þeir, sem voru á vakt, en höfðu ekki skorðað sig af, duttu við hnykkinn. í sama bili gekk ólag yfir skipið, það hallaðist við og rétti sig ekki aftur. Eng- inn þurfti að segja neitt. Togarinn Tribune var strandaður í náttsorta og vitlausu veðri við klettótta íslandsströnd. í gegn um sælöðrið, sem gekk nú án afláts yfir skipið, grilltu skips- menn annað veifið í gnæfandi klettavegginn, eins og þil milli lífs og dauða. GAUL ÚR NÓTTINNI. Heima i Höfnum voru allir í fasta svefni. Hvergi sást ljós í glugga, og liúsin voru dimm og drungaleg í slagveðrinu. Allt i einu glað- vaknaði bóndinn i Junkaragerði: Hvaða hljóö var þetta? Hann blustaði, en ekkert heyrðist nema veðragnýrinn. En liann var öruggur um það, að það var eitthvað annað, sem hafði vakið hann. Hann leit á klukkuna. Hún var tvö um nótt. Dagatalið sýndi, að það var 22. febrúar, 1914. Bóndinn i Junkaragerði fór fram úr og leit út um gluggann. Regnið gráfyssaði á rúðunum, annað var ekki að sjá, aðeins kol- svart útmánaðamyrkrið fyrir utan. Nú lieyrð- ist hljóðið aftur. Það var ekki um að villast. Þetta var skipsflauta. Bóndinn á Junkaragerði fór að pota sér í buxurnar. Hann var ferðbúinn og i þann veginn að leggja af stað, þegar umgangur heyrðist úti fyrir. Þar voru komnir inenn frá Kalmans- tjörn, Traðhúsum og Sólheimum. Vælið i skips- fíautunni hafði einnig heyrzt þangað. Varð nú að ráði, að senda hóp manna suður með strönd- inni, þvi það lá í augum uppi, að einhvers staðar þar var skip i nauðum statt. UNDIR ÞVERHNÍPTU DERGI. Fámennur liópur lagði af stað til leitar og gekk skáhallt móti veðrinu. Smám saman vönd- ust augu þeirra myrkrinu, en veðrið lægði ekki. Þegar þeir komu út á Hafnabergið, grilltu þeir togarann Tribune, þar sem hann lá strandað- ur mjög nærri berginu, sem þarna er 18—-20 faðma hátt og þverhnipt. Þeir sáu strax, að ekki myndi unnt að bjarga neinum frá landi. Þeir sáu mönnum bregða fyrir i brú togarans og á hvalbaknum, svo enn höfðu einhýérjir staðizt átök höfuð- skepnanna. Leitarmenn kyntu bál á berginu, svo togaramönnum yrði Ijóst, að til þeirra liafði sézt, og björgunaidilraunar væri að vænta. Heima í Höfnum kom engum dúr á auga, þótt leitarflokkurinn væri farinn. Það kom cng- um á óvart, þegar leitarmenn konui aftur og sögðu tíðindin. Það var ekki um ann- að að ræða, en freista þess að bjarga Bretunum af sjó, þótt það væri ekki árennilegt, að leggja af stað út undir Hafnaberg á litlum, opnuru báti i þessu veðri. En eitthvað varð að gera, og sjómennirnir í Höfnunum vissu hvað það þýddi, að vera staddur i sjávarháska, og enginn taldi eftir sér að reyna að bjarga nauðstöddum mönnum frá hinni votu gröf, þótt það hefði mikla áhættu í för með sér. IIUGSAÐ TIL FARAR. Tveir áttæringar stóðu uppi i vörinni við Kalmanstjarnarvík. Annar liét Ev,a, hann átti Ólafur Iíetilsson á Kalmanstjörn, formaður var Magnús Magnússon i Traðhúsum. Hinn bátur- inn hét Hreggviður, hann átti Jón Jónsson í Junkaragerði og var sjálfur formaður. Hreggviður var léttari bátur og liprari, og varð hann fyrir valinu, því menn þóttust vita,

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.