Vikan


Vikan - 31.01.1963, Síða 30

Vikan - 31.01.1963, Síða 30
KONUNGUR FRAMHALDSSAGAN 5. HLUTI EFTIR ANTHONY STERLINC „Ég játa það fyrir augliti Guðs,“ byrjaði saksóknarinn að lesa, „að ég hef syndgað í hugsun, orði og verki. Fyrir sex eða sjö árum gerði ég ýmislegt ljótt með strák, sem hét Elias Jones og Frank bróður mínum, af því að þeir hótuðu mér að láta ljóta karlinn taka mig. Ég stal peningum úr buddu móður minnar og fimm centum úr vasa pabba. Þegar mamma skammaði mig, gretti ég mig og kallaði hana illum nöfnum þegar hún heyrði ekki til. Ég klippti á mér toppinn og neitaði svo að hafa gert það. Ég stríddi frænku minni og talaði svo illa um hana við aðra. Ég kallaði einu sinni Mrs. Redfern bykkju og Lottie kallaði ég subbu. Ég sagði, að mér líkaði ekki við systur Elizu af því að hún er svo hörkuleg. Ég sagði, að ég vjldi ekki vera ísraels- maður af því að þeir væru svo kjánalegir með hárið svona lafandi niður á axlir. Um það bil viku áður en ég kom hingað, var ég spurð hvaða söfnuði foreldrar mínir til- heyrðu, og af því að það var talað svo illa um fsraelsmenn. svaraði ég Methodistasöfnuðinum. Ég man ekki eftir fleiru og ég iðrast og bið þess að Guð fyrirgefi mér. Bernice Bickle.“ Áheyrendur sátu um stund hljóð- ir af hneykslun, en svo brauzt fram hár óánægjukliður og allra augu hvíldu reiðilega á Michael Mills og vinkonu hans og málafærslumanni. Oscar Springer beið hæfilega lengi til þess að láta þetta festast vel í hugum áheyrenda og hélt svo áfram með þrumandi röddu. „Þetta, heiðruðu kviðdómendur, eru syndir Bernice litlu Bickle! Þetta er játningin, sem Atkinson 30 VIKAN var að tala um og ætlaði að sanna með, að Bernice hafi ekki verið hrein mey, þegar hún lenti í klón- um á ákærða. Hún hefur verið sex eða sjö ára gömul! Það er þetta, sem verjandinn kallar „samband við aðra karlmenn" um leið og hann herpir saman varirnar af vandlætingu!“ Hann þagnaði og benti á síðskeggj- aðan prinsinn. „Og það til að verja þennan mann í ólifnaði hans. Til þess að hlífa slíkum manni við því, að taka út hegningu fyrir glæpi sína!“ Hann hristi höfuðið. „Heiðruðu kviðdómendur, hugleiðið allt, sem Bernice litla hefur sagt okkur hérna af honum. Ekkert gat fengið hann til að hætta við áform sín. Hún bað, hún grét, hún mótmælti ... og ekkert í hinum glæsilegu ræðum verjandans hér áðan, eða þeim, sem hann mun væntanlega halda, þegar ég hef lokið máli mínu, getur gefið okkur jafn skýra mynd og hið einfalda svar hennar sjálfr- ar - ég sagði honum að gera það ekki, ég sagði honum að hætta! Hún gat ekkert annað gert. Hún var varnarlaus, hún var lambið í klóm úlfsins, hún var á valdi þessa sví- virðilega nautnaseggs í ólifnaðar- bæli hans. Ef einhver hér í kviðdómnum á dóttur, sem hann hefur séð vaxa upp — fyrst í vöggunni, svo þegar hún tók fyrstu sporin, þegar hún kom hlaupandi á móti honum á kvöldin, þegar hann kom heim ... ef einhver maður í þessum kvið- dómi elskar litlu dóttur sína eins og ég elska litlu stúlkuna mína ... þá hlýtur hann að hugsa