Vikan - 31.01.1963, Side 21
AI-LT FYRIR
UNGA
FÓLKIÐ
UNGFRÚ KATANGA
Marie Louise Mwanwe - hvernig sem á
nú að bera það fram - vann fegurðar-
samkeppnina í Katanga á síðasta ári og
var þar af leiðandi kjörin miss Katanga.
Ekki er okkur kunnugt um, hvort Tshom-. J
be hefur átt einhvern þátt í kjöri hennar.j
SÁLFRÆÐI
Sálræn vandamál eru ung'u fólki fylgispök, og þess
vegna þekkir allt ungt fólk sálfræðinga; annað hvort
af afspurn eða eigin raun. Það getur hins vegar vafizt
fyrir mörgum að svara því, hvað sálfræði og sálfræð-
ingur eiginlega sé. Hugvitssamur náungi lét sig þó
ekki muna um það, en skilgreindi hugtakið sálfræð-
ingur svo:
„Sálfræðingur,“ sagði hann, „er maður, sem hefur
engar áhyggjur, — það er að segja svo lengi sem
aðrir hafa þær.“ — Það er hreint ekki svo lítil sál-
fræði í þessu!
í NÝJUM FÖTUM
Þekkið þið þessa konu? Þið meg-
ið geta tvisvar. Já, það er rétt.
Þetta er Gina Lollobrigida. Hún
hcfur slcppt glamour-stílnum í nýj-
ustu kvikmyndinni sinni, en þar
leikur hún húsmóður í sikileyskri
krá.
LÍTIL ÁSTARSAGA
Við vitum lítið um þessa ungu stúlku hér
á myndinni, annað en að hún er afskaplega
músíkölsk. Hún spilar á flautu, hörpu og
sembaló. Yfir rúminu hennar hangir mynd af
Ecethoven, og á kommóðunni stendur brjóst-
mynd af Bach. Hún les ekkert annað en ævi-
sögur stórmeistaranna, og safnar rithöndum nú-
lifandi tónskálda. Hún heitir Angelika Höppner.
Um hana er þessi saga til: Landi hennar, að
nafni Grollman, varð ástfanginn af henni og
vildi eignast hana fyrir konu. En hann vissi
um þessa tónlistarástríðu hennar, en var ger-
samlega laglaus sjálfur og hafði ekki snefil af
tóneyra. En ástin rak hann til þess að læra það
sem hann ekki kunni, svo hann tók að nema
það sem numið varð um tónskáld, hljómsveitar-
og söngstjóra, hljóðfæraleikara og svo fram-
vegis. Hann lærði að dansa, fékk sér píanótíma
og réði sér söngkennara. Hann lærði nokkrar
fræðibækur um tónlist utan að, og að þessu
loknu réðist hann í það stórvirki að bjóða
Angelíku á ball.
Framhald á bls. 34.
VIKAN 21