Vikan


Vikan - 31.01.1963, Page 12

Vikan - 31.01.1963, Page 12
An nar hluti og niðurlag Þeir höfðu málverkin á valdi sínu, en enginn sá hvað gera skyldi við þau fyrr en Refurinn kom. Lausn hans var útsmogin og snjöll. - Smásaga: Paul Callico. Þýð.: Steinunn S. Briem. Þeir sátu liljóðir og óhamingju- samir. „Jæja,“ sagði ofurstinn, „fyrst þið eruð búnir að játa á ykkur mestu heimskupör aldarinnar og getið' ekki borið fram neinar ástæður, sem standast gagnrýni heilbrigðrar skyn- semi, hvaða afsakanir hafið þið þá fyrir því að eyðileggja líf ykkar sem heiðvirðir horgarar og gerast glæpamenn?“ Enn einu sinni litu fjórmenning- arnir hver á annan með sektarsvip, og að síðustu varð Antoine Petitpi- erre, Tígrisdýrið þunglynda, fyrir svörum: „Pierre, okkur fannst við allt í einu vera orðnir gamlir: tann- laust Tigrisdýr, Pardusdýr með sljóvgaðar klær, Fíll, sem farinn er að gleyma, og Úlfur, sem misst hefur lystina. Við sátum hér eitt kvöld og skeggræddum um gömlu dagana; þegar Þjóðverjarnir skulfu fyrir okkur. Við þráðum eitt ævintýri í viðbót til að kóróna okkar gamla feril.“ Ofurstinn reigði höfuðið aftur á bak og rak upp skellihlátur. Svo sagði hann: „Mikið var, að þið gát- uð sagt orð af viti! Ef þið hefðuð bara snúið ykkur til mín, þegar þessi tilfinnig tók að ásækja ykkur, værum við ekki komnir í þessa klipu núna. Þá hefði málið verið tekið skynsamlegri tökum.“ Úlfurinn leit einkennilega á ofurstann. „Þú sagðir við, gamli vinur? Meinarðu það í raun og veru?“ „Spurðu ekki eins og flón,“ svar- aði ofurstinn hryssingslega. „Hvers vegna heldurðu, að ég sé hingað kominn, og það með Scoubide höf- uðsmann á hælunum á mér? Þú, kæra Pardusdýr, hefur vafalaust skilið eftir fingraför um alla raf- magnsstöðina i Villa Fleury, þegar þú tókst varúðarbjölluna úr sam- bandi.“ Og nú náði áhugi atvinnu- mannsins yfirhöndinni. „Segðu mér 12 VIKAN annars, hvernig fórstu að því? Ef eitthvað er fiktað við þjófabjöll- urnar, gefa þær strax merki á lög- reglustöðinni.“ „ó, það?“ svaraði Pardusdýrið með aðdáanlegu sakleysi. „Mér fannst vissara að taka þær úr sam- bandi á sjálfri lögreglustöðinni.“ Aftur hristist ofurstinn af hlátri. „Þetta var samboðið bezta and- spyrnuhreyfingarflokki, sem nokk- ur maður liefur fengið að stjórna. Bravo, vinur minn Pardusdýr!“ „Hvað vilt þú þá leggja til mál- anna?“ spurði Fíllinn. „Dálitla siðferðiskennd,“ svaraði ofurstinn. „Hún gæti lýst eins og kyndill í myrkri. Við verðum að skila aftur inálverkunum.“ „Já, en hvernig eigum við að fara að því?“ spurði hinn raunsæi Úlfur. „Þannig að ljósið geti tendrazt," svaraði ofurstinn, og nú gerðu þeir sér loks grein fyrir, að hann eygði einhverja úrlausn. Roquebrun ofursti keyrði Simca Station bílinn sinn eftir bugðóttum veginum upp í hæðirnar fyrir ofan Cannes, þar til hann kom að boga- mynduðu hliði og sá lítið, yfirlætis- laust skilti, er á var letrað: FÉ- LAGSKLÚBBURINN — AÐEINS FYRIR MEÐLIMI. Um það bil hundrað metra fyrir innan hliðið stóð dimmt hús og bila- stæði rétt hjá. Lýsingin var afleit. Ofurstinn lagði bíl sínum innan um margvíslegar gerðir af vögnum: Rolls Royce, Bentley, Cadillac, Mercedes og ýmsa hraðskreiða, ítalska sportbíla. Klukkan var níu að kvöldi. Hann heyrði óm af píanó- leik frá húsinu. Engan mann sá hann. Hann fór að leita að inngangin- um og fann járnstiga utan á hús- inu. Hann gekk upp tröppurnar og komst upp á svalir, sem mörg her- bergi lágu að. Þar stóð ung stúlka í náttkjól og horfði niður í dimm- an garðinn. Jafnvel í myrkrinu duldist lionum ekki fegurð hennar. „Ó, ég bið afsöikunar,“ sagði hann. Augun, sem virtu hann fyrir sér, voru hin röku, skilningsgóðu, þung- lyndislegu augu gleðidísarinnar. Hún sagði: „Inngangurinn er hérna fyrir neðan — bak við tréð þarna.