Vikan


Vikan - 31.01.1963, Page 13

Vikan - 31.01.1963, Page 13
í&ttqwA wH*y' <■ ^ unum. Þetta voru engir smá- salar lasta og illsku. Nei, þetta voru heildsalarnir í heimi þeim. Einhvern veginn voru það dökku gleraugun, sem ofurstinn átti erfiðast með að fella sig við'. Jafnvel í þessari dimmu gátu mennirnir ekki þoiað svo mikið sem lítið kertal.jós. Honum var hugsað til sólarlausra skolpræsa, þar sem rottur tifuðu. Þetta voru ógeðslegir auðmenn og áhang- endur þeirra, sem græddu fé sitt á vcikleikum mannanna. Hér voru samankomnar hræ- ætur heimsins, sem lctust vera fólk. Ofurstanum fannst hann þurfa að fara i bað. Yfirþjónninn hélt matseðl- inum hátt á loft til að sýna, að þýðingarmikið fólk væri að koma, og þræddi slóð sína milli horðanna á undan gesta- hópi. Roquebrun sá, að þarna fór Sarah Howard og vinir iiennar. Ein stúlkán var sú dökk- hærða, sem hann hafði séð i bikinibaðfötum á barnum, og önnur var hersýnilega af söinu manngerð. Sú þriðja hlaut að vera enska stúlkan, sem bjó hjá Söruh. Maðurinn við hlið liennar var Kip Trenchley; ofurstinn þekkti hann af myndum, sem birzt höfðu í !)re .ku blöðiunum, og nú nundi hann, livers vegna nafnið rifjaði upp ógeðfeldar minningar. Sérgrein Trencli- leys var víst að verzla með heimskar hefðarmeyjar. Hann tæhli þær með sér til megin- landsins, flækti þær i net sitt og seldi þær síðan aftur til feðranna, sem vildu fegnir borga vel til að forðast hneyksli. ítalinn, Paolo Andrea greifi, | var auðþekktur. Ef nokkrar leifar af tiginmennsku voru enn i andlitsdráttum hans, voru þær útþurrkaðar af spillingu og löstum. Roque- brun þóttist geta gizkað á þátt hans í þessum viðbjóðs- lega kvartetti. En maðurinn, sem fékk veiðiliár ofurstans til að rísa og fyllti hann sem snöggvast af vanmáttugri hræðslu um Söruh, var sá, sem gekk undir nafninu Harry. Hann var klæddur fjólubláum smoking og augu hans hulin bak við hin ómissandi dökku gler- augu, sjálfsagt ekki að ástæðu- lausu, hugsaði ofurstinn: bak við dökk glerin myndu leyn- Framhald á bls. 40. VIKAN 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.