eins um þetta mál og ég geri. Dóttir mín er mér dýrmætari en lífið í brjósti mér, og ef einhver fremdi slíkan glæp á henni ... þá miskunni hon- um Guð, því að ég gæti það ekki. Heiðruðu kviðdómendur, gerið skyldu ykkar og hikið ekki. Sendið Bernice Bickle heim sem hreina og heiðvirða stúlku, en ekki sem vændiskonu. Látið ekki þetta barn ganga út úr réttarsalnum sem brennimerkta manneskju. Hún bið- ur um réttlæti ... ekkert annað ... og farið síðan heim til fjölskyldna ykkar. Ég þakka ykkur.“ Áheyrendur klöppuðu og hrópuðu meðan Kinne dómari bað ákaft um hljóð með hamrinum. Eins og saksóknarinn hafði gert ráð fyrir, hélt Atkinson hrífandi ræðu á eftir. Hann lýsti því aftur, hvernig stórkostlegu samsæri hefði verið komið í kring gegn hinum ákærða, hvernig vitnunum hefði verið mútað, að lögreglan hefði tek- ið þátt í samsærinu og lögregluþjón- arnir haft ósæmilegt samband við stúlkurnar meðan þær voru í vörzl- um lögreglunnar. Hann vitnaði í yfirheyrslurnar yfir lögregluþjón- unum tveimur og vitnisburð Flavius Brooke um borgarafundina og fjár- söfnunina. Hann endaði með lit- skrúðugum kafla, þar sem hann líkti prins Michael við Krist og Bernice við Barrataas. „Fólkið kallar — Krossfestið hann og gefið okkur Barrabas! Dagblöðin og þetta forvitna fólk, sem fyllir þenan sal, og allir, sem standa hér fyrir utan •—• allir heimta, að nafn þessa ómerkilega litla þjófs, sem hefur verið mútað til að bera ósannindi, verði hreins- að, til þess að hægt sé að negla mann upp á krossinn, sem ekkert hefur á samvizkunni annað en það, að lifa samkvæmt trú sinni!“ En það hafði engin áhrif. Eftir að efinn um meydóm Bernice Bickle hafði verið yfirunninn, eftir að barnalega sakleysisleg játning henn- ar hafði verið lesin voru allir á einu máli. Það klappaði enginn fyrir ræðunni, þegar hann loks settist niður. Dómarinn ávarpaði mú kviðdóm- inn. Hann minnti á það, að það væri mikilvægt atriði, hvort Bernice hefði verið óspjölluð eða ekki, því að það væri aðalsök ákærða að ræna hana meydómnum. „Það er sjaldan," sagði hann, „að réttvísin fær jafn viðkvæmt og ó- hugnanlegt mál til meðferðar, ef áskanir saksóknara eru réttar. Hafi slíkur glæpur verið framinn, verð- ur að fást um það ótvíræðar og taf- arlaus úrskurður ykkar.“ Kviðdómendur tóku orð hans fyllilega til greina, því að ekki liðu nema fimm mínútur þar til þeir komu aftur inn og höfðu kveðið upp dóminn — ákærði var fundinn sekur. Nú klöppuðu áheyrendur ákaft og hrópuðu hátt af gleði. Dómarinn gerði ekkert til að stöðva fagnaðar- lætin, en beið þar til þau fjöruðu út. Þá las hann upp dóminn yíir prins Michael K. Mills — fimm ára þrælkunarvinna í Jackson ríkis- fangelsinu. „Takið mig líka!“ veinaði Eliza Court, þegar prinsinn var leiddur í burtu. „Takið mig með honum! Látið mig bera kross hans! Látið mig bera með honum sorgina!“ Dómsþjónarnir drógu hana frá honum, klórandi og sparkandi. Benjamin Franklin Purnell hafði orðið vitni að því, hver örlög bíða

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.