“ Síðan hvarf hún aftur inn í her- bergið, sem hún hafði komið út úr. Rorruebrun ofursti heyrði karl- mannshósta, brak í rúmi og niður- bældan hlátur. Hann fór að velta fyrir sér á leiðinni niður stigann, hvers eðlis þetta félag væri, sem klúbburinn dró nafn sitt af. Hann fann innganginn undir tjaldhimni. Einkennisbúinn dyra- vörður virti hann fyrir sér með nokkurri óvissu og spurði: „Eruð þér meðlimur?“ „Nei,“ svaraði ofurstinn, „en . . ,“ og milli fingra hans mátti sjá gulan 100 franka seðil. „Auðvitað,“ mælti dyravörðurinn, „er hægt að kippa þvi í lag.“ Ofurstinn rétti honum nafnspjald sitt og seðilinn. Maðurinn tók við því livoru tveggja og hvarf inn um dyrnar. Þetta voru örlög Frakklands nú- tímans, hugsaði ofurstinn. Orðin Frelsi, Jafnrétti, Bræðralag, sem voru grafin á alla mynt, mættu hverfa og í þeirra stað koma slag- orðið: „Þvi er hægt að kippa í lag.“ Dyravörðurinn kom aftur með spjald, sem á var letrað með gyllt- um upphleyptum stöfum. „Herr- ann er velkominn,“ mælti hann og gekk á undan ofurstanum eftir löng- um, dimmum gangi og gegnum bar- inn, sem einnig var dimmur. Píanó- leikarinn spilaði léttilega væmin og tilfinningasöm lög. Dökkhærð stúlka í bikinibaðfötum hallaði sér að dyra- stafnum með kokkteilglas i hendi. Leyndardómsfullt bros lék um var- ir hennar. Nokkrir menn sátu við barinn, en enginn þeirra veitti henni athygli. Ofurstinn hugsaði með sér, að það væri kannske ekkert synd- samlegt að klæðast bikinibaðfötum klukkan níu um kvöld, en einhvern veginn hryllti hann við því. Hann var feginn að hafa komið. Hinum megin við barinn var ver- önd, þar sem framreiddar voru veitingar. Yfirþjónn í hvítum jakka veifaði matseðlinum og vísaði ofurstanuin á borð. Þar liafði hann gott útsýni yfir ljósadýrðina í Cann- es. Engin lýsing var á veröndinni nema smálampar á borðunum. Roquebrun gat þó greint, að um það bil helmingur sætanna var þeg- ar skipaður. Hann pantaði þurran Martini. Pianóleikurinn lét þægilega i eyr- um og róandi. Stúlkan í bikinibað- fötunum stóð um stund og horfði yfir veröndina með rökum augum, síðan gekk liún hurt niður garðs- lóðina með miklu lendavaggi. Fyrir neðan skvampaði mjúklega í gos- brunni, og til vinstri sá ofurstinn stjörnurnar speglast í sundlaug. Um- hverfið var himneskt. En það minnti Roquebrun á gömlu dagana, þegar liann beið í launsátri, umkringdur Þjóðverjum í svartamyrkri. Klukkan tíu var aðeins eftir eitt borð laust á veröndinni. Ofurst- inn var farinn að venjast myrkr- inu og gat greint andlit fólksins í kring. Honum fannst hann skyndi- lega kominn inn í annan lieim. Hér var samsöfnuð eins konar alþjóðleg froða — sú froða, sem myndi stiga upp á yfirborðið, ef allir illvirkjar lieimsins væru soðnir saman i stór- um potti. Karlmennirnir sátu með dökk gleraugu- á sléttum, vaxkennd- um andlitum; þeir voru óaðfinnan- lega klæddir, mjúkmálir, smeðju- legir, yfirlælislegir, hrokafullir: Bandarikjamenn, Bretar, Spánverj- ar, ítalir, Frakkar. Laglegar stúlk- ur skreyttu borð jieirra og var ekki gefinn meiri gaumur en húsgögn-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.